Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 556
556. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinní ráðhúsi,22. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
1. Áhrif breytinga laga á um stjórn fiskveiða á Sveitarfélagið Hornafjörð
Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnarson frá KPMG voru í síma undir þessum lið og gerðu grein fyrir stöðu úttektar á stærra frumvarpinu. Reynir lagði fram drög að umsögn til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar sem byggir á úttekt KPMG. Framlögð umsögn samþykkt með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun.
Þrátt fyrir óheppilega og ónákvæma bókun meirihluta bæjarstjórnar um fiskveiðistjórnunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar áður en niðurstöður útttektar KPMG lágu fyrir, þá styður áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar meginefni athugasemda bæjarráðs. Um leið eru fyrri bókanir Samfylkingarinnar í bæjarráði og bæjarstjórn um málið ítrekaðar.
2. Ósk um umsögn vegna tækifærisleyfis fyrir dansleik á Hrollaugsstöðum á vegum UMF. Sindra 27. ágúst 2011
Engar athugasemdir.
3. Hugmyndir að fyrirhugaðri stækkun á leikskólanum Krakkakoti. Grunnmyndir.
Stefán kynnti teikningar frá Kristinni Ragnarssyni arkitekt.
Teikningunum vísað til meðferðar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og leikskólastjóra.
4.Umsókn vegna námsvistar barns utan lögheimilissveitarfélags
Með vísan til laga um lögheimili og fyrri fordæma í sambærilegum málum sér bæjarráð ekki forsendur fyrir að verða við umbeðinni ósk.
5. Yfirbreiðsla í sundlaug - tillaga
Samþykkt að ráðast í framkvæmdir við yfirbreiðslu á sundlaug skv. framlagðri kostnaðaráætlun upp á 5.925.633 kr.
6. Beiðni um afhendingu jafnréttisáætlunar sveitarfélagsins
Vísað til félagsmálaráðs.
7. Göngustígur vesturströnd - útboð og gögn
Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í göngustíg 2. áfanga, dags. 15.ágúst 2011. Þrjú tilboð bárust í verkið. Starfsmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Rósaberg ehf, sem bauð 3.091.920 kr í verkið sem er 97% af kostnaðaráætlun 3.183.600.- kr. Áfanginn liggur frá Leiðarhöfða fram með Ránarslóð og í átt að Óslandi.
8. Forvarnir vegna notkunar tóbaks í og við íþróttamannvirki sveitarfélagsins
Vísað til forstöðumanns íþróttamannvirkja.
9. Fyrirspurnir - bæjarráð:
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40


