| 1. |
1206002F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 145 |
|
|
Guðrún spurði um björgunarlaun vegna Ölmu. Hjalti upplýsti um málið og sagði það í höndum lögfræðings hafnarinnar.
Björn Ingi spurði hvort nægjanlega miklu hafi verið dælt úr höfninni. Hjalti sagði að snúningsrými sé orðið gott og dýpi við bryggjur nægjanlegt.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1206007F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 22 |
|
|
Björn Ingi óskaði eftir ítarlegri fundargerðum frá stjórn HSSA og fleiri nefndum sveitarfélagsins, bæði vegna upplýsingaskyldu gagnvart íbúum og eins að upplýsta bæjarfulltrúa um efni funda.
Guðrún upplýsti að liðinn 'starfsmannamál' hefði verið ákveðið að hafa á öllum fundarboðum stjórnar HSSA.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
1206004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 28 |
|
|
Guðrún ræddi um umferðarmerkingar á hafnarsvæðinu og taldi mikilvægt að bætt yrði úr. Eins að setja biðskyldu við Ránarslóð að Bogaslóð.
Bæjarráð samþykkir efnistöku í landi Efri Fjarðar.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
1206008F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 23 |
|
|
Ásgerður gerði grein fyrir umræðum í skólanefnd um breytingar á tímakvóta tónskólans. Björn Ingi nefndi að ætíð hafi verið biðlisti í tónlistarnám og þá staðreynd þyrfti að hafa til hliðsjónar þegar ákvarðanir um fjölda kennslustunda er ákveðin til að tryggja aðgengi sem flestra sem vilja leggja stund á tónlist. Guðrún gerði yfirvinnu í tónskólanum að umtalsefni.
Björn Ingi ræddi um ósk skólastjórnenda um að breyta stöðu deildarstóra í tvær hálfar stöður. Lýsti hann því yfir að þessi breyting sé honum ekki að skapi. Telur hann hættu á að þjónusta við ákveðinn hóp nemenda verði lakari, þar sem ekki verður sérstakur deildarstjóri yfir sérkennslumálum. Guðrún lýsti því yfir að hún fallist á þetta fyrirkomulag fyrir sitt leyti.
Kristján fagnaði því að úttekt hafi verið fengin frá ráðgjöf og greiningu varðandi líðan ungs fólks á Hornafirði.
Björn Ingi spurði um kostnað vegna ferðalag íþróttamannvirkja.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 5. |
201206013 - Humarhátíð 2012 - umsagnir um leyfi |
|
|
Umsókn um tækifærisleyfi frá nefnd um Humarhátíð á Hornafirði dagana 21/6 - 24/6 júní, ábyrðarmaður Kristín Kristjánsdóttir. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
Umsóknir frá Veitingahúsinu Víkinni, ábyrgðarmaður Guðrún Valgeirsdóttir, vegna lengri opnunartíma fyrir dansleiki 22. júní frá kl. 01:00 til 02:00 og 23. júní 03:00 til 04:00. Bæjarráð gerir ekki athugasemd vegna útgáfu leyfisins
Umsókn frá UMF Sindra, ábyrgðarmaður Valdemar Einarsson, vegna dansleiks í íþróttahúsi 23./24. júní kl. 23:50 til 04:00 - þar er einnig um að ræða lengdan opnunartíma. Bæjarráð gerir ekki athugasemd vegna útgáfu leyfisins.
Umsókn um tækifærisleyfi frá Kvennakór Hornafjarðar, ábyrgðarmaður Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, vegna þjóðakvölds í Mánagarði (matarveisla) 21. júní n.k. frá kl. 19:00 til kl. 00:30. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
|
| |
|
|
| 6. |
201206017 - Ósk um umsögn á útg. rekstrarleyfis f. veitingastað fl. II í Nýheimum |
|
|
Umsókn um rekstur veitaingasölu í Nýheimum., Umsækjandi Björn Ingi Jónsson f.h. IMB tec ehf.
Björn Ingi Jónsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
|
| |
|
|
| 7. |
201206025 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir veitigastað fl. I. N1 í Nesjum |
|
|
Umsókn um rekstur veitingasölu í söluskála í Nesjum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 8. |
201206012 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis f. gististað fl. II - Javet ehf. |
|
|
Umsókn um nýtt rekstrarleyfi f. gististað II að Höfðavegi 8. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 9. |
201206010 - Staða sveitarsjóðs 30. apríl 2012 |
|
|
Staða 31. apríl 2012 lögð fram til kynningar. Kom fram að tekjur umfram gjöld séu 73 m.kr sem er betri staða en áætlanir gera ráð fyrir. |
| |
|
|
| 10. |
201206019 - Samanburður á rekstri Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2006-2012 |
|
|
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2013. |
| |
|
|
| 11. |
201203024 - Málefni nýrra íbúa |
|
|
Lögð fram tillaga dags. 12. júní 2012 um að ráðast í tímabundið verkefni í að innleiða starf á vegum sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa veturinn 2012-2013. Í mars á næsta ári mun bæjarráð meta stöðu verkefnisins og framtíð þess. Samþykkt. |
| |
|
|
| 12. |
201206018 - Kaup á kennslustofum við Nesjaskóla |
|
|
Vísað til bæjarstjóra til frekari vinnu. |
| |
|
|
| 13. |
201203057 - Ósk um samstarf um söfnun brotamálma og dekkja |
|
|
Bæjarstjóra falið að segja núgildandi samningi um söfnun brotamála og dekkja upp. |
| |
|
|
| 14. |
201206023 - Tilboð í raforkukaup sveitarfélagsins |
|
|
Starfsmönnum falið að vinna útboðsgögn vegna raforkukaupa. |
| |
|
|
| 15. |
201206014 - Varmadælur til húshitunar |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 16. |
201206015 - Kaup á arkitektarþjónustu |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu og þeirri hugmynd að gera samning við arkitektastofu gegn því að starfstöð yrði staðsett í sveitarfélaginu með föstum starfsmanni. Frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 17. |
201206016 - Könnun á kjörum sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga |
|
|
Hjalti fór yfir samantektina. Sagði að það hallaði á kjörna fulltrúa á Hornafirði miðað við hjá sambærilegum sveitarfélögum. Bæjarstjóra falið að leggja fram tillögu og rökstuðning fyrir breytingu á kjörum sveitarstjórnarmanna. |
| |
|
|
| 18. |
201206020 - Millibygging milli Heppuskóla og sundlaugar |
|
|
Lögð fram drög að verklýsingu um undirbúning og hönnun millibyggingar. Bæjarráð samþykkir verklýsingu með áorðnum breytingum og vísar til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 19. |
201206009 - Ósk um hýsingu hjalls við Gömlubúð |
|
|
Bæjarráð tekur jákvætt í óskina en vísar til atvinnu- og menningarmálanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 20. |
201202001 - Gamli vatnstankurinn - ósk um nýtingu |
|
|
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsnefnd að hefja deiliskipulagsvinnu í tengslum við þessa hugmynd ef formlegt tilboð berst í vatnstankinn. Að henni lokinni verður endanleg ákvörðun tekin um framkomna hugmynd. |
| |
|
|
| 21. |
201206008 - Ósk um styrk til átaks í textun alls íslensks sjónvarpsefnis |
|
|
Vísað til bæjarstjóra. |
| |
|
|
| 22. |
201206024 - Ósk um styrk til að reka Vísinda- og rannsóknasjóð Suðurlands |
|
|
Bæjarráð hafnar erindinu þar sem sveitarfélagið rekur sambærilegan sjóð. |
| |
|
|
| 23. |
201206011 - Kynnisferð til Brussel 18.-20. júní um þátttöku sveitarfélaga í byggðastefnu ESB |
|
|
Lagt fram til kynningar. |
| |
|
|
| 24. |
201206021 - Ferð til Söderhamn |
|
|
Hjalti og Björn Ingi gerðu grein fyrir ferðinni. |
| |
|
|
| 25. |
201206022 - Bréf Ingibjargar L. Ragnarsdóttur v. skipulags á Leirusvæði og flokkunarstöð í Suðursveit |
|
|
Bæjarráð hefur móttekið erindi og áskoranir frá einstaklingum og félögum í dreifbýli að undanförnu. Bæjarráð telur mikilvægt að taka tillit til þeirra óska sem þar koma fram og samþykkir að gámar fyrir blandað sorp verði settir upp við hverja grenndarstöð í sveitum yfir sumartímann.
Varðandi frágang á Leirusvæði vísar bæjarstjórn erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2013.
|
| |
|
|
| 26. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Guðrún spurði um kostnað sveitarfélagsins vegna framkvæmda nú um helgina við höfnina. Hjalti upplýsti að fjárveiting hafi hljóðað upp á 3 m.kr. samtals. Eftir eigi að gera dæmið upp. Björn Ingi lagði áherslu á að vinna þjónustumiðstöðvar og verktaka kæmi inn í uppgjörið. |
| |
|
|