Fundargerð bæjarráðs 568
568. fundur
568. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 28. nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, Fjármálastjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1111009F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 15 ásamt fundargerð 56. fundar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um gerð fjárhagsáætlunar HSSA og fyrirliggjandi niðurskurð ráðuneytisins. Hann undrast að næsti fundur stjórnar verði ekki fyrr en 20. des. þar sem önnur umræða um fjárlög verði í lok nóvember. Taldi hann að funda ætti um leið og upplýsingar liggja fyrir varðandi fjárlög. Einnig ræddi hann um nýjan kjarasamning við lækna og kostnað vegna hans. Formaður taldi að boða ætti framkvæmdastjóra HSSA á næsta bæjarráðsfund til að fara yfir stöðuna og hverning bregðast eigi við ef niðurskurður ráðuneytisins verði eins og fjárlög gera nú ráð fyrir en þar er gert ráð fyrir 30-35 mkr. niðurskurði. Spurt var um lok á stefnumótunarvinnunni, hvort henni hefði ekki átt að ljúka á haustmánuðum.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
201101066 - Vinnustaðagreining 2011 og kynning á vinnu að starfsmannámálum |
|
|
Stefán gerði grein fyrir niðurstöu vinnustaðagreiningar 2011. Maren Sveinbjörnsdóttir kom inn á fundinn og gerði grein fyrir þeirri vinnu sem nú er unnið að í tengslum við niðurstöðu vinnustaðagreiningarinnar. Björn Ingi spurðist fyrir hvað tæki við eftir að þessum hluta verksins væri lokið. Árni Rúnar taldi það mikilvægt að bæjarráð mótaði stefnu um framhald verkefnisins. Reynir tók undir það. |
| |
|
|
| 3. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012, 2. umræða og 3ja ára áætlun 2013-2015 - gögn höfð sér |
|
|
Ásta fór yfir breytingar á milli umræðna.
Helstu niðurstöður Fjárhagsáætlunar 2012 A- og B hluti eru:
Rekstrarniðurstaða 126,3 mkr., handbært fé frá rekstri 248,6 m.kr., framkvæmdir nettó 240,5 m.kr., afborganir langtímalána er 121,3 m.kr. ný langtímalán 50,0 m.kr. og handbært fé í árslok 148,5 m.kr.
Helstur framkvæmdir 2012:
Heppuskóli innanhúsframkvæmdir , Krakkakot viðbygging , opin svæði og kirkjugarður Hornafjarðarhöfn og veitur . Gert er ráð fyrir að selja Hafnarbraut 40 og tvær kaupleiguíbúðir.
Í þriggja ár áætlun 2013-2015 eru helstu niðurstöðutölur þessar:
Rekstrarniðurstaða 2013 130,0 mkr. 2014 132,5 mkr. 2015 135,4 mkr., handbært fé frá rekstri 2013 256,7 mkr. 2014 259,9 m.kr. 2015 262,2 m.kr., framkvæmdir nettó 2013 205 mkr. 2014 120,2 m.kr. 2015 118,6 m.kr., afborganir langtímalána er 2013 132,2 mkr. 2014 134,8 m.kr. 2015 139,1 m.kr. ný langtímalán 2013 50,0 m.kr. 2015 50,0 m.kr. og handbært fé í árslok 2013 117,9 mkr. 2014 122,7 mkr. 2015 177,2 m.kr.
Björn Ingi gerði að umtalsefni hvort nauðsynlegt sé að gera bæði ráð fyrir sölu eigna og lántöku í útreikningum fjárhagsáætlunar þegar ekki stendur til að taka lán ef af eignasölu verður.
Fjárhagsáætlun 2012 verður afgreidd til annarrar umræðu og þriggja ára áætlun til fyrri umræðu á næsta bæjarráðsfundi. |
| |
|
|
| 4. |
201111057 - Staða bæjarsjóðs 31. október 2011 |
|
|
Ásta gerði grein fyrir stöðunni 31. október. Fram kom að staðan er að mestu í samræmi við endurskoðaða fjárhagsáætlun. |
| |
|
|
| 5. |
201111061 - Fjármál málefna fatlaðra á Hornafirði |
|
|
Stefán fór yfir málið og útreikninga á framlagi til málefna fatlaðra. Rætt var um samning við sambýlið á Hólabrekku og Sveitarfélagið Hornafjörð varðandi málefni fatlaðra, framkvæmdastjóra fræðslu og félagssviðs falið að vinna áfram að málinu í samræmi við þær leiðir sem komu fram á fundinum. |
| |
|
|
| 6. |
201111062 - Matarmál í Grunnskóla Hornafjarðar |
|
|
Stefán gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð bendir á að í gildi er samningur sem unnið er eftir, hugað verði að breytingum á samningi í tengslum við endurskoðun hans eða þegar til kemur næsta útboðs. Núgildandi samningur rennur út í lok skólaárs 2011-2012. |
| |
|
|
| 7. |
200709041 - Erindisbréf fyrir ungmennaráð |
|
|
Árni Rúnar víkur að fundi undir þessum lið. Stefán gerði grein fyrir gildandi erindisbréfi. Skóla, íþrótta- og tómstundanefnd falið að endurskoða erindisbréfið. |
| |
|
|
| 8. |
200902010 - Lokunaáætlun f. urðunarstað/sorpbrennslu í Öræfum |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. |
| |
|
|
| 9. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk hjá nemendum Grunnskóla Hornafjarðar
Í ljósi mikillar umræðu á síðasta bæjarráðsfundi um árangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar í samræmdum könnunarprófum í 4., 7. og 10. bekk er eftirfarandi fyrirspurn lögð fram:
Hver er árangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar (áður Nesja-, Hafnar ? og Heppuskóla) á landsvísu sl. 10 ár í 4., 7. og 10. bekk í samræmdum könnunarprófum? Einnig er farið fram á upplýsingar um samanburð á árangri nemenda sem þreytt hafa samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk þannig að mögulegt sé að glöggva sig á þróun árangurs í einstökum árgöngum.
Stefán lagði fram svör á fundinum við fyrirspurn Árna Rúnars. Bæjarráð telur rétt að svörin verði kynnt í skóla, íþrótta- og tómstundanefnd. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00