Fundargerð bæjarráðs 562
562. fundur
562. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 17. október 2011 og hófst hann kl. 16:10.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
200804118 - Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir því að ríkið hafi nýverið hækkað viðmið fyrir útboð á vegum opinberra aðila. Það væri ekki síst vegna breytinga á gengi undanfarin ári. Starfsmönnum falið að fara yfir reglurnar og gera breytingatillögur á fundinum í samræmi við umræður á fundinum. |
| 2. |
201110028 - Aðalfundarboð HAUST 2011 |
|
|
Samþykkt að framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs sitji fundinn og fari með umboð sveitarfélagsins á fundinum. |
| 3. |
201107029 - Endurnýjun starfsleyfis fyrir urðunarstað í Lóni áhættumat v. bráðamengunar |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu málsins. Öll gögn eru komin til meðferðar UST er varðar umsókn um endurnýjun starfsleyfis fyrir urðunarstaðinn. |
| 4. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 - rammar til forstöðumanna og áætlun um stofnbúnað |
|
|
Drög að römmum lögð fram og vísað í áframhaldandi vinnu. Stefnt að fá forstöðumenn á fund bæjarráðs þann 24. október nk. Björn Ingi minnti á orð sín frá síðasta bæjarstjórnarfundi um að ekki er sjálfsagt að allir liðir ramma hækki við breytingar á vísitölu. |
| 5. |
201110014 - 10 ára áætlun sveitarfélagsins |
|
|
Gerð grein fyrir breytingum á milli umræðna. Stefnt er að því að afgreiða 10 ára áætlun samhliða þriggja ára áætlun. Vísað til áframhaldandi vinnu. |
| 6. |
201110033 - Grunnskóli Hornafjarðar - Heppuskóli aðalteikning |
|
|
Gunnlaugur Rúnar kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir teikningunum. Stefán gerði grein fyrir samskiptum við skólastjórnendur um undirbúning, samráð við kennara og tilurð framlagðra teikninga. Árni ræddi um mikilvægi þess að ræða breytingar á Heppuskóla í tengslum við ákvörðun um hvar 7. bekkur verði staðsettur í framtíðinni sem og nemendafjöldaþróun. Björn Ingi ræddi um stofnbúnaðarþörf vegna endurbótanna. Reynir lagði áherslu á að verið væri endurbæta húsnæði í eigu sveitarfélagsins þar sem viðhaldsþörf er metin mjög mikil. Töluverðar umræður sköpuðust um málið í ljósi nemendaþróunar. Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar styður ekki þær hugmyndir sem nú eru til umræðu um breytingar á húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar í Heppuskóla. Í þeim virðist lítið mið hafa verið tekið af þróun síðustu ára varðandi nemendafjölda og spám um þá þróun í náinni framtíð. Auk þess skortir bæjarstjórn Hornafjarðar framtíðarsýn á staðsetningu 7. bekkjar í Grunnskóla Hornafjarðar og því er að mati áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar ekki tímabært að samþykkja þessar tillögur. Ef vilji er fyrir hendi þá er rými fyrir 7. bekk með miðstiginu nú þegar. M.v. spár um þróun nemendafjölda mun það rými aukast á næstu árum.
Bæjarráð samþykkir framlagðar teikningar. Starfsmönnum falið að vinna útboðsgögn og kostnaðaráætlun í samræmi við teikningar.
Bæjarráð óskar eftir því að framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og skólastjórar vinni áætlun um innkaup á stofnbúnaði sem nauðsynlegt er að fjárfesta í vegna breytinganna. |
| 7. |
201110029 - Grunnskóli Hornafjarðar - Heppuskóli, ákvörðun um útboðsgögn |
|
|
Samþykkt. Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar vísar í bókun undir 6. lið. |
| 8. |
200711015 - Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla |
|
|
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um framlagðar reglur. Framlögð tillaga samþykkt. |
| 9. |
201102062 - Tilboð í Pakkhúsið - framhaldsumræður frá síðasta fundi |
|
|
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um gagntilboð. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda gagntilboð. |
| 10. |
201106027 - Afrit bréfs Lex f.h.fasteignaeigenda í Nesjum til Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar veglagningar um Hornafjarðarfljót |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 11. |
201109072 - Lóðarleigusamningar - bókun umhverfis- og skipulagsnefndar um málið |
|
|
Vísað til vinnu að fjárhagsáætlun 2012. |
| 12. |
200809015 - Úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna kæru Sigurgeirs Jónssonar á synjun bæjarstjórnar um að taka niður vegvísi við þjóðveg 1 hjá Uppsölum 1 og 2 |
|
|
Til kynningar. |
| 13. |
201110030 - Ósk um vegvísi að frístundahúsi(Steinaborg) í landi Skálafells í Suðursveit |
|
|
Vísað til starfsmanna. |
| 14. |
201110032 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu á skilti á íþróttahúsi |
|
|
Hjalti kynnti bréf frá formanni knattspyrnudeildar Sindra. Kristján vék af fundi undir þessum lið. Óskað er eftir afstöðumynd af hugsanlegum skiltum á göflum íþróttahússins og kanna með reglur um uppsetningu skilta á húsum í sveitarfélaginu. Bæjarráð tekur jákvætt í málið. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| 15. |
201110031 - Stefna Mennta- og menningarmálaráðuneytisins í íþróttamálum |
|
|
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar. |
| 16. |
201102052 - HSSA - fundur með velferðarráðuneyti um langtíma þjónustusamning og vanefndir á greiðslum fyrir sjúkrarými skv. fjárlögum 2011 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu og lagði fram drög að erindi til ráðherra. |
| 17. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:55