Fundargerð bæjarráðs 582
582. fundur
582. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 12. mars 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1203004F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 23 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðu á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði, alls 32. Björn Ingi spurðist fyrir um 6. lið er varðar námskeið um mat á styrkumsóknum.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1203006F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 226 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1203001F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 141 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um hvort hægt sé að koma efni út á eða út fyrir austurfjörur. Reynir gerði grein fyrir fundi með Siglingastofnun um framtíð dælinar úr höfninni. Ásgerður spurðist fyrir um aðstöðu fyrir fjarðarbáta. Reynir gerði grein fyrir aðstöðu fjarðarbáta.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
1202004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 22 |
|
|
Björn Ingi ræddi uppdælingu úr höfninni og aðgerðir til að hefta fok með bikblöndu. Taldi hann mikilvægt að hugað verði að því að hindra aðgengi barna að svæðinu. Rætt var um aukna flokkun og útfærslu á tveggjatunnu kerfi. Fram kom að áhugavert væri að gera könnun meðal íbúa um hversu mikil flokkun er í sveitarfélaginu. Fram kom að laga þarf grjótvörn við göngustíginn á vesturbakkanum við Júllatún. Rætt var um að hækka svæði við Miðbæ og ganga frá því með þökulagningu. Starfsmönnum falið að gera kostnaðaráætlun við þökulagningu á svæðinu.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 5. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla |
|
|
Bæjarráð felur starfsmönnum áframhaldandi vinnu að málinu. Árni Rúnar tekur ekki afstöðu til málsins og vísar í fyrri bókanir sínar í bæjarstjórn og bæjarráði. |
| |
|
|
| 6. |
201203017 - Samstarfssamningur milli Slökkviliðs Hornafj. og Brunavarna á Austurlandi |
|
|
Samningurinn gerir ráð fyrir að þegar kemur upp ástand vegna útkalls eða annarra lögbundinna starfa viðkomandi slökkviliða getur sá slökkviliðsstjóri sem útkallið fær, kallað á aðstoð. Bæjarráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leiti. Slökkviliðsstjóra falið að undirrita samninginn. |
| |
|
|
| 7. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón- athugasemdir sameigendafélags um Fell |
|
|
Lagt fram bréf dags. 29. febrúar 2012 undirritað af Hermanni Jónassyni, fh. stjórnar Sameigendafélagsins Fells.
Til kynningar.
|
| |
|
|
| 8. |
201203020 - Beiðni um stækkun lóðar Sandbakki 13 |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 9. |
201201003 - Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins - skýrsla |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 10. |
201203019 - Ósk um umögn á frumvarpi til breytinga á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs |
|
|
Vísað til starfsmanna. |
| |
|
|
| 11. |
201203018 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. |
|
|
Hjalti Þór Vignisson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum. |
| |
|
|
| 12. |
201203021 - Ungt fólk og lýðræði - ráðstefna |
|
|
Vísað til ungmennaráðs og skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Svör við fyrirspurn Árna Rúnars um skólamál verða lög fram á næsta fundi bæjarráðs. Kom fram að næsti bæjarstjórnarfundur verður haldinn 12. apríl n.k. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:28