Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 557
557. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinní ráðhúsi, 29. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
1. Atvinnu- og menningarmálanefnd - 14
Árni Rúnar spurðist fyrir um tillögu nefndarinnar um skipan starfshóps sem fara á yfir hátíðir í sveitarfélaginu og framtíð þeirra. Hjalti kynnti drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um hátíðir. Bæjarráð tekur málið fyrir sem sér lið á næsta fundi. Reynir óskaði eftir upplýsingum um hvernig varmadælur sem settar voru upp í íþróttahúsi síðasta vetur hafi reynst.
2. Reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili
Stefán kynnti málið og gerði grein fyrir reglunum, lagði hann til að reglurnar verði samþykktar. Bæjarráð samþykkir reglurnar og að þær gildi frá og með 2011.
Ásgerður óskaði eftir upplýsingum um hvernig tómstundakort hafi verið nýtt.
3. Hafnarvík Heppa - deiliskipulag
Haukur Ingi kynnti deiliskipulagið. Reynir óskar eftir því að texti í greinargerð um lóð Sláturhússins verði skýrari. Árni Rúnar spurðist fyrir um vinnu við gerð skipulagsins og spurði hvort tillagan hafi verið samþykkt á formlegum fundi umhverfis- og skipulagsnefndar. Haukur Ingi gerði grein fyrir tilhögun vinnunnar. Nefndin hittist milli funda og afgreiddi tillöguna til bæjarráðs á síðasta fundi nefndarinnar sem haldin var þriðjudaginn 23. ágúst sl. Vísað til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
4. Fráveita í Nesjahverfi
Haukur Ingi kynnti málið. Gerði hann grein fyrir minnisblaði dagsettu 17.08.11. Bæjarráð er sammála um að leita leiða til að ljúka málinu í samræmi við minnisblaðið og umræður á fundinum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
5. Sjóvörn í Óslandi - heimild til framkvæmdar og skilyrði vegna hennar
Kom fram að Umhverfisstofnun felst á framkvæmdir við sjóvörn í Óslandi. Bæjarráð telur mikilvægt að þeim verði lokið við fyrsta hentugleika í samræmi við skilyrði UST.
6. Dýpkun Hornafjarðarhafnar, losun efnis í Skarðsfjörð. Svæði á náttúruminjaskrá.
Bæjarráð telur að framkvæmdin sé í fullu samræmi við gildandi skipulag á svæðinu. Starfsmönnum falið að svara fyrirspurn UST um málið.
7. Ótryggt rafmagn frá Landsvirkjun - áform um breytingu á söluskilmálum á ótryggu rafmagni og verðlagningu þess.
Hjalti gerði grein fyrir fundi nefndar um húshitun á köldum svæðum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
8. Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða. Samráðs- og kynningarferli.
Kom fram að rammaáætlun nær ekki til svæða í Sveitarfélaginu Hornafirði, þar af leiðandi verður áætlunin ekki tekinn til efnislegrar meðferðar.
9. Ósk um tímasetta áætlun um úrbætur á sindurlagnakerfi í sorpurðunarstað í Lóni
Haukur Ingi gerði grein fyrir vinnu við endurnýjun á starfsleyfi. Samhliða því er unnið að hönnun á siturlagnakerfi í sorpurðunarstaðnum í Lóni og þar verður gerð grein fyrir tímaáætlun framkvæmda. Vísað til framkvæmdasviðs. Umræður sköpuðust um endurvinnslu. Bæjarráð óskaði eftir því að upplýsingum um endurvinnslu verði komið betur til skila til íbúa og fyrirtækja á svæðinu.
10. Lífeyrisskuldbindingar SSA/útganga Sveitarf. Hornafjarðar
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við formann og framkvæmdastjóra SSA. Bæjarráð er samála um fara leið B samkvæmt minnisblaði frá bæjarstjóra. Málinu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
11. Nýtt kirkjugarðsstæði
Engar athugasemdir bárust við deiliskipulagið. Starfsmönnum falið að ljúka lögformlegu ferli.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:25


