| 1. |
1111006F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 17 |
|
|
Rætt um styrkumsókn vegna endurbóta á Gömlu búð til Húsafriðunarnefndar. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1109004F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 220 |
|
|
Fundagerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1109011F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 221 |
|
|
Fundagerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
1111008F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 16 |
|
|
Rætt um niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 4., 7. og 10 bekkjar og einstaklingsmiðað nám. Rætt um mikilvægi þess að nemendur fái þann kennslustundafjölda sem þeir eiga rétt á. Bæjarráð veltir því upp hvort fjölgun tíma í kennslugreinum samræmdra könnunarprófa myndi skila sér í bættum námsárangri.
Árni Rúnar ræddi um staðsetningu 7. bekkjar. Ásgerður gerði grein fyrir umræðum nefndarinnar um staðsetningu 7. bekkjar.
Bókun áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna 7. liðar fundargerðar skóla-, íþrótta- og tómstundafendar, - staðsetning 7. bekkjar í grunnskóla Hornafjarðar:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að meirihlutinn viðurkenni að hafa farið með rangt mál á síðasta bæjarstjórnarfundi varðandi plássleysi fyrir 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar í Hafnarskóla. Að öðru leyti tekur áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar undir niðurstöðu skóla - , íþrótta- og tómstundanefndar að því gefnu að hún sé fengin að undangenginni ítarlegri umræðu á meðal fagfólks í Grunnskóla Hornafjarðar og að álits hafi verið leitað hjá foreldrum og forráðamönnum nemenda í 6. og 5. bekk.
Í ljósi bókunar áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar vilja fulltrúar meirihlutans í bæjarráði að fram komi að samkvæmt þeirra upplýsingum sé ekki pláss fyrir 7. bekk í Hafnarskóla á næsta skólaári.
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar bendir á að í bókun skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar er hvergi minnst á plássleysi í Hafnarskóla og tillaga nefndarinnar hlýtur því að byggja á öðrum forsendum.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 5. |
201111036 - Skýrsla starfshóps um stuðning við skólastarf |
|
|
Björn Ingi benti á að fylgiskjal sem vitnað er til hafi ekki fylgt með gögnum og óskaði hann eftir fylgigögnum með málinu. Stefán afhenti gögnin á fundinum. Stefán fór yfir skýrsluna og gerði grein fyrir samantektarkaflanum. Björn Ingi ræddi um foreldrafræðslu og hver beri ábyrgð á fræðslunni. Ásgerður lagði áherslu á að uppeldisfræðsla sé til staðar hjá heilsugæslu og félagssviði en velti upp hvort þverfaglega samvinnu þurfi ekki að bæta. Rætt var um skólaskrifsstofu og hvar verði farsælast að eiga samstarf um hana. Reynir ræddi tillögu starfshópsins um ráðningu þroskaþjálfa inn á leikskólana. Vísað til áframhaldandi vinnu framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs. |
| |
|
|
| 6. |
201111034 - Útreikningar forstöðumanns íþróttamannvirkja á mismundandi gjaldskrám |
|
|
Ásgerður fór yfir útreikning forstöðumanns íþróttamannvikja. Rætt um mismunandi útfærslur á gjaldskrá sundlaugar. Starfsmönnum falið að fara yfir tillögurnar og gæta samræmis milli hækkunar á barnagjaldi og fullorðinsgjaldi. |
| |
|
|
| 7. |
200806025 - Samþykkt um stjórn og fundarsköp - breytingar til samræmis við ný sveitarstjórnarlög - gögn aðeins send út á rafrænu formi. |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir vinnunni, ræddi hann sérstaklega um fundarritun. Bent var á að síðasti bæjarstjórnarfundur sé ekki enn kominn inn á vef sveitarfélagsins. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna. |
| |
|
|
| 8. |
201111032 - Drög að erindisbréfi um mótun stefnu um framtíð samfélagsins á Hornafirði |
|
|
Hjalti fór yfir erindisbréfið. Árni Rúnar velti því upp hvort málið ætti að fara fyrir bæjarstjórn. Bæjarráð er sammála um að fela bæjarstjóri vinni áfram að málinu og undirbúi málið fyrir bæjarstjórn. |
| |
|
|
| 9. |
201104038 - Fráveita frá tjaldsvæði - útboð |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir framkvæmdunum. Framlögð gögn samþykkt. |
| |
|
|
| 10. |
200711003 - Fráveita í Nesjahverfi - útboð |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir framkvæmdunum. Framlögð gögn samþykkt. |
| |
|
|
| 11. |
201011013 - Yfirbreiðsla í sundlaug - tillaga |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir tillögu fjármála- og framkvæmdasviðs um yfirbreiðslu sundlaugar. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og óskar eftir upplýsingum um heildarþyngd yfirbreiðslunnar og útfærslu hjólabúnaðar. |
| |
|
|
| 12. |
201111033 - Rafrænir reikningar - tillögur starfsmanna fjármála- og framkvæmdasviðs |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir tillögu að breytingu útsendra reikninga og að þeir verði frá og með áramótum á rafrænu formi til hagræðingar. Bæjarráð er sammála um að taka upp rafræna reikninga og að dreifibréf verði sent út til allra sem fá reikninga frá sveitarfélaginu. Björn Ingi lagði til að heildarkostnaður þjónustu komi fram á útsendum reikningum þar sem það á við. |
| |
|
|
| 13. |
200804098 - Vatnajökulsþjóðgarður - staða þjóðgarðsins og verkefni á sviði náttúruverndar |
|
|
Hjalti fór yfir minnisblað um málið. Björn Ingi gerði grein fyrir kynningu Hvítbókar á norðursvæði og lagði til að sama kynning færi fram á suðursvæði. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 14. |
201111039 - Eftirlit með fjölda skóladaga í grunnskólum skólaaárið 2010-2011 |
|
|
Málinu vísað til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar. |
| |
|
|
| 15. |
201111037 - Ósk um styrk til Eldvarnaátaksins 2011 |
|
|
Hafnað. |
| |
|
|
| 16. |
201111041 - Beiðni um viðræður um hugsanlega aðkomu Fosshótela og tengdra félaga að uppbyggingu á Hafnarvík/Heppu svæði |
|
|
Bæjarráð fagnar framkomnu erindi. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að ganga til viðræðna og forseta bæjarstjórnar til vara. |
| |
|
|
| 17. |
201111042 - Stofnfundur Samtaka orkusveitarfélaga |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 18. |
201111051 - Samningur um móttöku á einnota skilagjaldskyldum drykkjarvöruumbúðum |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð tekur jákvætt í framlagðan samning og felur starfsmönnum að undirrita samninginn að því gefnu að núverandi aðstaða henti fyrir móttöku á einnota skilagjaldskyldum drykkjarvöruumbúðum. |
| |
|
|
| 19. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|