Fundargerð bæjarráðs 584
584. fundur
584. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 27. mars 2012 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1203018F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 20 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um stefnu GH í sérkennslumálum. Ásgerður gerði grein fyrir stöðu mála talmeinafræðings. Stefán gerði grein fyrir kostnaði við sérfræðiþjónustu tengt skólum og félagsmálum. Björn Ingi spurðist um yfirbreiðslu sundlaugar. Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu mála, forstöðumaður íþróttamannvirkja hefur unnið að því að létta búnaðinn til að auðvelda notkun.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1203009F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 23 |
|
|
Rætt um umsókn um heimagistingu í Dyngju, Hafnarbraut 2.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
1203015F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 4 |
|
|
Fundargerð til kynningar |
| |
|
|
| 4. |
1203016F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 142 |
|
|
Rætt var um uppdælingu úr höfninni inn á Leirusvæði og þær framkvæmdir sem þarf til að undirbúa svæðið fyrir dælingu. Bæjarráð vísar tillögum hafnarstjórnar um dælingu og fjármögnun til bæjarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 5. |
201109041 - Fundargerð 795. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
|
Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 6. |
200905009 - Samningur vegna skólamáltíða |
|
|
Ásgerður upplýsti um umræður um skólamáltíðir í skóla-, íþrótta- og tómstundaráði. Starfsmanni falið að ræða við veitingaaðila um framlengingu á þeim samningi sem í gildi er og heimild er fyrir eftir síðasta útboð. |
| |
|
|
| 7. |
201101033 - List- og verknámsaðstaða á Hornafirði |
|
|
Starfsmönnum falið að gera tillögu að skipulagi í Hafnarbraut 30 þar sem rúma megi list- og verkgreinar til næstu tveggja ára á vegum grunn- og framhaldsskólans ásamt félagsmiðstöð í samræmi við niðurstöður starfshópsins. |
| |
|
|
| 8. |
201203069 - Ósk um aukinn stuðning við ferðir nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar |
|
|
Umræðu frestað þar til vinnu á vegum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálaráðs lýkur. |
| |
|
|
| 9. |
201203054 - Starfsleyfi fyrir opin leiksvæði í sveitarfélaginu - drög |
|
|
Vísað til starfsmanna. |
| |
|
|
| 10. |
200904021 - Skógeyjarsvæðið - skil á svæðinu |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 11. |
201203057 - Ósk um samstarf um söfnun brotamálma og dekkja |
|
|
Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu á samstarfinu. |
| |
|
|
| 12. |
201203063 - Drög að frumvarpi um fækkun sýslumannsembætti |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir drögum að furmvarpinu, umræður sköpuðust um málið. Samþykkt að taka það aftur fyrir á dagsskrá bæjarráðs síðar. |
| |
|
|
| 13. |
201203067 - Tilfærsla á þjónustu við aldraða til sveitarfélaga - gögn hafa verið send í tölvupósti |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 14. |
201203058 - Afsláttur til námsmanna vegna almenningssamgangna og sala farmiða |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 15. |
201203068 - Aðalfundur Sláturfélagsins Búa 2012 |
|
|
Kristjá S. Guðnason verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum. |
| |
|
|
| 16. |
201203075 - Mannlífsþáttur Rúv |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. |
| |
|
|
| 17. |
201203074 - Humarhátíð 2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Kom fram að áhugahópur óski eftir samningi við sveitarfélagið um að halda humarhátíð í sumar. Hugmyndir eru um áherslubreytingar en jafnframt aukið framlag frá sveitarfélaginu að upphæð 500 þúsund kr. Hópurinn hafi nýlega auglýst eftir verkefnisstjóra. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu. Árni áréttar að viðburðarhópur á vegum sveitarfélagsins klári þá vinnu sem hópurinn tók sér fyrir hendur.
|
| |
|
|
| 18. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 19. |
201009100 - Gamlabúð - 1. áfangi |
|
|
Starfsmönnum falið að ganga til samninga við Þingvað ehf um verkið. Björn Ingi ítrekaði skoðun sýna um að of fá salerni verði í húsinu miðað við fyrirhugaða notkun. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:30