Fundargerð bæjarráðs 581
581. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 5. mars 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
- Reynir Arnarson formaður
- Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
- Björn Ingi Jónsson aðalmaður
- Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
- Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
- Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
- Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
- Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1202013F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 18 |
|
Árni Rúnar spurðist fyrir um stöðu stefnumótunarvinnu fyrir HSSA. Hjalti upplýsti um hver næstu skref í þeirri vinnu verða. Fundargerð samþykkt |
| |
|
|
| 2. |
1202014F - Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 58 |
|
Fundargerð til kynningar
|
| |
|
|
| 3. |
201109041 - Fundargerð 794. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
Árni Rúnar spurðist fyrir um annan lið fundargerðarinnar er varðar verkefnisstjórnun um notendastýrða persónulega aðstoð. Málinu vísað til félagsmálaráðs.
Fundargerð til kynningar.
|
| |
|
|
| 4. |
201202058 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir veitingavagn við Jökulsárlón |
|
Lögð var fram umsókn um stöðuleyfi fyrir veitingavagn á bílastæði vestanmegin við brúna við Jökulsárlón. Lögð fram erindi frá Skipulagsstofnun og HAUST um málið. Í ljósi framlagðra gagna hafnar bæjarráð umsókninni. |
| |
|
|
| 5. |
201201056 - Fjárhagsáætlun HSSA 2012 |
|
Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2012 til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 6. |
201202062 - Miðbær,efri hæð, kynning |
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 7. |
201202061 - Götulýsing á veitusvæði RARIK |
|
Lagt fram erindi RARIK um götulýsingu á veitusvæði RARIK. Starfsmönnum falið að taka saman gögn um orkukaup síðastliðið ár m.t.t þeirra orkusparandi aðgerða sem ráðist hefur verið í að undanförnu.
Til kynningar að öðru leiti.
|
| |
|
|
| 8. |
201203001 - Ósk um ums. á frumvarpi til laga um sveitarstjórnarlög 258. mál |
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 9. |
201203004 - Landsþing Samb. ísl. sveitarfélaga XXVL 23. mars 2012 |
|
Einn fulltrúi frá meirihluta fer á þingið og einn fulltrúi Sjálfstæðismanna. Til kynningar.
|
| |
|
|
| 10. |
201203007 - Ósk um launað námsleyfi |
|
Lögð fram ósk um launað námsleyfi. Bæjarráð hafnar óskinni.
|
| |
|
|
| 11. |
201201074 - Tilboð í endurbætur innanhúss í Heppuskóla |
|
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið og Kristján Guðnason kom inn á fundinn í hennar stað. Lögð fram tilboð og greinargerð með tillögu um að gengið verði til samninga við lægstbjóðandi Þingvað ehf. í verkið Heppuskóli - endurbætur innanhúss, Víkurbraut 9, Höfn. Einnig lagt fram erindi frá LOGOS f.h. EYKTAR frá 1. mars, þar sem skorað er á Sveitarfélagið Hornafjörð að framkvæma útboð í samræmi við útboðs- og verkskilmála. Fram kom að tvö tilboð bárust í verkið, frá Eykt ehf kr. 204.992.035.- og frá Þingvaði ehf. kr. 186.557.712.- Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga til samninga við Þingvað ehf. Árni Rúnar tekur ekki afstöðu til málsins og vísar allri ábyrgð á bæjarráð.
|
| |
|
|
| 12. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
Lögð fram svör fyrir fyrirspurnum frá síðasta fundi er varðar upplýsingar um snjómokstur og um Knatthúsið.
Samantekt um heildarkostnað vegna snjómoksturs síðustu mánuði er samtals. 1.888.280.- Nánar hér.
Svör við fyrirspurn um knatthús má finna hér.
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um hlutfall starfsmanna með réttindi sem sinna kennslu við Grunnskóla Hornafjarðar og um fjölda nemenda á hvern starfsmann sem sinnir kennslu við skólann.
1. Hvert var hlutfall menntaðra grunnskólakennara við Grunnskóla Hornafjarðar árið 2010?
2. Hvert var hlutfall menntaðra grunnskólakennara sama ár við alla grunnskóla landsins?
3. Hver var fjöldi nemenda á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu árið 2010 í Sveitarfélaginu Hornafirði?
4. Hver var fjöldi nemenda á hvert stöðugildi starfsfólks við kennslu fyrir landið allt áríð 2010?
5. Liggja fyrir tölur um sambærilega hluti og spurt er um í tl. 1 ? 4 fyrir árið 2011?
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15