Fundargerð bæjarráðs 553
553. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinní ráðhúsi, 8. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Stefán Ólafsson, Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1107005F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 15 |
|
|
Björn Ingi gerði 4. lið á dagskrá umhverfis- og skipulagsnefndar að umtalsefni og ræddi staðsetningu skiltis við vegamót á þjóðvegi 1 við Hafnarveg. Lagði hann til að skiltið sem er í eigu sveitarfélagsins verði fært í samræmi við ábendingar í skýrslu frá rannsóknarnefnd umferðarslysa. Bæjarráð vísar því til starfsmanna að sjá um þá framkvæmd.
Árni spurðist fyrir um 2. lið og gerði Haukur Ingi grein fyrir umræðum í nefndinni um byggingarlóðir á Leirusvæði og hugsanlegar breytingar á þeim. Reynir spurðist fyrir um næstu skref í málinu og svaraði Haukur Ingi til um að nú sé beðið eftir umsókn framkvæmdaraðila.
Árni spurðist fyrir um 6. lið á fundi nefndarinnar, byggingarframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum, og óskaði eftir aðgangi að bréfum sem umrætt mál varða.
Reynir fjallaði um athugasemdir við umgengni á lóðum í sveitarfélaginu, sbr. fundargerð. Fór fram nokkur umræða um þetta mál.
Ábendingar komu fram um að ganga þurfi frá lóð við aflagða steypustöð og huga að öryggisþáttum á svæðinu.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
201108002 - Landsmót unglinga 2013 á Hornafirði |
|
|
Bæjarráð fagnar þeirri ákvörðun Ungmennafélags Íslands að Landsmót unglinga árið 2013 verði haldið á Hornafirði. Bæjarráð telur mikilvægt að hefja undirbúning fyrir landsmótið strax. Starfsmönnum falið ræða við formann USÚ og vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 3. |
201009060 - Drög um reglugerð um landsskipulagsstefnu |
|
|
Málinu vísað til starfsmanns umhverfis- og skipulagsnefndar og jafnframt að haft verði samband við lögfræðinga Sambands ísl sveitarf. vegna málsins. |
| |
|
|
| 4. |
200809015 - Ósk um upplýsingar um skráningu í fasteignaskrá á hvaða landi byggingar Sunnuhlíðar standa |
|
|
Starfsmönnum falið að svara erindinu í ljósi fyrri samþykkta bæjarráðs þar að lútandi. |
| |
|
|
| 5. |
201108004 - Tillaga að breytingu á aðalskipulagi í landi Skaftafells |
|
|
Málinu vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 6. |
201105036 - Almenningssamgöngur á Suðurlandi |
|
|
Björn Ingi gerði grein fyrir þróun mála frá 550. fundi bæjarráðs. Rætt var um kostnaðarskiptingu á mögulegum umframkostnaði sem verður til meðferðar á næsta fundi sjórnar SASS. Málið tekið fyrir aftur eftir umfjöllun stjórnar SASS á kostnaðarskiptingu. |
| |
|
|
| 7. |
201012018 - Athugasemdir Fornleifaverndar Ríkisins vegna framkvæmda að Hofi, Öræfum. |
|
|
Bæjarráð leggur áherslu á að farið verði eftir reglum og leiðbeiningum sem fram hafa komið vegna þessa máls. |
| |
|
|
| 8. |
201009052 - Eftirlitsskýrslur v. urðunar sorps í Lóni |
|
|
Umræður sköpuðust ábendingar sem fram koma um ófrágengin svæði innan urðunarstaðarins. Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við verktaka um að bæta frágang innan svæðisins í samræmi við ábendingar frá HAUST og verksamning um urðunarstaðinn. |
| |
|
|
| 9. |
201107041 - Ráðstefna um beint lýðræði og aukna þátttöku íbúa |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundi sem hann átti með Birni S. Stefánssyni hjá Lýðræðissetrinu undir þessum lið og kynnti bæklinga um raðval og sjóðval. |
| |
|
|
| 10. |
201107044 - Auglýsing um umsókn um að halda 2. landsmót UMFÍ 50 árið 2012 |
|
|
Bæjarráð felur starfsmönnum að hafa samband við forsvarmenn USÚ og afla einnig frekari gagna um fyrirkomulag landsmóts UMFÍ 50+. |
| |
|
|
| 11. |
201012080 - Smiðja - samvinnuverkefni með áherslu á virkni ungs fólks |
|
|
Greinargerð um afrakstur samvinnuverkefnis Smiðjur fyrir ungt atvinnulaust fólk lögð fram til kynningar. |
| |
|
|
| 12. |
201104050 - Aðalfundarboð Stapa lífeyrissjóðs 2011 |
|
|
Til kynningar |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:05