Fundargerð bæjarráðs 586
586. fundur
586. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 17. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1203019F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 24 |
|
|
Ásgerður spurðist fyrir um deiliskipulag fyrir Lindarbakka. Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum landeigenda. Árni spurðist fyrir um uppsetningu á vegvísi við Dýmu í Lóni. Erindið er frá UST. Árni spurðist fyrir um stækkun lóðar Sandbakka 13. Upplýst um afgreiðslu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
201203090 - Atvinnuátak 2012 |
|
|
Haukur Ingi kynnti málið. Gerði hann grein fyrir því að kostnaðarþáttur sveitarfélagsins fyrir tvo starfsmenn í fjóra mánuði er 1. m.kr. sem er 25% af launakostnaði Vinnumálastofnun greiðir afganginn. Skógræktarfélag Íslands greiðir útlagðan kostnað svo sem bifreiðarstyrk, plöntur o.fl. Samþykkt að taka þátt í verkefninu og nýta til þess fjármuni sem koma til greiðslu á þessu ári frá Vinnumálastofnun fyrir árið 2011. |
| |
|
|
| 3. |
201106062 - Stækkun Krakkakots - útboð- gögn send út í tölvupósti |
|
|
Gögn til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
201204015 - Grunnskóli Hornafjarðar-stofnbúnaður, tölvur og fastur búnaður vegna breytinga 2012 og 2013 |
|
|
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um stofnbúnað og fastan búnað vegna breytinga á Heppuskóla fyrir árið 2012 og 2013. Bæjarráð samþykkir að veita sjö milljónum króna til viðbótar á þessu ári til stofnbúnaðarkaupa. |
| |
|
|
| 5. |
201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum |
|
|
Svörunum ásamt athugasemdum vísað til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 6. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Bæjarráð vísar tillögu Umhverfis- og skipulagsnefndar frá fundi nefndarinnar nr. 22 frá 7. mars 2012 til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 7. |
201111035 - Svar Sjávarútv. og landbúnaðarráðuneytisins til sveitarfélagsins vegna sérreglna um úthlutun byggðakvóta 2011/2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við sjávarútv.- og landbúnaðarráðuneytið vegna sérreglna um úthlutun byggðakvóta 2011/2012. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 8. |
201105020 - Umsagnir um 657. og 658. mál - stjórnun fiskveiða - gögn send í tölvupósti |
|
|
Hjalti fór yfir drög að umsögn um frumvörp nr. 657. og 658 um stjórn fiskveiða. Bæjarstjóra falið að klára umsögnina í samræmi við umræður á fundinum og senda hana á ráðuneytið.
Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir meginefni umsagnar bæjarráðs um frumvörp til breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir meginmarkmið frumvarpa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu er lúta að því að skerpa á þeim skilningi að þjóðin sé eigandi auðlindarinnar og að nýtingarrétturinn sé tímabundinn. Einnig tekur áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar undir það markmið frumvarpanna að þjóðin- eigandi auðlindarinnar - njóti afraksturs af nýtingu auðlindarinnar í meira mæli en nú er.
|
| |
|
|
| 9. |
201203091 - Ósk um umsögn á till. um þingsályktunartillögu um tímasetta áætlun um yfirfærslu heilsugæslunnar frá ríki til sveitarfélaga 220. mál- drög að svari |
|
|
Tillaga að umsögn lögð fram. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur starfsmönnum að senda hana til viðkomandi aðila. |
| |
|
|
| 10. |
201203092 - Ósk um umsögn á þingsályktunartill um heilbrigðisþjónustu í heimabyggð 120. mál drög að svari |
|
|
Tillaga að umsögn lögð fram. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur starfsmönnum að senda hana til viðkomandi aðila. |
| |
|
|
| 11. |
201204013 - Ályktun Búnaðarþings 2012 um tvöfalda búsetu |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 12. |
201204014 - Ósk um umsögn á aðalskipulagi Mýrdalshrepps |
|
|
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna umsögn og senda hana til Mýrdalshrepps. |
| |
|
|
| 13. |
201204011 - Ósk um umsögn á breytingu á reglugerð 486/2003 stjórn hreindýraveiða |
|
|
Bæjarstjóra falið að vinna tillögu að umsögn í samráði við hreindýraeftirlitsmenn á svæðinu fyrir breytingar á reglugerð 486/2003 um stjórn hreindýraveiða. |
| |
|
|
| 14. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla -fundargerð 1. verkfundar |
|
|
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Haukur Ingi gerði grein fyrir ósk verktaka um að fá að kaupa hluta af því efni sem á að kaupa árið 2013 á árinu 2012 og fá það greitt á árinu 2012. Starfmönnum falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir næsta fund.
|
| |
|
|
| 15. |
201202001 - Gamli vatnstankurinn - ósk um nýtingu |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 16. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Engar borist. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55