| 1. |
1201006F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 21 |
|
|
Björn Ingi spurði um framvinduskýrslu sem kynnt var á fundinum. Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins. Árni ræddi um skipan fulltrúa í Menningarráð Suðurlands. Bæjarráð telur mikilvægt að sveitarfélagið eigi fulltrúa í Menningarráði Suðurlands.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1201008F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 18 |
|
|
Stefán greindi frá ákvörðun sinni um lok starfs sem framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs. Hjalti upplýsti um þá vinnu sem nú er í gangi um endurskipulagningu á stjórnskipulagi innan ráðhússins er varðar skólamál. Árni spurði hvort endurskipulagning næði út fyrir ráðhúsið, þ.e inn í skólana. Hjalti sagði að verið væri að horfa á endurskipulagningu innan ráðhússins. Björn Ingi spurði hvort ástæða væri til að skoða breytingar með það fyrir augum að fela skólastjórnendum aukin verkefni. Hjalti ræddi mikilvægi þess að hafa gott utanumhald um málefni skólanna innan stjórnsýslunnar. Björn Ingi spurðist fyrir um starfsemi leikskóla á milli 16:00 - 17:00 og hvernig hafi gengið að ráða inn starfsfólk fyrir þann tíma. Stefán sagði að erfitt hafi verið að fá fólk til að starfa á þessum tíma. Björn Ingi taldi mikilvægt að á þessu verði fundin lausn sem tryggi sömu opnun á báðum leikskólunum sem fyrst. Árni taldi mikilvægt að tryggt verði að sami opnunartími verði á báðum leikskólunum. Árni óskaði eftir upplýsingum sem fram koma í skólamálaskýrslu sambands íslenskra sveitarfélaga um skóla sveitarfélagsins. Taldi hann mikilvægt að bæjarfulltrúar verði upplýstir um málefni skólanna í samanburði við aðra skóla í landinu.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
201110010 - Fundargerðir stjórnar suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
200706010 - Fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir hugmynd að nýrri fjallskilasamþykkt. Björn Ingi spurðist fyrir um hvort drög að nýrri samþykkt falli að gildandi lögum. Hjalti gerði grein fyrir því að drögin hafi fengið yfirlestur frá Ólafi Dýrmundssyni hjá bændasamtökunum. Ekki hafi komið fram stórvægilegar athugasemdir en drögin væru enn í skoðun. Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 5. |
201201041 - Fjarskiptaþjónusta fyrir sveitarfélagið - tilboð |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir útboðum. Starfsmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda fyrir sveitarfélagið og tengdar stofnanir. Tilboð bárust frá Fjarskiptum ehf og Símanum hf. Síminn var lægri með 2.353.391,78.- |
| |
|
|
| 6. |
201010066 - Húsaleigusamningur v. líkamsræktarst. Álaugareyjarvegi 7 - ósk um hækkun á leiguverði |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir ósk húseigenda að Álaugareyjarveg 7 um mögulega hækkun á leiguverði. Bæjarstjóra veitt heimild til að ganga til samninga við húseigendur á grundvelli gagna sem lögð voru fram á fundinum. |
| |
|
|
| 7. |
201201040 - Framkvæmdir 2013 |
|
|
Haukur Ingi fór yfir langtímaframkvæmdaáætlun, greiðslu- og tekjuáætlun og drög að tíma- og verkáætlun fyrir fjárhagsáætlun. Bæjarráð sammála um að taka framkvæmdir aftur á dagsskrá bæjarráðs á næstu fundum. Bæjarráð óskar eftir því að fá skjölin sem farið var yfir á fundinum send í tölvupósti. |
| |
|
|
| 8. |
201111076 - Flutningur á Gömlu Búð |
|
|
Lagðar fram teikningar um staðsetningu Gömlubúðar og skipulagi innanhúss. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við Vatnajökulsþjóðgarð. Rætt um stækkun á kjallara neðanjarðar. Starfsmönnum falið að ljúka við gerð útboðsganga vegna flutnings hússins og leggja fyrir bæjarráð. Bæjarstjóra falið að vinna drög að leigusamningi með Vatnajökulsþjóðgarði. |
| |
|
|
| 9. |
201201043 - Fráveita í Álaugarey |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir viðræðum við Skinney Þinganes og Sláturfélagið Búa um yfirtöku á fráveitukerfi í eigu fyrirtækjanna. Bæjarráð felur starfsmönnum að ljúka við samninga á grunni framlagðra ganga og áætlun um úrbætur fyrirtækjanna um hreinsun skólps í samræmi við kröfur HAUST. |
| |
|
|
| 10. |
201112021 - Ósk um að taka Hafnarbraut 25 á leigu |
|
|
Lögð fram ósk BB prentunar og myndvers um leigu á Hafnarbraut 25. Bæjarráð hafnar erindinu. |
| |
|
|
| 11. |
201201049 - Ferill dagsekta vegna - úrræði byggingafulltrúa |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir ferli dagsekta vegna úrræða byggingarfulltrúa. Bæjarráð samþykkir ferlið. |
| |
|
|
| 12. |
201201024 - Beiðni um leyfi til landskipta á Lindarbakka |
|
|
Samþykkt. |
| |
|
|
| 13. |
201201051 - Hafnarnes - leiga á landsspildu |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Lagði hann til að beitiland umhverfis Hafnarnes verði í framtíðinni leigt til eigenda Hafnarness hverju sinni, óski hann þess. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu. |
| |
|
|
| 14. |
201109078 - Girðingamál og ágangur hreindýra á Mýrum - athugasemdir dýraverndunarráðs |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 15. |
1201052 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 6 |
|
|
Bæjarráð fangar framkominni umsókn. Samþykkt. |
| |
|
|
| 16. |
201112030 - Kaþólski söfnuðurinn á Höfn |
|
|
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.
Lagt fram kauptilboð í Hafnarbraut 40, samtals upphæð 17.500.000.- kr. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 17. |
201111035 - Umsókn um byggðakvóta 2011/2012 |
|
|
Rætt var um mismunandi leiðir til að úthluta byggðakvóta 2011/2012.
Björn Ingi lagði fram eftirfarandi hugmyndir að breytingum á reglum.
1 Tökum 30% af heildar úthlutun okkar á byggðakvóta (86tonn) og deilum honum jafnt niður á alla sem uppfylla skilyrði 1.gr. Því sem eftir er er síðan skipt á milli báta samkvæmt 4.gr.
2 Horfið verð frá því að leggja þurfi tonn á móti hverju tonni byggðakvóta til vinnslu
Með þessu fjöldi þeirra sem geta sótt um byggðakvóta um 20 til 30 bátar/skip 30% er um 25 tonn svo allir fá því eitthvað. Með þessu þá eru umtalsvert fleiri sem eiga möguleika á að fá vinnu út á þetta. Ég vil alls ekki gera lítið úr vinnslu í landi tel ég að hún fái góðan skerf með þessari aðferð. Það er ekki síður mikilvægt að sem flestir sjómenn getir notið góðs af þessu einnig, þeir eru líka íbúar í byggðalaginu.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því að falla frá hluta 6. greinar er varðar skyldu um að landa til vinnslu tvöföldu magni þess aflamarks sem úthluað er. |
| |
|
|
| 18. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|