Fundargerð bæjarráðs 588
588. fundur
588. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 30. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, Fjármálastjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1204006F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 229 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1204007F - Almannavarnanefnd - 44 |
|
|
Bæjarráð tekur undir með almannavarnarnefnd að stofnaður verði starfshópur til að fara yfir skipulag öryggismála í sveitarfélaginu. Bæjarráð tilnefnir Björn Inga Jónsson formann almannavarnarnefndar, Guðrúnu Júlíu Jónsdóttur framkvæmdastjóra HSSA og Steinþór Hafsteinsson slökkviðiðsstjóra í hópinn. Bæjarstjóra falið að gera drög að erindisbréfi fyrir hópinn.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Bæjarráð frestar málinu. |
| |
|
|
| 4. |
201204033 - Lagning ljósleiðara í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Björn Ingi kynnti málið, sagði hann að ljósleiðari inn á hvert heimili væri framtíðin, sérstaklega fyrir dreifbýlið.
Árni Rúnar fagnar þessum upplýsingum en spyr um hvenær ákveðið hefði verið að fara í þessa samantekkt.
Formaður óskaði eftir því að þær upplysingar lægju fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð vísar skýrslunni til atvinnu- og mennirngarmálanefndar.
|
| |
|
|
| 5. |
200708017 - Sandbakkavegur 2 0201 |
|
|
Lagt var fram gangtilboð kaupenda í Sandbakkaveg 2 0201. Starfsmanni falið að gera gagntilboð skv. umræðum á fundinum. |
| |
|
|
| 6. |
201204035 - Umsögn um rekstrarleyfi fyrir Pakkhús-veitingar ehf. |
|
|
Bæjarráð geri ekki athugasemdir. |
| |
|
|
| 7. |
201204034 - Útboð vegna kaffiteríu í Nýheimum |
|
|
Björn Ingi vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við tillögu stjórnenda í Nýheimu. Bæjarsjóra falið að koma á framfæri ábendingum sem komu fram á fundinum.
|
| |
|
|
| 8. |
201111035 - Byggðakvóti 2011/2012 |
|
|
Bæjarráð fellst á framkomna tillögu Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um orðalag vegna breytinga á 6. gr. reglurgerðar um úthlutun byggðakvóta. |
| |
|
|
| 9. |
201204036 - Innanhúsbreytingar í Gömlubúð |
|
|
Frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 10. |
201203075 - Mannlífsþáttur Rúv |
|
|
Haukur Ingi kynnti málið. Starfsmönnum falið að kostnaðarmeta hlut sveitarfélagsins í verkefninu.
Bæjarráð fagnar framtakinu, og felur starfsmönnum að upplýsa rekstraraðila á svæðinu um málið.
|
| |
|
|
| 11. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Engar borist |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:43