Fundargerð bæjarráðs 592
592. fundur
592. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 21. maí 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1205010F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 25 |
|
|
Valdemar spurðist fyrir um stöðu fjármála Menningarmiðstöðvarinnar, bætt fjarskipti til sveita og virkjun á sjávarorku. Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1205014F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 22 |
|
|
Valdemar ræddi um þjónustu vegna leikskólabarna frá 16 - 17. Stefán gerði grein fyrir hversu margir nýta sér þennan vistunartíma og kostnaðinum við hann. Rætt var um mönnun starfsmanna á leikskólunum. Stefán upplýsti að búið er að auglýsa laus störf við leikskólana.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
1205011F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 230 |
|
|
Rætt var um hækkun á grunnviðmiði fjárhagsaðstoðar.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
1204006F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 229 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 5. |
1203017F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 228 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 6. |
201205047 - Ósk um styrk til þáttöku í íþróttamóti erlendis |
|
|
Málinu vísað til bæjarstjóra. |
| |
|
|
| 7. |
201205049 - Tónskóli Austur-Skaft. fjöldi kennslustunda 2012-2013 |
|
|
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir nemendaþróun á grunnskólaaldri og kennslustundafjölda í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Bæjarráð samþykkir tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um að fjöldi kennslustunda í Tónskóla Austur Skaftafellssýslu verði 128 vikustundir fyrir skólaárið 2012 - 2013. |
| |
|
|
| 8. |
201205050 - Ákvörðun um földa kennslustunda í Grunnskóli Hornafjarðar 2012-2013 |
|
|
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir nemendaþróun Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum í Hofgarði, einnig gerði hann grein fyrir þróun rekstrarkostnaðar fyrir báða skólana. Bæjarráð samþykkir tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um fjölda kennslustunda fyrir Grunnskóla Hornafjarðar. |
| |
|
|
| 9. |
201205051 - Félagsmiðstöð, lengd viðvera og ráðning tómstundafulltrúa |
|
|
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um auglýsingu á stöðu tómstundafulltrúa.
|
| |
|
|
| 10. |
201203073 - Stefnumótun í æskulýðs- íþrótta- og tómstundamálum |
|
|
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.
Ásgerður fór yfir málið. Bæjarráð felur starfsmönnum að kostnaðarmeta ákveðna þætti stefnunnar og tímasetja. Stefnan fari síðan aftur til umfjöllunar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.
|
| |
|
|
| 11. |
201201038 - Beiðni um leyfi til veiða á vargfugli innan bæjarmarka Hafnar |
|
|
Bæjarráð samþykkir beiðnina með þeim skilyrðum að ávallt verði haft samráð við lögregluna á Höfn þegar veiðar fara fram og að tekið verði tillit til umsagnar UST í bréfi dagsettu 26. mars 2012. |
| |
|
|
| 12. |
201205053 - Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Humarhöfnina ehf. |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfisins. |
| |
|
|
| 13. |
201205055 - Kauptilboð í Sandbakka1 0101 |
|
|
Haukur Ingi vék af fundi undir þessum lið.
Málinu vísað til bæjarstjóra
|
| |
|
|
| 14. |
201204036 - Gamlabúð II. áfangi |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir minnisblaði um áfangaskiptingu annars áfanga. Bæjarráð samþykkir að ljúka við lóðafrágang Gömlubúðar í samræmi við minnisblaðið, starfsmönnum falið að ljúka málinu. |
| |
|
|
| 15. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00