Fundargerð bæjarráðs 583
583. fundur
583. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 19. mars 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
| 1. |
1203008F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 227 |
|
|
Hjalti vakti máls á liðum nr. 4 og 5 um málefni fatlaðs fólks og málefni nýrra íbúa. Björn Ingi spurðist fyrir um frumvarp um húsaleigubætur fyrir námsmenn. Rætt var um vinnulag vegna liða nr. 4 og 5.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
201203047 - Fundargerð 454. fundar stjórnar SASS |
|
|
Rætt var um sóknaráætlun landshluta. Einnig rætt um almenningssamgöngur á Suðurlandi.
Fudnargerð til kynningar
|
| |
|
|
| 3. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla - verksamningur |
|
|
Lögð fram drög að verksamningi við Þingvað ehf. vegna innanhúss breytinga í Heppuskóla. Framlögð drög samþykkt. Einnig lögð fram drög að sátt við Eykt ehf. vegna málsins. Bæjarráð telur 7. lið sáttarinnar er varðar trúnað, óþarfan. Bæjarstjóra falið að skrifa undir sáttinni. Starfsmönnum einnig falið að ræða við ráðgjafa um skilmála verklýsingar.
Björn Ingi tekur fram að ávalt skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og taka hagstæðasta tilboði. Það er alvarlegt mál að sveitarfélagið standi frammi fyrir því að gera samning um sátt þrátt fyrir að sérfræðingar hafi verið fengnir til að vinna skilmála verklýsingar. Að framansögðu tek ég undir eftirfarandi bókun.
Aðalfulltrúar í bæjarráði vilja undirstrika að umfjöllun bæjarráðs um tilboð sem bárust í endurbætur á Heppuskóla stenst alla skoðun ólíkt því sem lesa má úr bókunum áheyrnafulltrúa Samfylkingarinnar. Bæjarráð leggur áherslu á að megintilgangur útboðs sé að ráða til starfa verktaka sem treystir sér til að vinna verk af hendi með sem lægstum kostnaði og að honum sé treyst til verksins. Bæjarráð hefur haft góða reynslu af báðum þeim verktökum sem buðu í verkið en talsverður munur var á upphæðum tilboðanna og því ákveðið freista þess að ná samningi við lægstbjóðanda.
Árni Rúnar tekur ekki afstöðu til málsins og vísar í fyrri bókanir sínar um það í bæjarráði og bæjarstjórn.
|
| |
|
|
| 4. |
201201073 - Undirbúningur að byggingu nýs hjúkrunarheimilis |
|
|
Bæjarráð felur stjórn HSSA að taka til umræðu byggingu nýs hjúkrunarheimilis.
Bæjarráð telur mikilvægt að sveitarfélagið ráðist í forhönnun nýs hjúkrunarheimilis sem hægt er að kynna ráðuneytum og framkvæmdasjóði aldraðra. Bæjarráð telur einnig mikilvægt að við undirbúninginn hafi fulltrúar allra framboða aðkomu að málinu auk fulltrúa starfsmanna HSSA. Bygging nýs hjúkrunarheimilis er verulega aðkallandi enda núverandi heimili með fjölda fjölbýla og rými mun smærri en tíðkast víðast hvar annar staðar.
Bæjarráð hefur lýst því yfir að hvort tveggja komi til greina, að byggja hjúkrunarheimili samkvæmt svokallaðri leiguleið eða með hefðbundnum hætti með 85% framlagi ríkisins og framkvæmdasjóðs aldraða.
|
| |
|
|
| 5. |
201203043 - Ósk um ums. á útgáfu rekstarleyfis f. Jöklaveröld ehf. Hoffelli |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 6. |
201112009 - Tillaga að breytingu á mörkum Vatnajökulsþjóðgarðs á Suðursvæði - bréf Umhverfisráðuneytis til Forsætisráðuneytis um samþykki |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 7. |
201203037 - Umsókn um flutningsstyrk og húsaleigustyrk |
|
|
Erindinu hafnað. Bæjarráð vísar í samþykkt á 481. fundi bæjarráðs 28.10.2009
Bæjarráð samþykkir að fella úr gildi reglur um flutnings- og húsaleigustyrk til starfsmanna frá og með næsta fjárhagsári. Núgildandi samningar við starfsfólk haldi gildi sínu.
Bæjarráði þykir miður að eldri reglur og starfsmannastefnu um flutningsstyrk og húsaleigubætur hafi ekki verið fjarlægðar af heimasíðu sveitarfélagsins í samræmi við ofangreinda samþykkt bæjarráðs.
|
| |
|
|
| 8. |
1203045 - Umsókn um lóð úr landi Jaðars |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 9. |
201203046 - Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 10. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum um málið. |
| |
|
|
| 11. |
201103003 - Gamlabúð - tilboð í flutning |
|
|
Lagt fram tilboð í 1. áfanga Gömlubúðar, jarðvinna, flutningur og frágangur. Eitt tilboð barst í verkið. Tilboðið var 29.149.500.-, kostnaðaráætlun var 21.958.760.- Starfsmönnum falið að fara yfir tilboðið ákvörðun frestað. |
| |
|
|
| 12. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Lögð fram neðangreind svör við fyrirspurn Árna Rúnars frá fundi nr 581:
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um hlutfall starfsmanna með réttindi sem sinna kennslu við Grunnskóla Hornafjarðar og um fjölda nemenda á hvern starfsmann sem sinnir kennslu við skólann.
Fyrirspurnum svarað í samræmi við birtingu í Skólaskýrslu 2011, gefinni út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Gert í samráði við fyrirspyrjanda.
1. Hvert var hlutfall menntaðra grunnskólakennara við Grunnskóla Hornafjarðar árið 2010?
Menntaðir grunnskólakennarar í Sveitarfélaginu Hornafirði voru 75%.
2. Hvert var hlutfall menntaðra grunnskólakennara sama ár við alla grunnskóla landsins?
Menntaðir grunnskólakennarar í grunnskólum landsins voru 94%.
3. Hver var fjöldi nemenda á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu árið 2010 í Sveitarfélaginu Hornafirði?
6,3 nemendur á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
4. Hver var fjöldi nemenda á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu fyrir landið allt árið 2010?
9,2 nemendur á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu á landinu öllu.
5. Liggja fyrir tölur um sambærilega hluti og spurt er um í tl. 1 ? 4 fyrir árið 2011?
Menntaðir grunnskólakennarar, 83%
Fjöldi nemenda á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu (kennarar og skólastjórnendur) í sveitarfélaginu er 7,8.
Árni þakkaði fyrir svörin.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50