Fundargerð bæjarráðs 566
566. fundur
566. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 14. nóvember 2011 og hófst hann kl. 15:45.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1111003F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 138 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um innleiðingu á tilskipun 2005/65/EB fyrir Hornafjarðarhöfn. Reynir svaraði fyrirspurninni. Björn Ingi minnti á að eiga samráð við UST þegar kemur að frágangi sjóvarnar í Óslandi. Rætt var um fyrirhugaðar framkvæmdir árið 2012. Einnig rætt um umhverfi hafnarinnar og hús sem standa við hafnarsvæðið. Björn Ingi lagði áherslu á að Mikligarður og Graðaloft verði vistað undir eignarsjóð. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
201103034 - ASK arkitektar koma á fund bæjarráðs |
|
|
Gunnar Borgarson, Össur Imsland frá ASK arkitektum, Stefán Ólafsson og Björn Imsland mættu á fundinn undir þessum lið. Gunnar Borgarsson gerði grein fyrir teikningunum. Rætt var um áfangaskiptingu á verkinu. Árni Rúnar Þorvaldsson vísar til fyrri bókana sinna um málið. |
| |
|
|
| 3. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 |
|
|
Farið yfir ný drög að fjárhagsáætlun. Lögð fram drög að framkvæmdaáætlun. Björn Ingi óskaði eftir því að fá framkvæmdayfirlitið sent í tölvupósti. |
| |
|
|
| 4. |
201111026 - Staða bæjarsjóðs 30. september 2011 |
|
|
Kom fram að niðurstaða er í samræmi við áætlun. |
| |
|
|
| 5. |
201102062 - Samningur vegna sölu á Pakkhúsi |
|
|
Lagður fram kaupsamningur og afsal vegna sölu á Pakkhúsi. Bæjarstjóra falið að rita undir samninginn með fyrirvara um að endanleg greinargerð liggi fyrir. |
| |
|
|
| 6. |
200805074 - Hafnarvík Heppa deiliskipulag - gögn höfð aftast í prentaða eintakinu |
|
|
Vísað til bæjarstjórnar til síðari umræðu. |
| |
|
|
| 7. |
201102052 - Kröfulýsing vegna HSSA |
|
|
Guðrún Júlía Jónsdóttir kom á fundinn og gerði grein fyrir málinu. Rætt var um uppbyggingu og eðli kröfulýsinganna. Starfsmönnum falið að halda áfram vinnu við gerð kröfulýsinganna. |
| |
|
|
| 8. |
201111025 - Atvinnu- og nýsköpunarhelgi |
|
|
Hjalti greindi frá að fyrirtæki hafi samþykkt að styrkja viðburðinn. Bæjarráð samþykkir að í verðlaun fyrir bestu hugmyndina verði leiga í eitt ár af skrifstofuhúsnæði í Nýheimum. |
| |
|
|
| 9. |
201101033 - Samstarf um uppbyggingu list- og verknámsaðstöðu á Hornafirði |
|
|
Hjalti fór yfir drög að viljayfirlýsingu sem Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari FAS, setti saman. Rætt var um viljayfirlýsinguna og mögulega kostnaðarskiptingu milli samningsaðila. Bæjarráð samþykkir að skrifa undir viljayfirlýsinguna. |
| |
|
|
| 10. |
201111027 - Fráveita við Álaugarey |
|
|
Haukur Ingi fór yfir málið. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 11. |
201110032 - Skilti á íþróttahúsi |
|
|
Reynir fór yfir málið. Bæjarráð sammála um að aðalstjórn ungmennafélagsins Sindra verði heimilt að nýta auglýsingaplássin í samræmi við bókun umhverfis- og skipulagsnefndar. Björn Ingi ítrekar bókun sína frá síðasta fundi. |
| |
|
|
| 12. |
200705087 - Afrit svarbréfs Vegagerðarinnar til Lex lögmannsstofu v. athugas. fasteignaeigenda í Nesjum v. hringvegar um Hornafjarðarfljót |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 13. |
201111015 - Vatnaáætlun 2011-2015 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir pósti frá framkvæmdastjóra SASS um málið. |
| |
|
|
| 14. |
201111028 - Ósk um stuðning við Snorraverkefni 2012 |
|
|
Hafnað. |
| |
|
|
| 15. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Bæjarráð sendir LEGÓ hópnum hamingjuóskir með sigurinn í LEGÓ keppninni. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30