Fundargerð bæjarráðs 570
570. fundur
570. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 12. desember 2011 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1112001F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 18 |
|
|
Rætt var um styrkumsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð, alls bárust 23 umsóknir þar af fjórar í A sjóð.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1112003F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 16 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samtali við aðstoðarmann ráðherra þann 10. desember sl. Kom fram að unnið er að úrlausn málefna HSSA í ráðuneytinu. Björn Ingi vísaði í bókun Sjálfstæðismanna frá síðasta fundi bæjarstjórnar nr. 174. um málefni HSSA |
| |
|
|
| 3. |
1112002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 19 |
|
|
Starfsmönnum falið að ræða við Vegagerðina um Almannaskarð.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
201110010 - Fundargerð 29. fundar stjórnar suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs - verður send út í tölvupósti |
|
|
Bæjarráð tekur efnislega undir bókun svæðisráðs. Bæjarráð er sammála um eftirfarandi bókun.
Bæjarráð leggur áherslu á að nú þegar mótuð hefur verið traust umgjörð utan um garðinn með stjórnunar- og verndaráætlun að áfram verði haldið að byggja garðinn upp á markvissan hátt.
Umfang í rekstri hefur aukist en stjórnsýsla garðsins ekki þróast í takt við það. Skaftafell er opið allt árið, umsvifin þar yfir sumartímann eru afar mikil og vaxandi yfir vetrarmánuðina. Af því leiðir að á svæðinu verður til stór hluti af sértekjum Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli þarf á meiri stuðningi að halda og fleira starfsfólki í verkefni sem tengjast daglegum rekstri í gestastofunni. Stjórnsýsla garðsins verður því að eflast. Því þarf að auka fjárveitingar til reksturs stjórnsýslu garðsins eða sameina hann öðrum stofnunum sem starfa á sama sviði.
Afar mikilvægt er að við hugsanlegar breytingar að taka það sem gott er úr Vatnajökulsþjóðgarði inn í hina nýju stofnun. Það er ekki síst valddreifing og gott samráð við svæðin sjálf, sveitarfélög og íbúa þeirra, og sú hugmyndafræði að byggja upp garð með náttúruvernd, útivist og byggðaþróun að leiðarljósi.
Það er jafnframt mikilvægt að við uppbyggingu á starfinu, bæði stjórnsýslu hans og starfsemi á svæðunum, að fjölga beinum störfum á nærsvæði þjóðgarðsins. |
| |
|
|
| 5. |
201111041 - Lóðarumsókn Fosshótela ehf. á Hafnarvík/Heppu svæði |
|
|
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102 frá Fosshótel ehf. um B1 (nýbyggingarreit).
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102 frá Fosshótel ehf. um B2 (nýbyggingarreit).
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102 frá Fosshótel ehf. um lóð Bíóbraggans.
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102 frá Fosshótel ehf. um lóð Íshússins/Vindheima.
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102 frá Fosshótel ehf. um lóð Verðandi.
Lögð fram umsókn dags. 8. desember 20102frá Fosshótel ehf. um lóð Miklagarðs.
Lagðir fram ársreikningar frá Fosshótel ehf. fyrir árið 2010 og ÓDT ehf. fyrir árið 2010. Samkvæmt umsóknum er gert ráð fyrir að uppbyggingin eigi sér stað á árunum 2012-2014.
Bæjarráð samþykkir að úthluta ofangreindum lausum lóðum með fyrirvara um afgreiðslu Skipulagsstofnunar á deiliskipulaginu. Jafnframt samþykkir bæjarráð að ganga til samninga við Fosshótel ehf. um viðgerð og/eða endurgerð á Miklagarði/Graðalofti í samræmi við deiliskipulagið.
Björn Ingi lagði fram eftirfarandi bókun:
Um leið og ég ítreka ánægju yfir að áhugi aðila skuli vera á uppbyggingu Hafnarvík Heppa vil ég að alls jafnræðis sé gætt og farið að reglum sveitarfélagsins. Það er alveg óþarfi að túlka á þann hátt að ég sé á móti fyrirhuguðum framkvæmdum sem ég er ekki. Í Miklagarði eru fólgin ákveðin gæði burt sé frá virði hússins sjálfs, aðstaðan og möguleikar staðsetningar eru ótvíræðir. Úthlutun þessara gæða verður að vera hafið yfir allan vafa og einnig tryggt að sveitarfélagið fá réttlátan hlut í þessum gæðum. |
| |
|
|
| 6. |
201112009 - Tillaga að breytingu á mörkum Vatnajökulsþjóðgarðs á Suðursvæði |
|
|
Lagt fram erindi frá umhverfisráðuneyti dags. 7. desember 2011. Kemur fram ósk um afstöðu og samþykkis Sveitarfélagsins Hornafjarðar um að þjóðlenda á vestanverðum Breiðamerkursandi og Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi verði innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Í erindinu kemur fram að ef svæðið verði hluti af þjóðgarðinum þarf áður að fá samþykki sveitarfélagsins og hagsmunaaðila, þ.e. þeirra jarða sem eiga þar afrétt.
Bæjarráð fagnar erindi ráðuneytisins og samþykkir friðlýsingu á svæðinu fyrir sitt leiti. Bæjarráð óskar eftir nánu samráði við umhverfisráðuneytið með framhald vinnunnar. |
| |
|
|
| 7. |
200711003 - Beiðni um leyfi til landaskipta út úr Austurhól |
|
|
Samþykkt. |
| |
|
|
| 8. |
200711003 - Beiðni um leyfi til landaskipta út úr Fornustekkum |
|
|
Samþykkt. |
| |
|
|
| 9. |
201012001 - Fráveitumál fyrirtækja á Höfn |
|
|
Haukur Ingi greindi frá málinu. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 10. |
200905025 - Samningur um ljósritun og hliðstæða eftirgerð í sveitarfélögum |
|
|
Vísað til framkvæmdastjóra fjármála- og framkvæmdasviðs. |
| |
|
|
| 11. |
201112017 - Heimaþjónustudeild - undirbúningur |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri og Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSSA komu inn á fundinn undir þessum lið. Gerðu þau grein fyrir hugmynd að heimaþjónustudeild sem tæki yfir framkvæmd frekari liðveislu, heimahjúkrunar og heimaþjónustu. Greindu þau einnig frá heimsókn til Akureyrar þar sem sambærileg deild er starfrækt, sú eina á landinu. Stefnt er að hefja starfsemina snemma á nýju ári. Bæjarráði líst vel á þá vinnu sem fram hefur farið og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 12. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri kom inn á fundinn undir þessum lið. Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Lögð fram drög að erindi til Hólabrekku ehf og kynntar hugmyndir að samningi. Rætt var um mismunandi útfærslur á samningi. Starfsmönnum falið að vinna áfram að uppsetningu á samningi í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs. |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Lagt fram erindi frá Brynjúlfi Brynjúlfssyni um möguleg kaup á Hafnarbraut 25. Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55