| 1. |
1112001F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 18 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1112005F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 19 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1112011F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 20 - fundargerð send í tölvupósti að fundi loknum |
|
|
Lagðar fram niðurstöður atvinnu- og menningarmálanefndar um úthlutun úr atvinnu- og rannsóknasjóði.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
1112006F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 139 - fundargerð send út að fundi loknum |
|
|
Rætt um viðhaldsverkefni næsta árs.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 5. |
1111005F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 223 |
|
|
Lagt fram minnisblað dags. 13.12.2011 um sölu íbúða sem félagsmálaráð samþykkti. Bæjarráð tekur undir afgreiðslu félagsmálaráðs og felur starfsmönnum að hefja undirbúning að sölu íbúða skv. framlögðu minnisblaði.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 6. |
1112010F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 17 |
|
|
Björn Ingi ræddi árangur á samræmdum könnunarprófum, sagði hann að skólinn geti ekki skýlt sér á bak við miklar breytingar sem útskýringu á bak við árangur undir landsmeðaltali í samræmdum könnunarprófum. Árni Rúnar telur enn fulla ástæðu til að fara sérstaklega yfir námsárangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar á samræmdum prófum og tekur því ekki undir niðurstöðu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um málið. Einnig tekur Árni Rúnar undir orð Björns Inga um útskýringar á árangri í samræmdum könnunarprófa. Stefán fór yfir samanburð á árangri nemanda á Höfn í samræmdum prófum samanborið við landsmeðaltal og benti á vatnaskil sem urðu upp úr miðjum tíunda áratugnum. Björn Ingi taldi mikilvægt að bæta námsárangur nemenda í samræmdum könnunarprófum. Árni Rúnar fjallaði um fyrirkomulag á fundum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. Rætt var um að fulltrúar stofnana og starfsfólks sitji undir þeim liðum er snúa að viðkomandi stofnunum en víki síðan af fundi nefndarinnar. Bæjarráð er sammála um að taka þetta til skoðunar samfara endurskoðun á samþykktum sveitarfélagsins í byrjun næsta árs.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 7. |
201112021 - Hafnarbraut 25 - viðræður um kaup á húsinu |
|
|
Deiliskipulag á svæðinu gerir ekki ráð fyrir að húsið standi. Bæjarráð sammála um að breyta ekki þeirri ákvörðun og hafnar því erindinu. |
| |
|
|
| 8. |
201112014 - Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis - lengingu opnunartíma víkurinnar 27.12. 2011 og 01.01.2012 |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir. |
| |
|
|
| 9. |
200908016 - Fjarskiptafélag í Öræfum |
|
|
Lagt fram minnisblað dags. 15. desember um fjarskiptakerfi í Öræfum. Bæjarstjóra falið umboð til að ganga til viðræðna við Fjarskiptafélag Öræfinga, Vodafone og Rarik um eignarhald og rekstur á kerfinu. Einnig lagt fram erindi frá Icell ehf. til kynnigar. |
| |
|
|
| 10. |
201111066 - Styrkir umsóknir félaga 2012 |
|
|
Lagt fram, afgreiðslu frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 11. |
200904063 - Reiðskemma Hestamannafélagsins Hornfirðings |
|
|
Lögð fram kostnaðaráætlun með mögulegri áfangaskiptingu fyrir lokafrágangi á reiðhöll ásamt drög að samningi á milli sveitarfélagsins og Hestamannafélagsins. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 12. |
200808058 - Gagnaver Glacier Guards |
|
|
Björn Ingi vék af fundi undir þessum lið. Lagt fram minnisblað 19. desember um samning við gagnaver Glacier Guards. Bæjarráð sammála um að endurnýja samninginn. Bæjarstjóra falið að endurnýja samning til næstu fjögurra ára. |
| |
|
|
| 13. |
201112030 - Kaþólski söfnuðurinn á Höfn |
|
|
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið. Lagt fram minnisblað dags. 16. desember um húsnæðisleit kaþólska safnaðarins á Höfn. Fram kom að áhugi er hjá söfnuðinum á Hafnarbraut 40 (húsnæði félagsmiðstöðvar). Rætt var um framtíðarstaðsetningu félagsmiðstöðvar. Taldi Björn Ingi að núverandi aðstaða væri góð. Rætt um hugmyndir að öðru húsnæði fyrir félagsmiðstöðina. Forsendur þess að sala komi til greina er að annað hentugt húsnæði fyrir félagsmiðstöðina finnist og ásættanlegt verð fáist. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 14. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Lögð fram matslýsing dags. 1. desember 2011. Bæjarráð vísar málinu í lögformlegt ferli. |
| |
|
|
| 15. |
201112033 - Samgönguáætlun 2011-2022 og 4rra ára samg. áætlun 2011-2014 |
|
|
Bæjarráð harmar þá forgangsröðun sem fram kemur í samgönguáætlun að gera eigi nýja veg um Hornafjörð með tilheyrandi brúargerð á þriðja hluta tímabilsins. Slíkt er með öllu óásættanlegt fyrir íbúa Suðausturlands sem lengi hafa kallað á þessar vegbætur. Allt frá því að sveitarfélögin í Austur-Skaftafellssýslu voru sameinuð hefur veginum verið lofað af ráðamönnum þjóðarinnar og löngu kominn tími til þess að efna þau loforð. Minnt er á að framkvæmdin styttir Hringveginn umtalsvert og hefur þar með þjóðhagslegan ávinning í för með sér, núverandi brú á Hornafjarðarfljótum er komin til ára sinn og er varasöm út frá umferðaröryggi, auk þess sem nýr vegur tengir sveitirnar vestan Fljóta betur við þjónustukjarnann á Höfn. Bæjaryfirvöld hafa ítrekað kynnt áherslur sínar í þessum málum fyrir samgönguyfirvöldum á hverjum tíma þar sem ávallt hefur verið tekið undir sjónarmið heimamanna. Kominn er tími til að allir sem hafa tekið þátt í þessari umræðu tali skýrt um sína afstöðu. Bæjarráð Hornafjarðar leggur alla áherslu á hafist verði handa við fyrsta áfanga framkvæmdarinnar eigi síðar en 2014. |
| |
|
|
| 16. |
200809015 - Bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis vegna athugsemda einstaklings um fjallskilamál í A-Skaft. |
|
|
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 17. |
201112031 - Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli |
|
|
Bæjarráð vísar málinu í lögformlegt ferli. |
| |
|
|
| 18. |
201112032 - Íþróttahús undir Garðshól |
|
|
Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember og gögn er varða áhuga forráðamanna Skinneyjar Þinganess ehf. um að reisa hús yfir gervigrasvöllinn norðan Garðshóls og afhenda sveitarfélaginu til eignar að framkvæmdum loknum. Kom fram að fyrirhugað hús er hærra en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir sem nemur um einum og hálfum metra í mænishæð en á móti eru útveggir lægri en gildandi skipulag gerir ráð fyrir. Bæjarráð fagnar framkomnu erindi og vísar skipulagshluta þess til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 19. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|