| 1. |
1201003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 20 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við landeigendur Fells vegna deiliskipulags við Jökulsárlón. Árni spurðist fyrir um athugasemdir sem bárust vegna deiliskipulags í Stafafellsfjöllum. Haukur gerði grein fyrir því að málið væri nú í vinnslu byggingarfulltrúa og landeigenda, verið er að greina athugasemdir og undirbúa svör við þeim. Rætt var um feril dagssekta, samþykkt að taka málið fyrir á næsta fundi bæjarráðs. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
201111066 - Styrkir - umsóknir 2012 til afgreiðslu |
|
|
Rætt um úthlutun styrkja bæjarráðs fyrir árið 2012. Eftirfarandi samþykkt:
Björgunarsveitin Kári............................................................. 300.000
Félagsstarf aldraðra í Öræfum................................................. 100.000
Skógræktarfélag A-Skaft....................................................... 300.000
Framhaldsskólinn í A-Skaft..................................................... 150.000
Landgræðsla ríkisins.............................................................. 80.000
Legóhópurinn ..................................................................... 350.000 |
| |
|
|
| 3. |
201201016 - Staða bæjarsjóðs 30. nóvember 2011 |
|
|
Lögð fram staða fyrir lok nóvember. Engar athugasemdir gerðar. |
| |
|
|
| 4. |
201201021 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við lögfræðing KPMG um reglurnar. Bæjarráð samþykkir framlögð drög. |
| |
|
|
| 5. |
201201017 - Siðareglur kjörinna fulltrúa og stjórnenda |
|
|
Lögð fram drög að siðareglum. Bæjarráð samþykkir að vísa þeim til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu með áorðnum breytingum. |
| |
|
|
| 6. |
201111035 - Umsókn um byggðakvóta 2011/2012 |
|
|
Hinrik Greipsson, starfsmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, var á fundinum undir þessum lið í síma. Eftir afgreiðslu bæjarráðs á síðasta fundi bárust athugasemdir við reglur ráðuneytisins. Kom fram í máli Hinriks almenn málsmeðferð við úthlutun byggðakvóta út frá reglum ráðuneytisins. Í máli hans kom fram að við úthlutun byggðakvóta þessa árs sé lögð áhersla á að afli verði unnin í viðkomandi byggðarlögum. Ráðuneytið geti hugsanlega vikið frá þessari reglu ef ekki er vinnsla í byggðarlagi og þá með áherslu á að aflinn verði unnin í nágrannasveitarfélagi. Björn Ingi taldi mikilvægt að óskað verði eftir undanþágu frá reglu um tonn á móti tonni. Reynir benti á að byggðakvóta er úthlutað vegna samdráttar aflaheimilda undanfarin ár með það að markmiði að bæta sveitarfélögum upp samdrátt í tekjum vegna þess. Bæjarráð sammála um að skoða málið betur og taka fyrir á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
| 7. |
201201020 - Búnaður og mönnun í áhaldahúsi |
|
|
Á 573 fundi bæjarráðs lagði Björn Ingi Jónsson fram fyrirspurn um hálkuvarnir og snjómokstur. Svör við spurningum hans eru sem hér segir:
Hvernig var og er staðið að snjómokstri og í framhaldinu hálkuvörnum í bænum. ?
Áhaldahúsið sinnir snjómokstri og hálkuvörnum að öllu jöfnu á götum í bænum, verktaki ( Bjarni Hákonarson ) sinnir snjómokstri og hálkuvörnum á gangstéttum að beðni framkvæmdasviðs/Áhaldahúss. Ef talin er þörf á utanaðkomandi aðstoðar við snjómokstur og hálkuvarnir er kallað eftir því, nú síðast hefur Vegagerðin komið að verkinu ásamt Jóni Pálssyni að hluta.
Hvaða upphæð hefur verið eitt í þetta á síðustu mánuðum skipt niður á mánuði ?
Reikningar vegna hálkuvarna og snjómoksturs liggja ekki fyrir en verða lagðir fram síðar.
Hvaða tæki hafa verið notuð í þetta ?
Tæki og tól Áhaldahússins, dráttarvélar (Case og Zetor), grafa og sturtuvagnar. Jafnframt er vísað í framlagt minnisblað dags. 10. janúar um tæki og búnað í áhaldahúsinu þar sem kemur fram að þörf er á endurskoðun í þeim málum.
Hvaða verktakar hafa verið í þessu ?
Bjarni Hákonar ( gangstéttir ) Vegagerðin aðstoð, Jón Pálsson aðstoð
Hvaða skipulag og regla er á hvað og hvar skal hálkuverja ?
Stofnbrautir, umhverfis HSSA, skólar, sjúkrabíll, fjölfarin gatnamót, brekkur ( Fiskhóll, Hólabraut, Hrísbraut, Hafnarbraut, o.fl )hafa forgang á snjómokstur og hálkuvarnir, aðrir staðir eru settir í forgang nr. 2.
Jafnframt lagt fram minnisblað dags. 10. janúar 2012 um mönnun og búnað í áhaldahúsi.
Björn Ingi lagði til að gerður verði samningur við verktaka um snjómokstur, hálkuvarnir og hreinsun gatna.
Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir skipulag við hálkuvarnir og snjómokstur á grunni framlagðs minnisblaðs. |
| |
|
|
| 8. |
200806025 - Samþykkt um stjórn og fundarsköp |
|
|
Lögð fram drög dags. 10. janúar sl. sem yfirfarin voru af lögfræðingum sambands sveitarfélaga. Bæjarráð samála um að vísa málinu til áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum og taka málið fyrir á fundi bæjarráðs 30. janúar. 2012 |
| |
|
|
| 9. |
201201018 - Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis v. Góuhófs í Hofgarði |
|
|
Engar athugasemdir. |
| |
|
|
| 10. |
201104038 - Fráveita frá tjaldsvæði - útboð gögn send út í tölvupósti |
|
|
Starfsmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Lægstbjóðandi var JP - Vélar, tilboð upp á 5.556.237.- kr. sem var 53% af kostnaðaráætlun. Björn Ingi spurðist fyrir um hvort eðlilegra hefði verið að fjalla um þessi tilboð í Hafnarstjórn. |
| |
|
|
| 11. |
201201023 - Fráveita í Nesjahverfi - útboð gögn send út í tölvupósti |
|
|
Starfsmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Lægstbjóðandi var Ólafur Halldórsson, tilboð upp á 10.241.781.- kr. sem var 79% af kostnaðaráætlun. |
| |
|
|
| 12. |
201201019 - Hækkun fargjalda í innanlandsflugi |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum nokkurra bæjarstjóra á landinu. Jafnframt rætt um breytingar á tímasetningu áætlunarflugs. Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með stjórnendum Flugfélagsins Ernis. Rætt var um strætó samgöngur milli Hornafjarðar og Reykjavíkur. |
| |
|
|
| 13. |
201201003 - Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins - gátlisti og umræðuskjal |
|
|
Lagt fram skjal með athugsemdum. Rætt var um hugmyndir að yfirtöku ýmissa verkefna sveitarfélag frá ríki. |
| |
|
|
| 14. |
201201022 - Varðar umferðaröryggi og snjóhreinsun |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 15. |
201101058 - Samantekt starfshóps vegna hátíða og viðburða |
|
|
Lögð fram skýrsla starfshóps um hátíðir á Hornafirði. Bæjarráð fagnar framkominni áfangaskýrslu og felur hópnum að vinna áfram að málinu. Í skýrslunni kemur fram að boðað verði til íbúafundar vegna framtíðar Humarhátíðar 31. janúar n.k. |
| |
|
|
| 16. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|