Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 602
602. fundur
602. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 6. september 2012 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1209002F - Svæðisráð Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs - 31 |
||
|
Hjalti gerði grein fyrir umræðu um deiliskipulag í Skaftafelli og áherslu á ráðningu heilsárstarfsmanns á starfstöð á Höfn. Björn Ingi minnti á að í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð er heimild fyrir ráðningu annars þjóðgarðsvarðar á Suðursvæði. Taldi að slíkt gæti aukið vægi sveitarfélagsins í þjóðgarðinum í heild. Fundargerð til kynningar. |
||
|
|
||
|
2. |
200712021 - Þjónustusamningur um rekstur HSSA |
|
|
Stjórn HSSA mætti á fundinn undir þessum lið, Ásgeir Gunnarsson formaður, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Lovísa Rósa Bjarnadóttir og Guðrún Ingimundardóttir. Lögð fram drög að innheimtubréfi vegna vanefnda á þjónustusamningi um rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála á Hornafirði. Stjórn HSSA og bæjarráð eru sammála um að bréfið verið sent í Velferðarráðuneytið. Bæjarstjóra falið að laga til inngang í bréfi og ítrekar að innheimtan snúi jafnt að sjúkrarýmum sem og hjúkrunarrýmum. |
||
|
|
||
|
3. |
201206055 - Úrbætur á Leirusvæði |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með fulltrúum íbúa á Leirusvæði og niðurstöðum þess fundar um að prófa heftingu foks með kúamykju. |
||
|
|
||
|
4. |
201209007 - Húsaleigumál Nemendafélags FAS |
|
|
Bæjarráð samþykkir að fella niður húsaleigu hjá nemendafélagi í FAS vegna félagslífs á þeirra vegum. |
||
|
|
||
|
5. |
201209008 - Bílastæði við Mánagarð |
|
|
Lögð fram hugmynd að útfærslu á bílastæði við Mánagarð. Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Kvenfélagsins Óskar og Vegagerðina um málið. Einnig gerði Hjalti grein fyrir viðræðum við kvenfélagið um umhirðu í og við Mánagarð. |
||
|
|
||
|
6. |
201209010 - Samstarf við Valorku |
|
|
Hjalti lagði fram gögn um samskipti sín við Valorku. Sagði að verkefnið væri spennandi og lyti að þróun hverfla sem framleiði rafmagn úr hægstraumum. Árni lagði til að sveitarfélagið beitti sér fyrir fjármögnun frá ríkinu í verkefnið og tæki málið upp í viðræðum við þingmenn og ráðherra. Bæjarráð tók undir orð Árna. |
||
|
|
||
|
7. |
201209012 - Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Fosshótel Skaftafelli |
|
|
Engar athugasemdir. |
||
|
|
||
|
8. |
201209014 - Líkamsræktartæki |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundi með rekstraraðilum Sporthallarinnar. Bæjarstjóra falið að leita eftir tilboðum í tæki sem bæjarráð tæki síðan ákvörðun um hvort og þá hvenær yrðu keypt. Bæjarráð óskar eftir að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd takið málið til umfjöllunar. |
||
|
|
||
|
9. |
201209015 - Nemakort í strætó |
|
|
Lagt fram tölvubréf frá Össu Hanssen dags. 29. ágúst 2012 um niðurgreiðslur á nemakortum í Strætó sem eingöngu nemar með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um. Bæjarráð ræddi málið og ákvað að fresta því til næsta fundar. |
||
|
|
||
|
10. |
201209013 - Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd haust 2012 |
|
|
Bæjarstjóra falið að bóka fund með nefndinni. |
||
|
|
||
|
11. |
201206031 - Fjárhagsáætlun 2012 - viðauki |
|
|
Frestað. |
||
|
|
||
|
12. |
201209018 - Tillaga að sameiningu SASS og AÞS |
|
|
Fyrir fundinum lágu gögn um hugmynd að sameiningu Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands (AÞS). Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að SASS en ekki AÞS og þarf að taka ákvörðun um hvort sveitarfélagið sæki um aðild að AÞS í tengslum við hugsanlega sameiningu. Sagði Reynir að ef umsókn yrði send inn yrði að gera það á grundvelli ársreiknings AÞS árið 2011 en uppgjör fari fram á grunni ársreiknings fyrir árið 2012. Jafnframt að skilyrt sé að starfsmaður á vegum AÞS sitji á Hornafirði og sinni þar atvinnu- og samfélagsþróunarmálum. Árni taldi mikilvægt að umræða færi fram í bæjarstjórn áður en endanlega ákvörðun er tekin. Björn Ingi sagði málið koma flatt upp á sig og taldi ekki forsendur fyrir að taka ákvörðun um aðild að AÞS að svo komnu máli. Rifjaði upp stofnun atvinnu- og rannsóknasjóðs og þá ákvörðun að standa utan AÞS á sínum tíma. Reynir upplýsti að fulltrúar í bæjarráði hafi fengið að sjá umrædd gögn sama dag og þau hafi verið lögð fyrir stjórn SASS og AÞS. Ásgerður og Árni Rúnar ræddu um að frá því að málin hafi síðast komist til umræðu hjá sveitarfélaginu gætu forsendur hafa breyst, til dæmis er varðar hlutverk landshlutasamtaka og verkefni þeirra. Bæjarráð sammála um að taka málið til umræðu í bæjarstjórn. |
||
|
|
||
|
13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Árni spurði um hvenær upplýsinga- og gæðastjóri hefji störf. Upplýsti Hjalti að það yrði í næstu viku. |
||
|
|
||


