Fundargerð bæjarráðs 576
576. fundur
576. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 30. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1201007F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 224 |
|
|
Ásgerður lagði til að sveitarfélagið hugi að því að kaupa bifreið sem geti flutt einstaklinga í hjólastól. Bæjarráð sammála um að kannaðir verði valkosti í bifreiðamálum með það að leiðarljósi að uppfylla kröfur um aðgengi fyrir alla. |
| |
|
|
| 2. |
1201011F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 17 |
|
|
Guðrún fagnaði ráðningu á læknis á Höfn, einnig lísti hún yfir ánægju sinni með sameiningu sjúkraskráa milli HSSA og HSU. Björn Ingi spurðist fyrir um stefnumótun HSSA og stöðu hennar. Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins. Rætt var um fjárhagsáætlun fyrir HSSA fyrir árið 2012. Rætt var um þjónustusamning milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Ríkisins um rekstur HSSA. Björn Ingi taldi mikilvægt að kjörnir fulltrúar komi að gerð samningsins. |
| |
|
|
| 3. |
200806025 - Samþykkt um stjórn og fundarsköp |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir endurskoðuðum drögum að samþykkt um stjórn, stjórnsýslu og fundarsköp fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Bæjarráð er sammála um að leita eftir umsögn Innanríkisráðuneytisins. |
| |
|
|
| 4. |
201201060 - Stjórnsýsla Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaði um nýtt skipurit fyrir stjórnsýslu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Talsverðar umræður sköpuðut um innihald minnisblaðsins. Bæjarráð mun halda sérstakan vinnufund um málið í febrúar. |
| |
|
|
| 5. |
200810037 - Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins- tilmæli Jafnréttisstofu um endurskoðun |
|
|
Bréfinu vísað til félagsmálaráðs. |
| |
|
|
| 6. |
201201062 - Óleyfisframkvæmdir á lóð - ákvörðun dagsekta |
|
|
Bæjarráð felur starfsmönnum að fylgja málinu eftir. Dagsektir verða 20.000.- kr. |
| |
|
|
| 7. |
201201059 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis (gisting fl. II) fyrir Bakka |
|
|
Málinu vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 8. |
201005046 - Deiliskipulag Fells - ósk eftir fresti til að koma að athugasemdum vegna fyrirhugaðs deiliskipulags |
|
|
Lagt fram bréf frá lögfræðingi landeigendafélags Fells þar sem óskað var eftir fresti til 1. mars n.k til að koma að athugasemdum við fyrirhugað deiliskipulag við Jökulsárlón. Bæjarráð sammála um að veita frest til 1. mars n.k. |
| |
|
|
| 9. |
201201057 - Kynningarfundur 24. jan. 2012 um gönguleiðir og áningarstaði og samspil við önnur verkefni |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 10. |
201009005 - Skilti og nafnabreytingar - Uppsalir 1 og 2- umsögn Vegagerðarinnar til Innanríkisráðuneytisins um kæru vegna vegvísis |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 11. |
201201063 - Ósk um aðgengi að landi í eigu sveitarfélagsins í tengslum við ferðaþjónustu |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu, um er að ræða ósk um aðgengi að landi ásamt nokkrum eyjum. Bæjarráð sammála um að hefja viðræður við viðkomandi aðila um afnotasamning á umræddu landi. |
| |
|
|
| 12. |
201112030 - Kaþólska kirkjan á Íslandi - tilboð í Hafnarbraut 40 |
|
|
Reynir lagði til að tilboð frá Kaþólsku kirkjunni á Íslandi verði tekið fyrir á fundinum.
Lagt fram tilboð í Hafnarbraut 40 frá Kaþólsku kirkjunni á Íslandi. Tilboðið hljóðar upp á 17,9 m.kr. Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð og felur bæjarstjóra að ljúka málinu. |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45