| 1. |
1110010F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 14 |
|
|
Hjalti vakti máls á umræðum um stofnun búsetudeildar. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu með það markmiði að búsetudeild taki til starfa á næsta ári. Björn Ingi spurðist fyrir um tekjur HSSA fyrir rekstrarárið 2011. Hjalti gerði grein fyrir tekjum HSSA fyrir rekstrarárið 2011 og hvernig þær innheimtist. Umræður sköpuðust um eldri þjónustusamning í tenglum við umræðu um tekjur fyrir HSSA. Umræður sköpuðust um kröfulýsingu. Gert er ráð fyrir því að Guðrún Júlía Jónsdóttir komi inn á næsta fund bæjarráðs og geri grein fyrir henni. |
| 2. |
201101058 - Nefnd um hátíðir og viðburði á Hornafirði mætir á fundinn |
|
|
Eftirfarandi fulltrúar mættir: Kristján Guðnason, Jón Sölvi Ólafsson, Valdemar Einarsson, Heiðar Sigurðsson og Jónas Friðriksson, einnig eru í hópnum Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Umræður sköpuðust um tímaramma starfshópsins. Rætt var um viðburði sem eru skipulagðir í sveitarfélaginu árlega. |
| 3. |
201110064 - Viðhald gatna 2011 - fundargerð verkfundar 1 |
|
|
Haukur Ingi Einarsson gerði grein fyrir fundinum. Fundargerð til kynningar. |
| 4. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 - gögn send út síðar |
|
|
Starfsmenn fóru yfir fjárhagsáætlunina og drög að greinargerð með henni. Fjárhagsáætlun vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar. |
| 5. |
201102062 - Málefni Pakkhúsins |
|
|
Hjalti greindi frá niðurstöðum vegna tilboðs í Pakkhús. Lagði hann til að gengið verði til viðræðna við Vatnajökulsþjóðgar um leigu á húsinu. Samþykkt að taka húsið af sölu og ganga til viðræðna við Vatnajökulsþjóðgarð um leigu á húsinu fyrir upplýsingamiðstöð ferðamála og gestastofu. |
| 6. |
201110051 - Ósk Umhverfisstofnunar um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í vatnasvæðanefnd |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 7. |
201110041 - Ágangur búfjár í Skógey |
|
|
Hjalti greindi frá samtölum við bændur og landgræðslustjóra. Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| 8. |
201003029 - Starfsemi innan þjóðlendu |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samtölum við umhverfisráðuneytið vegna Jökulsárlóns og stöðuna við gerð deiliskipulags. |
| 9. |
201108023 - Dýpkun Hornafjarðarhafnar, losun efnis í Skarðsfjörð. Svæði á náttúruminjaskrá - athugasemdir Umhverfisstofnunar |
|
|
Haukur gerði grein fyrir bréfi Umhverfisstofnunar. Til kynningar. |
| 10. |
201110058 - Grunnheimsókn Vinnueftirlitsins í sundlaug 06.10.2011 |
|
|
Bæjarráð fagnar niðurstöðunni og óskar eftir því að starfsmenn sundlaugar fái kynningu á bréfi Vinnueftirlitsins. |
| 11. |
201110061 - Drög að áætlun um uppbyggingu fráveitu |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir áætluninni. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 12. |
201110062 - Útboð á fjarskiptaþjónustu |
|
|
Starfsmönnum falið að undirbúa útboð á fjarskiptaþjónustu. |
| 13. |
201110056 - Áskorun um að fjarlægja gamlar girðingar af víðavangi |
|
|
Bæjarráð er sammála um að hvetja alla landeigendur í Sveitarfélaginu Hornafirði að halda vel við girðingum sínum eða fjarlægja þær ella. Starfmönnum falið að fylgja málinu eftir. |
| 14. |
201109078 - Athugasemdir Umhverfisstofnunar v. hreindýra í víraflækjum |
|
|
Hjalti sagði frá samtölum sínum við þjóðgarðsvörð, bændur, fulltrúa náttúruverndarsamtaka og Umhverfisstofnun um málið. Sagði að umrædd girðing hafi látið mikið á sjá vegna ágangs dýra á túnið. Þá er líka mikilvægt að komi fram að 20-30 dýr hafa haldið sig á svæðinu í allt sumar. Núna eru þau sennilega um 200 talsins og verður málið líka að skoðast út frá þeirri staðreynd. Í samtölum við bændur hafa komið fram áhyggjur af tjóni vegna ágangs dýranna og hversu erfitt sé að viðhalda girðingum af þeim sökum. Vilji er til þess að leita allra leiða til að tryggja velferð dýranna og takmarka eins og kostur er tjón bænda vegna ágangs þeirra. Bæjarstjóra er falið að vinna að lausn málsins út frá ofangreindum forsendum. |
| 15. |
200907004 - Svar Landgræðslu ríkisins við beiðni Skotveiðif. Hornafjarðar á leigu landsspildu til skotæfinga |
|
|
Til kynningar. |
| 16. |
201110055 - Árlegar upplýsingar Orkustofnunar um nýtingu grunnvatns og yfirborðsvatns hjá vatnsveitum |
|
|
Til kynningar. |
| 17. |
201110052 - Samþykkt frá aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ |
|
|
Til kynningar. |
| 18. |
201110053 - Frumvarp til breytinga á lögum nr. 102/2000 mat á umhverfisáhr ósk um umsögn |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 19. |
201110044 - Niðurstaða könnunar á öryggi leikskólabarna í bílum |
|
|
Til kynningar. |
| 20. |
201110063 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta 2011/2012 |
|
|
Til kynningar. |
| 21. |
201110050 - Dagur gegn einelti |
|
|
Málinu vísað til forstöðumanna. |
| 22. |
201110069 - Drög að nýrri fjarskiptaáætlun til umsagnar |
|
|
Vísað til næsta fundar. |
| 23. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |