Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 233
233. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 11. desember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Almannavarnanefnd Hornafjarðar 25. fundur 3. desember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 54. fundur 20.október 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 55. fundur 4. desember 2003.
Bæjarráð beinir því til framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að gerð verði úttekt á ástandi gólfs í íþróttahúsi og kannað hvað endurnýjun þess kostar.
Fundargerð samþykkt.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 40. fundur 10. desember 2003.
Rætt var um bréf frá Vegagerðinni dags. 10. des. sl. þar sem m.a. er rætt um grjótnám við gerð varnargarða við Jökulsá.
Bæjarráð heimilar grjótnám vestan við Hlíðará.
Fundargerð samþykkt.
• Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga 708. fundur 16. nóvember 2003 til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Lagt var fram heildaryfirlit yfir rekstur og framkvæmdir sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja 2004. Í þessu yfirliti hefur verið tekið tillit til athugasemda sem gerðar hafa verið frá fyrri umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð heimilar faglega úttekt á leikskólum kr. 730.000 og danskennslu í Nesjaskóla kr. 300.000. Kostnaður verður tekinn af óráðstöfuðu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita samstarfs við Knd. Sindra um byggingu gervigrasvallar komi til þess að styrkur fáist frá KSÍ til verkefnisins og vísar til minnisblaðs bæjarstjóra dags. 11.des 2003.
Yfirlitið sýnir að heildartekjur bæjarsjóðs og tengdra fyrirtækja eru áætlaðar tæpl. 1,2 milljarður og heildargjöld tæpl. 1,3 milljarður. Niðurstaðan er því neikvæð um tæpar 100 milljónir kr.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og tengdra fyrirtækja ársins 2004 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Kynnt var fjárhagsáætlun Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands 2004 en hún verður tekin fyrir á fundi heilbrigðis- og öldrunarráðs síðar í dag.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að áætluninni verði vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn á fundi í heilbrigðis- og öldrunarráði.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um Norræna sveitarstjórnarráðstefnu á Hótel Nordica 13.-15. júní 2004 og tölvubréf um kostnað þátttakenda dags. 5. desember 2003.
Til kynningar.
• Bréf Íbúðalánasjóðs ódags. tilkynning um viðbótarlán.
Til kynningar.
• Bréf Umhverfisstofnunar dags. 4. desember 2003 vegna skertrar endurgreiðslu fyrir refa- og minkaveiðar.
Bæjarráð Hornafjarðar gagnrýnir harðlega að ríkið skerði endurgreiðsluhlutfall vegna refa- og minkaveiða til sveitarfélaga úr 50% í 30% á sama tíma og stofnarnir virðast vera í vexti og valda síauknu tjóni.
Skerðingin nú þýðir aukinn kostnað sveitarfélagsins upp á kr. 508.096.
4. Önnur mál
Inga Jóna kynnti afrit af bréfi sem Vökull Stéttarfélag sendi sýslumanni þar sem þess er farið á leit að hann skipi oddamann í sáttanefnd, en nefndin er skipuð þegar ágreiningur er um túlkun kjarasamnings á milli Sveitarfélagsins og Vökuls.
Bæjarráð skipar Halldóru B. Jónsdóttur fulltrúa sveitarfélagsins í sáttanefndinni og leitað verður aðstoðar Sambands íslenskra sveitarfélaga með tilnefningu annars fulltrúa.
Fundi slitið kl. 11:45


