Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 601
601. fundur
601. fundur bæjarráðs Hornafjarðarhaldinn í ráðhúsi , 3. september 2012 og hófst hann kl.16:15.Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1207004F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 146 |
||
|
Rætt um umferðarmerkingar og hugsanlega einstefnu við Pakkhúsið. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Umræður sköpuðust um nýtt starf forstöðumanns hafnarinnar. Björn Ingi taldi rétt að tititillinn á nýja starfinu væri hafnarstjóri en ekki forstöðumaður Hornafjarðarhafnar, ekki síst vegna þess að sá titill er þekktur í opinberri umræðu. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1208001F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 232 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
1208005F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 23 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir drög að innheimtubréfi vegna þjónustusamnings um rekstur HSSA. Bæjarráð tekur afstöðu til málsins nk mánudag og óskar eftir að stjórn HSSA mæti á fundinn til að ræða málið. Björn Ingi spurði um stöðu mála er varða viðræður við Búmenn. Ásgerður upplýsti að óskað hafi verið eftir að Búmenn komi á staðinn og kynni starfsemi sína. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
4. |
201206031 - Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki |
|
|
Hjalti fór yfir drög að viðauka dags. 2. september 2012. Árni spurði um tilfærslur á fjármunum vegna framkvæmda. Einnig rætt um lið 2 í viðaukanum og að endureikna hann með tilliti til þess hvenær nýr starfsmaður hefji störf og vegna skipulagsbreytinga í stjórnsýslu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. |
||
|
|
||
|
5. |
201206055 - Úrbætur á Leirusvæði |
|
|
Hjalti sagði frá samtölum við íbúa á Leirusvæði og framkvæmdastjóra HAUST. Málið er í áframhaldandi vinnslu starfsmanna. Árni lagði ríka áherslu á að viðunandi lausn fáist á foki á Leirusvæðinu. Bæjarráð tók undir orð hans. |
||
|
|
||
|
6. |
201208037 - Útboð á raforkukaupum sveitarfélagsins |
|
|
Bæjarráð samþykkir að bjóða út kaup á raforku og útboðsgögn verði unnin í samvinnu við Ríkiskaup. |
||
|
|
||
|
7. |
201206018 - Viðræður um kennsluhúsnæði Nesjaskóla |
|
|
Bæjarstjóra falið að draga upp samning við aðila og leggja fyrir bæjarráð. |
||
|
|
||
|
8. |
201208032 - Keðja - markaðssetning svæðisins fyrir listamenn og hópa yfir vetrartímann |
|
|
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
|
||
|
9. |
201208034 - Tillaga að göngustíg á golfvelli |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsefndar. |
||
|
|
||
|
10. |
201208027 - Ósk um samstarf Huldusteins og sveitarfélagsins |
|
|
Bæjarráð fagnar frumkvæðinu og vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
|
||
|
11. |
201209001 - Ósk um samstarf um uppbyggingu búvélasýningar |
|
|
Bæjarráð fagnar frumkvæðinu og vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
|
||
|
12. |
201209002 - Ósk um viðræður um uppsetningu Jöklasýningar í Hoffelli |
|
|
Bæjarráð fagnar frumkvæðinu og vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
|
||
|
13. |
201208038 - Ósk um styrk |
|
|
Vísað til bæjarstjóra. |
||
|
|
||
|
14. |
201208033 - Strandráðstefna 2013 |
|
|
Vísað til hafnarstjórnar. |
||
|
|
||
|
15. |
201208036 - Ósk um ums. á endurnýjun rekstrarleyfis f. Kaffi Hornið |
|
|
Engar athugasemdir. |
||
|
|
||
|
16. |
201208035 - Notkun vélknúinna ökutækja við leitir |
|
|
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
|
|
||
|
17. |
201208039 - Skilgreining á skóladögum í grunnskólum,álit mennta- og menningarmálaráðuneytis til Kennarasambands Íslands |
|
|
Árni benti á að könnun á vegum Sambands sveitarfélaga og Kennarasambandsins hafi verið gerð á viðhorfi grunnskólakennara til kjara og starfsumhverfis. Ræddi mikilvægi þess að könnunin yrði rædd í bæjarráði eða skólanefnd. Málið til kynningar. |
||
|
|
||
|
18. |
201207015 - Ósk um framkvæmdaleyfi til kvikmyndatöku |
|
|
Bæjarráð samþykkir umræddar framkvæmdir fyrir sitt leyti. |
||
|
|
||
|
19. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar Undanfarna daga hafa borist fréttir af kaupum Síldarvinnslunnar hf í Neskaupstað á útgerðarfélaginu Bergur- Huginn ehf frá Vestmannaeyjum og áhuga Vestmannaeyjabæjar á að verja kvótastöðu sveitarfélagsins með því að nýta sér forkaupsrétt á skipum Bergs-Hugins með vísan til 12. gr. laga um stjórn fiskveiða. Í ljósi þessara frétta spyr áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar bæjarstjóra, hvort hann telji að beiting 12. gr. laga um stjórn fiskveiða komi til greina, standi Sveitarfélagið Hornafjörður frammi fyrir sömu stöðu og Vestmannaeyjabær gerir í dag. Svar: Bæjarstjóri telur að inngrip sveitarfélagsins í atvinnurekstur í sveitarfélaginu verði að meta í hverju tilfelli fyrir sig, út frá heildarhagsmunum samfélagsins sem, heimildir í lögum um slík mál og reglum í sveitarstjórnarlögum um skuldsetningu og fjárfestingu sveitarfélaga. |
||
|
|
||


