Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 232
232. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 4. desember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Einar Karlsson, Reynir Arnarson, og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 9. fundur 1. desember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 101. fundur 25. nóvember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 50. fundur 1. desember 2003 (ath fyrri umræða um fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004 verður í bæjarstjórn 4. desember)
Bæjarstjóri fór yfir fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004. Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 55. fundur 2. desember 2003.
Bæjarráð tekur undir bókun nefndarinnar um nauðsyn þess að endurskoða leigusamninga með það að markmiði að ná niður halla kerfisins.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 51.fundur 26. nóvember 2003.
Reynir benti á að þegar rætt er um stöðu bókhalds og fjárhagsáætlanir í fundargerðum þá sé nauðsynlegt að bóka lykiltölur. Elín kom með ábendingar um að bókanir verði nákvæmari þegar starfsmenn svara fyrirspurnum.
Fundargerð samþykkt.
• HAUST 43. fundur 26. nóvember 2003 til kynningar.
• Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 7. ársfundur 6. nóvember 2003 til kynningar.
• Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 21. stjórnarfundur 25. september og 22. fundur
5. nóvember, 23. fundur 19. nóvember 2003 til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Haukur Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafultrúi mætti á fundinn og fór yfir málefni íþróttahúsa, sundlaugar og Þrykkjunnar félagsmiðstöðvar.
Bæjarráð felur framkvæmdastjórum að taka tillit til fram kominna athugasemda s.s úthlutun stofnbúnaðar og leggja fyrir bæjarráð á milli umræðna í bæjarstjórn.
3. Ósk um leyfi til borana eftir sjó
• Bréf Skinneyjar-Þinganess dags. 20. nóvember 2003.
Bæjarráð veitir umbeðið leyfi en minnir á að mikilvægt er að ganga frá öllum formsatriðum í svona málum og vísar til minnisblaðs framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs dags. 4. des. 2003.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um Skiptinámsdvöl fyrir stjórnendur í norrænum sveitarfélögum, dags.24. nóvember 2003.
Til kynningar.
• Bréf Krabbameinsfélagsins dags. 21. nóvember 2003 um samantekt könnunar á notkun tóbaksvarnanámsefnis Krabbameinsfélagsins og Tóbaksvarnarráðs í grunnskólum landsins.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna ganga undir Almannaskarð og vegaframkvæmda í tengslum við þau sbr. tölvupóst dags. 2. des 2003
Bæjarráð veitir umbeðið framkvæmdaleyfi.
Fundi slitið kl. 12:30


