Fundargerð bæjarráðs 569
569. fundur
569. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 5. desember 2011 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 - send rafrænt |
|
|
Farið yfir breytingar frá síðasta fundi og gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012:
A Höfnin Veitur Íbúðir A-B
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 85.685 49.113 828 -9.811 125.815
Skuldir í hlutfalli af tekjum 64,51% 74%
Framkvæmdir (m.kr.) 227 35 20 0 282
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 156.737 60.671 23.976 7.260 248.644
Handbært fé í árslok (m.kr.) 79.115 49.520 0 0 128.635
Afborganir langtímal. (m.kr.) 85.935 4.776 0 9.499 100.211
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 50 0 0 0 50
Einnig farið yfir þriggja ára áætlun.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2012 til síðari umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir að vísa þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn. |
| |
|
|
| 2. |
201102052 - Málefni HSSA - greinargerð send í tölvupósti |
|
|
Guðrún Júlía Jónsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið.
Lagði hún fram minnisblað á fundinum og gerði grein fyrir því. Fram kom að vinna við stefnumótun mætti ganga betur. Gerði hún grein fyrir fjárframlögum til HSSA og gerð kröfulýsingar. Sagði hún að endanlegar fjárheimildir liggja ekki fyrir fyrr en gengið verði frá nýjum þjónustusamningi. Björn Ingi spurðist fyrir um hvernig ráðgert er að mæta niðurskurði komi hann til. Guðrún Júlí svaraði því til að komi til skerðingar í fjárveitingu þá verði að skera niður þjónustu. Hjalti gerði grein fyrir vinnu starfsmanna um heimaþjónustudeild og mögulegri hagræðingu sem slík deild geti skilað. Guðrún Júlía fór yfir samanburð á þjónustu milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og annarra sambærilegra svæða í vinnuskjali dagsett 5. desember 2011. Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við ráðuneytið. |
| |
|
|
| 3. |
200705059 - Söfn Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur |
|
|
Undir liðnum mættu á fundinn Björg Erlingsdóttir og Björn Arnarson. Hjalti gerði grein fyrir málinu og lagði fram minnisblaði dags. 29. nóvember 2011. Lögð fram drög að gjafabréfum. Björg gerði grein fyrir mikilvægi þess að skrá niður innihald og umfang safnanna svo að hægt verði að meta gildi þeirra. Bæjarstjóra falið að ræða við aðila málsins. |
| |
|
|
| 4. |
201103003 - Gamlabúð, flutningur og samstarf við Vatnajökulsþjóðgarð |
|
|
Undir liðnum mættu á fundinn Björg Erlingsdóttir og Björn Arnarson. Hjalti gerði grein fyrir minnisblaði dags. 29 nóvember. Lögð fram samantekt starfsmanna Menningarmiðstöðvar vegna flutnings Gömlubúðar og áhrifa á starfsemi Byggðasafns. Gerð grein fyrir vinnu við útboðsgögn varðandi flutning og samskipti við ráðgjafa og arkitekta. Björn Ingi spurðist fyrir um hvort ekki væri búið að ákveða staðsetningu Gömlubúðar, spurði hann einnig um hvernig ætlunin sé að uppfylla miðlunar- og sýningarhlutverk í sveitarfélaginu. Björn Arnarson ræddi um hvort búið væri að ákveða hvert núverandi byggðasýning fari komi til þess að Vatnajökulsþjóðgarður takið húsið á leigu og hefji starfsemi í því. Björg benti á að hægt væri að hýsa byggðasýningu víða, það geti tekið tíma að finna stað fyrir slíka sýningu og það tekur til sín fjármagn. Rætt var um þann möguleika að flytja byggðasýninguna að hluta til út í sveitirnar þar sem mikið af hlutunum eru til komnir. Einnig var rætt um að gera sögu sjáverútvegsins skil í sýningarformi. Umræður sköpuðust um safnalögin. Björn Arnarson benti á að vinsælasta safnið í Gömlubúð sé náttúrugripasafnið. Áður en endaleg ákvörðun verður tekin um framhaldið, verði gerð tillaga um frágang á umhverfi Gömlubúðar, gert verði uppkast að samningi við Vatnajökulsþjóðgarð um nýtingu og leigu á Gömlubúð og einnig verði mótuð stefna um sýningarhald í framtíðinni. |
| |
|
|
| 5. |
201111041 - Lóðarumsókn Fosshótela ehf. um lóðir á Hafnarvík/Heppusvæði |
|
|
Reynir gerði grein fyrir málinu, því vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar. Fram kom að umsækjendur hafi hug á að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu. |
| |
|
|
| 6. |
201111072 - Frumvarp til laga um breytingu á varnamálalögum og tekjustofna sveitarf |
|
|
Bæjarráð telur að samþykkt frumvarpsins sé mikið sanngirnismál. Fagnar frumkvæði að gerð frumvarpsins og hvetur til að það verði samþykkt. |
| |
|
|
| 7. |
201111073 - Fræðandi ferðaþjónusta á Suðurlandi |
|
|
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 8. |
201111074 - Könnun vistbyggðarráðs um stöðu vistvæns skipulags |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 9. |
200908016 - Rekstrarsamningur um rekstur og notkun á fjarskiptakerfi (ljósleiðari) |
|
|
Lagt fram samkomulag dags. 24. nóvember 2011 á milli Fjarska ehf og Fjarskiptafélags Öræfinga þar sem Fjarski ehf framselur eignarétt sinn á fjarskiptakerfi í Öræfum til Fjarskiptafélags Öræfinga. Hjalti greindi frá fundi með Knúti Bruun þar sem lagt var til að Sveitarfélagið tæki kerfið yfir og eignaðist það. Bæjarráð felur bæjarstjóra og Birni Inga að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 10. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um vinnustaðagreiningu og vinnu að starfsmannamálum í kjölfar hennar
1. Stendur til að kynna bæjarráði þær niðurstöður, sem nú liggja fyrir, í tengslum við vinnu að starfsmannamálum í kjölfar vinnustaðargreiningar?
Hjalti upplýsti að starfsmaður væri í veikndaleyfi og óskaði eftir því að viðkomandi starfsmaður gerði grein fyrir málinu þegar þar að kemur.
2. Ljóst er að vinnunni er ekki lokið og mikilvægt að henni verði framhaldið til þess að tryggja samfellu. Hefur meirihluti bæjarstjórnar mótað stefnu um framhald verkefnisins?
Hjalti upplýsti að haft hafi verið samband við vinnustaðasálfræðing um næstu skref í málinu.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Þorvarð Árnason forstöðumann Háskólasetursins á Höfn um möguleika á stuðningi frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála um uppbyggingu á rannsóknum í ferðaþjónustu. Bæjarráð mælir með því að Háskólasetrið á Höfn fái fjárveitingar úr umræddum sjóð og tekur jákvætt í að styðja við verkefnið. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50