| 1. |
1202003F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 225 |
|
Björn Ingi fagnar því að fundargerðin greini frá ákvörðun um úthlutun leiguíbúða. Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1202008F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 19 |
|
Árni Rúnar vék af fundi undir fyrstu fimm liðum fundargerðarinnar. Stefán gerði grein fyrir stefnumótunarvinnu um æskulíðs-, íþrótta- og tómstundamál.
Árni taldi mikilvægt að mótuð yrði heildstæð stefna fyrir sveitarfélagið í málefnum nýrra Íslendinga. Ekki sé nóg að móta stefnu fyrir grunnskólann heldur er mikilvægt að allar stofnanir sveitarfélagsins séu meðvitaðar um þennan málaflokk. Árni sagði góðan grunn fyrir þessa vinnu vera að finna í fjölskyldustefnu sveitarfélagsins. Bæjarráð tekur undir orð Árna Rúnars og óskar eftir því að félagsmálaráð taki málefni nýrra Íslendinga fyrir á fundi. Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
201111076 - Flutningur á Gömlu Búð |
|
Pétur Ármansson kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir gögnum er varðar flutning á Gömlubúð. Gerði hann grein fyrir skipulagi hússins og frágangi utandyra. Búið er að fara ítarlega yfir virkni hússins. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að bjóða fyrsta áfanga verksins út sem felst í jarðvinnu, uppsteypu á kjallara, flutningi og frágangi á núverandi svæði.
|
| |
|
|
| 4. |
201202038 - Beiðni um aðgang að örnefnum sveitarfélagsins |
|
Lagt fram bréf frá Landmælingum Íslands dags. 14. febrúar vegna uppbyggingar gagnagrunns um örnefni. Bæjarráð sammála um að veita aðgang að gögnum um örnefni sem safnað hefur í sveitarfélaginu. |
| |
|
|
| 5. |
201201046 - Reglur vegna heimaþjónustudeildar |
|
Jón Kristján gerði grein fyrir málinu. Björn Ingi ræddi viðauka með bréfi og samningi. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur. Starfsmönnum falið að ljúka málinu í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum. |
| |
|
|
| 6. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Rætt var um framlögð gögn. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 7. |
201202036 - Umsókn um stofnun fasteignarinnar Ás |
|
Samþykkt að vísa umsókn til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 8. |
201202035 - Ósk um leyfi til stofnunar fasteignar (lóðar) v. íbúðarhúss í Bjarnanesi |
|
Samþykkt að vísa umsókn til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 9. |
201202033 - Breytingar á stjórnsýslu sveitarfélagsins |
|
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um ráðningu fræðslustjóra. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um að auglýsa eftir fræðslustjóra í stað fráfarandi framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs.
Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar gerir ekki athugasemdir við að auglýst verði eftir fræðslustjóra á þessum tímapunkti. Aftur á móti er áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar ósammála meirihlutanum um að þessi aukni stuðningur á fræðslusviðinu kalli ekki á endurskoðun á stjórnunaruppbyggingu þeirra stofnana sem munu heyra undir hinn nýja fræðslustjóra.
Lagt fram tilboð frá Skyggni ehf um stefnumótun fyrir ráðhús Hornafjarðar dags. 8. febrúar 2012. Bæjarráð hafnar tilboði Skyggnis. Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
|
| |
|
|
| 10. |
201202039 - Íbúaþing um heilsueflandi lífsstíl |
|
Bæjarráð vísar málinu til viðkomandi nefnda.
|
| |
|
|
| 11. |
201201059 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis (gisting fl. I) fyrir Bakka |
|
Engar athugasemdir gerðar.
|
| |
|
|
| 12. |
201202027 - Samráð með sjóðvali |
|
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna en hyggst ekki ráðast í verkefni þar sem aðferðin verði notuð á næstu misserum.
|
| |
|
|
| 13. |
200806010 - Erindisbréf Skóla- íþrótta- og tómstundanefndar - endurskoðun |
|
Vísað til bæjarstjórnar |
| |
|
|
| 14. |
200806010 - Erindisbréf Ungmennaráðs Hornafjarðar - endurskoðun |
|
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið. Björn Ingi velti því upp hvernig greiðslur til fulltrúa ráðsins hafi farið fram og hversu margir fundir ráðið stendur fyrir á ári. Starfsmanni falið að gera breytingar á erindisbréfinu í samræmi við ábendingar sem fram komu á fundinum. Erindisbréfinu vísað bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 15. |
200810037 - Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins - endurskoðun |
|
Rætt var um drög að jafnréttisáætlun. Fram kom að ræða þarf sérstaklega um uppröðun á lista og skipan í nefndir. Vísað til bæjarstjórnar |
| |
|
|
| 16. |
201202041 - Skólamáltíðir - tilboð |
|
Málinu vísað til starfsmanna. Þeim falið að leggja málið fyrir skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, skólastjóra og skólaráð.
|
| |
|
|
| 17. |
200904063 - Samningur um reiðskemmu að Stekkhól |
|
Bæjarráð gekk frá samningi við Hestamannafélagið fyrir sitt leyti með fjárframlagi að allt að 4 m.kr. og yfirtöku á láni sem áhvílandi er á reiðskemmu gegn því að eignarhald reiðskemmunnar utan hesthúss verði sveitarfélagsins. Bæjarstjóra veitt umboð til að ljúka málum við félagið út frá ofangreindum forsendum. |
| |
|
|
| 18. |
201201063 - Afnotasamningur um afnot af eyjum og fjörum í eigu sveitarfélagsins í tengslum við ferðaþjónustu |
|
Bæjarstjóra falið að ljúka málinu.
|
| |
|
|
| 19. |
201101058 - Humarhátíð 2012 |
|
Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við áhugahóp um Humarhátíð, heyra viðhorf þeirra til framkvæmdarinnar og aðkomu sveitarfélagsins. Jafnframt er bæjarstjóra falið að stilla upp samningi við hópinn og leggja fyrir bæjarráð.
|
| |
|
|
| 20. |
201202040 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar að Lindarbakka |
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 21. |
201202044 - Aukið starfshlutfall vegna búsetuþjónustu við fatlaða |
|
Jón Kristján gerði grein fyrir uppbyggingu þjónustu við málefni fatlaðra til að hægt sé að meta einstaklinga á grunni SÍS mats. Bæjarráð samþykkir framlagða ósk.
|
| |
|
|
| 22. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
Lögð fram eftirfarrandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um ferðalög fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri hjá stofnunum á vegum sveitarfélagsins
1. Hvað standa börnum og unglingum á grunnskólaaldri margar ferðir til boða á yfirstandandi vetri hjá stofnunum á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar?
2. Hver er áætluð kostnaðarþátttaka einstaklings í hverri ferð?
Hjalti óskaði eftir því að bæjarstjórnarfundur verði haldi 8. mars nk. Samþykkt samhljóða.
Björn Ingi spurðist fyrir um fjármagn sem Ríki Vatnajökulsfékk og hvernig því var ráðstafað. Vakti hann máls á akstri ungra ökumanna á óskráðum ökutækjum á göngustígum og götum innan bæjarmarka, hvernig hægt væri að sporna við þessum vanda.
|
| |
|
|