Fundargerð bæjarráðs 551
551. fundur
551. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 11. júlí 2011 og hófst hann kl. 12:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
201107011 - Viðbrögð vegna rofs á Hringvegi við Múlakvísl |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samtölum við innanríkisráðherra, aðstoðarvegamálastjóra og aðra starfsmenn Vegagerðarinnar, ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneytinu, aðila í ferðaþjónustu og þingmenn vegna þeirrar stöðu sem upp er kominn vegna rofs á Hringvegi við Múlakvísl. Kom fram að í samtölum við aðila í ferðaþjónustu að afbókanir eru miklar. Bæjarráð samþykkti eftirfarandi:
Gríðarlegir hagsmunir eru fyrir ferðaþjónustu og samfélag á Suðausturlandi að samgöngur komist í samt lag sem allra fyrst. Tugir fjölskyldna hafa allt sitt lífsviðurværi af ferðaþjónustu. Samkvæmt samantekt Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði er júlí mánuður langt stærsti ferðamánuður ársins, með tæplega 40% af öllum gistinóttum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Samdráttur upp á 50% hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu í þrjár vikur í júlí mánuði telur ekki undir 390 m.kr. Ef af yrði er ljóst að áfallið er mikið og höggið þungt, fyrir samfélagið og ferðaþjónustuna á Suðausturlandi.
Mikilvægt er því að lágmarka skaðann sem mest og koma þjóðveg 1 sem best horf sem allra fyrst. Nú þegar hefur verið brugðist við og ýmsar lausnir eru í boði fyrir ferðafólk sem vill koma til svæðisins. Flugfélagið Ernir bjóða upp á flug til og frá Reykjavík og hefur fyrirtækið bætt við ferðum. Komið hefur fram að fært er um Fjallabaksleið nyrðri. Samkvæmt fréttum er unnið að því að koma samgöngum í samt lag um þjóðveg 1 við Múlakvísl og á meðan verða ferðamenn og bílar ferjaðir yfir ánna.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu á Suðausturlandi hafa þurft að takast á við hvert áfallið á fætur öðru af völdum náttúruhamfara ásamt því að halda sjó í erfiðu efnahagsástandi. Mikilvægt er að stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög á svæðinu, fari yfir stöðuna við fyrsta hentugleika ásamt aðilum í ferðaþjónustunni og komi sér saman um aðgerðir sem beinist að því að styrkja stöðu fyrirtækjanna og samfélagsins í þeim hremmingum sem að þeim hefur steðjað. |