Fundargerð bæjarráðs 573
573. fundur
573. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 9. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, famkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201109041 - Fundargerð792. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
|
Stefán benti á umræðu um skólamál. Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 2. |
201110029 - Grunnskóli Hornafjarðar - Heppuskóli, útboð vegna endurbóta |
|
|
Stefán gerði grein fyrir útboðsgögnum. Rætt var um dagssektir, verðlagsgrundvöll og fyrirkomulag auglýsingar útboðs. Starfsmönnum falið að lagfæra útboðsgögn í samræmi við umræður á fundinum og auglýsa útboð. |
| |
|
|
| 3. |
200904063 - Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings - samningar vegna reiðskemmu |
|
|
Lagt fram minnisblað dags. 04.01.2012. Starfsmönnum falið að gera drög að erindi til Hestamannafélagsins Hornfirðings þar sem tilboð sveitarfélagsin um lausn er kynnt. Jafnframt er starfsmönnum falið að gera drög að kynningu um málið á heimasíðu sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| 4. |
201109021 - Þriggja ára áætlun 2013-2015 |
|
|
Fram kom að engar breytingar eru gerðar á þriggja ára áætlun frá fyrri umræðu. Henni vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. |
| |
|
|
| 5. |
201112011 - Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna þorrablóts á Höfn 21. jan 2012 |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 6. |
201112012 - Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis fyrir þorrablót Nesja og Lónmanna í Mánagarði 28. jan. 2012 |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 7. |
201112013 - Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis fyrir þorrablót Suðursveitar- og Mýramanna 4. feb 2012 |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 8. |
201112051 - Beiðni um stofnun nýrrar lóðar út úr Hólmi |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 9. |
200810080 - Grjótbrúarlind - útflutningur vatns - breyttar forsendur samnings |
|
|
Lagt fram minnisblað um málið. Starfsmönnum falið að kynna það á heimasíðu sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| 10. |
201112030 - Kaþólski söfnuðurinn á Höfn |
|
|
Bæjarstjóra falið að ganga til samninga um sölu á Hafnarbraut 40. Kom fram að starfsmenn hafa skoðað hvernig koma megi félagsmiðstöð fyrir í öðru húsnæði. Starfsmönnum jafnframt falið að kynna málið á heimasíðu sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| 11. |
201111035 - Úthlutun á byggðakvóta 2011/2012 |
|
|
Kom fram að Sveitarfélagið Hornafjörður fékk í sinn hlut 86 þorskígildstonn á grundvelli umsóknar dags. í desember 2011. Bæjarráð samþykkir að Fiskistofa annist úthlutun samkvæmt reglum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið gefur út. |
| |
|
|
| 12. |
201201003 - Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins - gátlisti og umræðuskjal |
|
|
Lagt fram til kynningar og umræðu. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna. |
| |
|
|
| 13. |
201112047 - Opnunartími leikskóla |
|
|
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar. |
| |
|
|
| 14. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Björn Ingi lagði fram eftirfarandi fyrirspurn um Hálkuvarnir.
Hvernig var og er staðið að snjómokstri og í framhaldinu hálkuvörnum í bænum. ?
Hvaða upphæð hefur verið eitt í þetta á síðustu mánuðum skipt niður á mánuði ?
Hvaða tæki hafa verið notuð í þetta ?
Hvaða verktakar hafa verið í þessu ?
Hvaða skipulag og regla er á hvað og hvar skal hálkuverja ?
Starfsmönnum falið að taka saman gögn og svara fyrirspurninni fyrir næsta fund. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:55