Fundargerð bæjarráðs 565
565. fundur
565. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 7. nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs..
Dagskrá:
| 1. |
1110012F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 18 |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundargerðinni. Björn Ingi ræddi feril dagsekta. Reynir lagði til að farið verði í grenndarkynningu á lóðum Álaleiru 13 - 15 í samræmi við bókun nefndarinnar. Bæjarráð óskar eftir kostnaðaráætlun fyrir málun á vatnstakinum á Fiskhól, ákveðið var að auglýsendur skuli afmá vegsumerki að samningstíma loknum.
Fundargerð samþykkt. |
| 2. |
201109041 - Fundargerðir stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
|
Fundargerðir til kynningar. |
| 3. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 - gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir tillögum nefndarinnar að breytingum á gjaldskrám. Rætt var um nýtingu og meðferð á beiti- og slægjulöndum. Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um breytingar á gjaldskrá. Stefán gerð grein fyrir áætlaðri breytingu á rekstrartekjum málefna fatlaðra 2012 sem byggir á nýju mati. Ásta kynnti áætlunarlíkan miðað við breyttar forsendur. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Ákveðið að halda borgarafund um fjárhagsáætlun 2012 þann 15. nóvember kl 12:00. |
| 4. |
201111008 - Viðmiðunarreglur um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við uppsetningu girðinga í sérstökum tilvikum |
|
|
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við girðingar í sérstökum tilvikum með áorðnum breytingum. |
| 5. |
201110032 - Skilti á íþróttahúsi - umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu aftur til bæjarráðs |
|
|
Björn Ingi ræddi bókun sína um umferðaröryggi. Málið tekið fyrir á næsta fundi. |
| 6. |
200707002 - Gámar fyrir timbur og brotajárn í dreifbýli |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir tillögu nefndarinnar. Bæjarráð felur starfsmönnum að þróa kerfi um hirðu timburs og járns úr sveitum með núverandi fjölda af gámum. Bæjarráð leggur áherslu á að kerfið sé sveigjanlegt og stuðli að endurvinnslu á sorpi. Ásgerður ræddi um mikilvægi þess að reglulega fái íbúar upplýsingar um endurvinnslu og flokkun á sorpi í sveitarfélaginu sem hvatningu. |
| 7. |
201111007 - Landsskipulagsstefna 2012 - 2024 |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 8. |
201102062 - Sala á Pakkhúsi |
|
|
Lagt fram kauptilboð í Pakkhúsið dags. 4. nóvember 2011. Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins. Endanlegur samningur lagður fyrir á næsta fundi. |
| 9. |
200901107 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10