Fundargerð bæjarráðs 580
580. fundur
580. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 27. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1202009F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 22 |
|
|
Rætt var um ábendingar um fjallskil. Hjalti upplýsti um umræður á fundinum. Gerði hann grein fyrir því að samþykktin verði send til umsagnar Búnaðarsambands A-Skaft. Rætt var um notkun á gamla vatnstanknum undir veitingarekstur. Björn Ingi áréttar að vandað verði til verka við afgreiðslu málsins. Rætt var um úthlutaða styrki.
|
| |
|
|
| 2. |
201111076 - Flutningur á Gömlu Búð |
|
|
Lagt fram bréf frá Húsafriðunarnefnd dags. 21. febrúar 2012. Þar kemur fram að ekki eru gerðar athugasemdir við breytingar frá fyrri umsögn nefndarinnar. Hjalti gerði grein fyrir drögum að samningi milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vatnajökulsþjóðgarðs um leigu á Gömlubúð. Fram kom að samningurinn er til 10 ára. Engar athugasemdir voru gerðar við framlögð drög. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningnum. |
| |
|
|
| 3. |
201202051 - Umsókn um tækifærisleyfi fyrir Lionsklúbb Hornafjarðar |
|
|
Ekki er gerð athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 4. |
201202049 - Umsókn um tækifærisleyfi |
|
|
Ekki er gerð athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 5. |
201202048 - Umsókn um tækifærisleyfi |
|
|
Ekki er gerð athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 6. |
200806037 - Fjarskiptafélag Öræfinga |
|
|
Lögð fram drög að samningi við Fjarskiptafélag Öræfinga um yfirtöku sveitarfélagsins á fjarskiptakerfinu. Fyrir liggur samningur við Vodafone og Rarik um málið. Starfsmönnum falið að undirbúa yfirtöku reksturs, viðhalds og eftirlits á fjarskiptakerfi í Öræfum. Þá er starfsmönnum falið að kanna kosti þess að sameina FÖ og Gagnaveitu Hornafjarðar. |
| |
|
|
| 7. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla |
|
|
Lögð fram tilboð í endurbætur innanhúss í Heppuskóla en tilboð voru opnuð kl. 14.00 í dag. Kostnaðaráætlun fyrir verkið er 220.851.383.-. Fram kom að tvö tilboð bárust í verkið, frá Eykt ehf kr. 204.992.035.- og frá Þingvaði ehf kr. 186.557.712.- . Starfsmönnum falið að yfirfara tilboðin og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs. |
| |
|
|
| 8. |
201008024 - Æfingasvæði fyrir skotveiðimenn |
|
|
Reynir vék af fundi undir þessum lið.
Lögð fram umsókn frá Skotveiðifélagi Hornafjarðar. Bæjarráð tekur jákvætt í málið. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
|
| |
|
|
| 9. |
201109078 - Girðingamál og ágangur hreindýra á Mýrum |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Umhverfisstofnun og Náttúrustofu Austurlands. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 10. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Hjalti vék af fundi. Jón Kristján kom inn á fundinn undir þessum lið.
Stefán og Jón Kristján gerðu grein fyrir málinu. Lagðar til breytingar á svarbréfi. Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að undirrita bréfið með áorðnum breytingum.
|
| |
|
|
| 11. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Lögð fram svör við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingar á 579. fundi um kostnaðarþátttöku ungmenna í ferðum á vegum stofnana sveitarfélagsins.
Svör við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar á 579. fundi bæjarráðs um kostnaðarþátttöku ungmenna í ferðum á vegum stofnana sveitarfélagsins.
Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir skýr og greinargóð svör. Ljóst er að þátttaka í öllum þeim ferðum, sem í boði eru á vegum stofnana sveitarfélagsins fyrir ungmenni á grunnskólaaldri, felur í sér töluverðan kostnað fyrir þátttakendur. Sem dæmi má nefna að ef einstaklingur tekur þátt í öllum þeim ferðum sem í boði eru fyrir ungmenni í 6. - 10. bekk þá er heildarkostnaðurinn fyrir hvern einstakling rúmar 140.000 kr. Þessi mikli kostnaður og erfitt efnahagsástand kalla á athugun hjá skóla, íþrótta- og tómstundanefnd á því hvort æskilegt sé að þessum ferðum verði fækkað.
Árni Rúnar Þorvaldsson fram eftirfarandi fyrirspurn um knatthús:
1. Hefur einhver athugun verið gerð á því hvort að móttaka á knatthúsi undir Garðshól í formi gjafar frá Skinney ? Þinganesi feli í sér aukinn rekstrarkostnað hjá sveitarfélaginu?
2. Í ljósi þess að um opinbert húsnæði verður að ræða eftir að sveitarfélagið hefur tekið við gjöfinni, þá er spurt hvort að einhver könnun hafi verið gerð á því hvort að um framkvæmdina eigi að gilda þau lög og þær reglur sem um opinberar framkvæmdir gilda?
Fyrirspurninni svarað á næsta fundi bæjarráðs.
Björn Ingi ítrekaði fyrirspurn um kostnað við snjómokstur.
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10