| 1. |
1203025F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 19 |
|
|
Ásgerður spurðist fyrir um umræður um undirbúning á byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1203026F - Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 59 |
|
|
Kom fram að sjóðurinn eigi 22,1 m.kr. skv. ársreikningi 2011. |
| |
|
|
| 3. |
1203019F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 24 |
|
|
Umræðu um fundargerð frestað til næsta fundar þar sem fundargerðin barst ekki fundarmönnum. |
| |
|
|
| 4. |
201203004 - Landsþing Samb. ísl. sveitarfélaga XXVL 23. mars 2012 |
|
|
Dreift minnisblaði dags. 28. mars 2012 um flutning verkefna frá ríki og framtíð landshlutasamtaka.
Fundargerð til kynningar.
|
| |
|
|
| 5. |
201203076 - Ársreikningur 2011 |
|
|
Sigurjón Arnarson endurskoðandi kom á fundinn undir þessum lið og fór yfirársreikninga. Helstu lykiltölur eru:
Sveitasjóður (A-hluti) Samstæða sveitarfélagsins (A og B hluti)
Rekstrarniðurstaða 98 m.kr. 137 m.kr.
Framlegð 12,1% 17,2%
Handbært fé frá rekstri 167 m.kr. 277 m.kr.
Handbært fé í árslok 208 m.kr. 208 m.kr.
Skuldir í hlutfalli við tekjur 64% 74%
Eigin fjárhlutfall 68% 64%
Veltufjárhlutfall 1,86 1,35
Bæjarráð vísar framlögðum ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2011 til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
|
| |
|
|
| 6. |
201203085 - Ástand beitar í Laxárda í Nesjum og beiðni um ítölu |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir ákvæðum III. kafla í lögum um afréttarmál, fjallskil o.fl. sem eiga við um verndun beitilands og ítölu. Vísað til atvinnu- og menningarmálefndar. |
| |
|
|
| 7. |
201203090 - Atvinnuátak 2012 |
|
|
Málinu frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 8. |
201006050 - Skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins |
|
|
Lögð fram tillaga að nýju skipuriti fyrir yfirstjórn sveitarfélagsins. Björn Ingi ítrekaði skoðun sína á mikilvægi þess að skilja að framkvæmdasvið og fjármálasvið. Hjalta falið að senda tillögur til forstöðumanna og kynna þær á almennum fundi. |
| |
|
|
| 9. |
201203060 - Ráðning í starf fræðslustjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
|
|
Árni vék af fundi undir þessum lið. Lögð fram tillaga bæjarstjóra dags. 3. apríl um að Ragnhildur Jónsdóttir verði ráðinn í starfið.
Jafnframt lagt fram bréf dags. 4. apríl, frá Magnhildi Gísladóttur með fyrirspurn og athugasemdir við ráðningarferli í stöðu fræðslustjóra sveitarfélagsins. Vísað til bæjarstjórnar.
|
| |
|
|
| 10. |
201204004 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2012 |
|
|
Hjalti fór yfir málið. Sagði að ekki væri komin endanleag niðurstaða í málum er tengjast dýpkun í Hornafjarðarhöfn. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarstjórnarfund í maí |
| |
|
|
| 11. |
201110033 - Grunnskóli Hornafjarðar - Heppuskóli endurbætur |
|
|
Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að fara yfir framlagða tillögu um innkaup á húsgögnum og tölvubúnaði í Heppuskóla og gera áætlun um heildarstofnbúnaðarþörf fyrir skólann. |
| |
|
|
| 12. |
201201017 - Siðareglur kjörinna fulltrúa og stjórnenda |
|
|
Siðareglum kjörinna fulltrúa vísað til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum. |
| |
|
|
| 13. |
201204003 - Ályktanir frá Kvenfélaginu Ósk |
|
|
Bæjarráð þakkar framkomanar ályktanir og vísar þeim til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 14. |
201204001 - Tillögur Búnaðarfélags Mýrahrepps |
|
|
Bæjarráð þakkar framkomanar ályktanir og vísar þeim til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 15. |
201202061 - Götulýsing á veitusvæði RARIK |
|
|
Starfsmönnum falið að hefja viðræður við RARIK í samræmi við framkomið erindi. |
| |
|
|
| 16. |
201203091 - Ósk um umsögn á till. um þingsályktunartillögu um tímasetta áætlun um yfirfærslu heilsugæslunnar frá ríki til sveitarfélaga 220. mál |
|
|
Bæjarstjóra falið að gera drög að umsögn og senda fundarmönnum í tölvupósti. |
| |
|
|
| 17. |
201203092 - Ósk um umsögn á þingsályktunartill um heilbrigðisþjónustu í heimabyggð 120. mál |
|
|
Bæjarstjóra falið að gera drög að umsögn og senda fundarmönnum í tölvupósti. |
| |
|
|
| 18. |
201203096 - Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða 657. mál. |
|
|
Sigurjón Arnarson og Flosi Eiríksson ( í síma ) kom á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir úttekt KPMG á frumvörpunum. Kom fram að samkvæmt þeim flytjist 640 þorskígildistonn frá Hornafirði, útgerðir þurfi að leggja fram 200 m.k.r. árlega til að leigja til sín sambærilega hludteild af kvótaþingi og veiðigjald nemi yfir 1,2 miljarði króna árlega. Bæjarstjóra falið að taka saman fyrri ályktanir bæjarráðs og bæjarstjórnar um málið og leggja grunn að nýrri ályktun fyrir næsta fund bæjarráðs |
| |
|
|
| 19. |
201203097 - Þingaályktunartillaga um nefnd til að móta stefnu um lagningu raflína í jörð |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 20. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Engar borist |
| |
|
|