Fundargerð bæjarráðs 554
554. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinní ráðhúsi,15. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201108013 - Áhrif breytinga laga um stjórn fiskveiða á Sveitarfélgið Hornafjörð. Áfangaskýrsla um áhrif "minna frumvarpsins." |
|
|
Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnarson komu inn á fundinn undir þessum lið og kynntu niðurstöður sínar um afleiðingar af minna frumvarpi um fiskveiðistjórnun 70/2011. Flosi gerði grein fyrir vinnunni. Helstu niðurstöður KPMG um áhrif minna frumvarpsins á Hornafjörð eru að veiðheimildir dragast saman sem nemur 581 þorskígildistonni sem er um 2,3% af heildaraflamarki á staðnum, að aflaverðmæti á staðnum lækkar um 190 m.kr., að samdrátturinn geti þýtt að sex störf tapist við veiðar auk afleiddra starfa og að sveitarfélagið verði af allt að 17 m.kr. í útsvartekjum sem eru 2,5% af útsvarstekjum sveitarfélagsins. Á móti kemur afli strandveiðibáta á Hornafirði sem þýðir að nettó dragist aflaheimildir saman um 450 þorskígildistonn. Kom fram að von er á niðurstöðum um áhrif stærra frumvarpsins á næstu dögum. |
| |
|
|
| 2. |
201011013 - Yfirbreiðsla í sundlaug - tillaga |
|
|
Björn Imsland kom inn á fundinn og útskýrði útfærslu við yfirbreiðsluna sem unnin hefur verið af starfsmönnum sveitarfélagsins, Verkfræðiþjónustunni og Vélsmiðju Hornafjarðar. Unnið er að gerð endanlegrar kostnaðaráætlunar.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Óskað er eftir endanlegri kostnaðaráætlun fyrir verkið. |
| |
|
|
| 3. |
201108008 - Umsókn vegna námsvistar barns utan lögheimilissveitarfélags |
|
|
Stefán gerði grein fyrir umsókninni. Starfsmönnum fræðslu- og félagssviðs falið að fara yfir umsóknina. Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
| 4. |
201108009 - Reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda. Drög 15. júlí 2011 |
|
|
Stefán gerði grein fyrir málinu og samskiptum sínum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Málið er í vinnslu starfsmanna. |
| |
|
|
| 5. |
201102052 - Stefnumótun HSSA |
|
|
Lagt fram minnisblað um stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum frá ráðgjafa, dags. 6. ágúst 2011. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Búmenn og aðkomu þeirra að uppbyggingu á íbúðum fyrir aldraða og fyrirhuguðum fundi með þeim síðar í ágústmánuði. |
| |
|
|
| 6. |
201009060 - Ný skipulagsreglugerð |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. |
| |
|
|
| 7. |
201104053 - Hitaveita á Hornafirði |
|
|
Lagt fram bréf forstjóra RARIK til ÍSOR um hitaveituáform í Hornafirði. Mat RARIK er að frekari rannsókna sé þörf áður en ráðist verðir í boranir. Áform um þær eru í undirbúningi. |
| |
|
|
| 8. |
201108005 - Bréf fjögurra foreldra á Mýrum til bæjarráðs og skólanefndar vegna aksturs barna í leikskóla |
|
|
Vísað til umræðu í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. |
| |
|
|
| 9. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15