Fundargerð bæjarráðs 550
550. fundur
550. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 5. júlí 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Kristján Sigurður Guðnason varamaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1106006F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 13 |
|
Björn Ingi spurði um áætlun um markaðssetningu á vegum Ríki Vatnajökuls og óskaði eftir nánari áætlun um verkefnið.
Árni benti á að ennþá stæði hús í Óslandi sem var fyrir atvinnustarfsemi.
Árni ræddi um áframhaldandi vinnu við gerð sóknaráætlunar. Hjalti taldi rétt að taka þá vinnu upp í bæjarráði og bæjarstjórn á haustmánuðum.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1106007F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 136 |
|
Hjalti gerði grein fyrir niðurstöðu í dýpkunarmálum og að samið verði við Dýpkunarfélagið Trölla.
Árni spurði um niðurstöður útboðsins. Upplýst að Dýpkunarfélagið hafi átt næst lægsta tilboðið en lægstbjóðandi hafi sagt sig frá verkinu.
Ásgerður ræddi um viðhald á Birni Lóðs.
Björn Ingi gerði afgreiðslu hafnarstjórnar á hugmynd um bílastæði á bryggjunni að umtalsefni í tengslum við skipulagsvinnu á Hafnarvík og Heppu svæðinu. Sagði hann mikilvægt að hugað verði vel að bílastæðum. Einnig ræddi hann um umsjón og rekstur á Miklagarði og Graðalofti og mikilvægi þess að hafa hreinar línur í þessum málum. Hjalti upplýsti að í umræðu í hafnarstjórn hafi málin verið rædd á sömu nótum.
Ásgerður rifjaði upp að samþykkt hafi verið að hafa einn umsjónarmann með leigu á húsnæði. Hjalti upplýsti um framvindu málsins.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1106009F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 12 |
|
Greint frá viðræðum við Búmenn um uppbyggingu íbúða fyrir aldraða. Einnig greindi hann frá samtölum við ráðgjafa í vinnu við stefnumótun fyrir HSSA og næstu skrefum í því ferli.
Bæjarráð ræddi um skipulag svæðisins umhverfis HSSA og vísar því til umræðu og vinnu í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
201106056 - Staða bæjarsjóðs 31. maí 2011 |
|
Kom fram að afgangur fyrstu fimm mánuði ársins er 79 m.kr. fyrir A-hluta og 120 m.kr. fyrir A-B hluta sem er í samræmi við áætlun.
Ásgerður ræddi um yfirbreiðslu fyrir sundlaugina og hvar þau mál standi. Hjalti gerði grein fyrir vinnu í vor. Einnig ræddi hún um framkvæmdir á Mjallhvíti.
Björn Ingi óskaði eftir lokuppgjöri fyrir gervigrasvöllinn.
Rætt um stöðu framkvæmda og sérstaklega kostnaði vegna breytinga í ráðhúsi. |
| |
|
|
| 5. |
201106057 - Ósk um ums. á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, mál 827 |
|
Gerð grein fyrir framvindu verkefnis á vegum KPMG. |
| |
|
|
| 6. |
201105062 - Samningur við Sporthöllina |
|
Vísað til bæjarstjóra. |
| |
|
|
| 7. |
201103085 - Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar |
|
Framlagður samningur samþykktur. Jafnframt samþykkt að hann taki gildi frá og með 1. september nk. |
| |
|
|
| 8. |
201106028 - Tillögur um aðkomu sveitarfélagsins, ráðuneytis og skóla að fjármögnun náms fatlaðs nemanda í Fas |
|
Vísað til starfsmanna. |
| |
|
|
| 9. |
201106061 - Stuðningur við nemanda í Grunnskóla Hornafjarðar og fjölskyldu hans |
|
Framlögð tillaga samþykkt. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um afrakstur starfsins að fenginni reynslu af því. |
| |
|
|
| 10. |
201104082 - Skólaakstur 2011-2012 - útboð |
|
Gerð grein fyrir framvindu mála frá því að tilboð voru opnuð. Kom fram að lægstbjóðandi hafi aflað allra tilskilinna leyfa og trygginga. Starfsmönnum falið að ljúka samningum við lægstbjóðanda. |
| |
|
|
| 11. |
201106062 - Stækkun Krakkakots tilboð í hönnun |
|
Samþykkt. |
| |
|
|
| 12. |
201105036 - Almenningssamgöngur á Suðurlandi |
|
Gerð grein fyrir gögnum og fundum um málið. Kom fram að stefnan sé að þjónusta almenning og ferðaþjónustuna jafnvel eða betur en áður. Meginbreyting er þó yfir veturinn að stefnt er að pöntunarþjónustu sem felur í sér að ferðir falli niður sé ekki pantað í þær með nokkra klst fyrirvara. Bæjarráð samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leyti. |
| |
|
|
| 13. |
201106066 - Ársskýrsla Brennu-Flosa 2010 |
|
Samþykkt. Bæjarráð leggur áherslu á að ef eignir verða seldar að þá fái eigendur greitt í samræmi við eignarhlut. |
| |
|
|
| 14. |
201106067 - Ósk um umsögn á útg.gistiheimilis að Brekku í Lóni |
|
Engar athugasemdir. |
| |
|
|
| 15. |
201106058 - Hugsanleg stofunun útibús lögmannsstofu á Höfn |
|
Bæjarstjóra falið að ganga til samninga um lögfræðiþjónustu fyrir sveitarfélagið. Forsendur samninga er að stofan verði með starfstöð á Höfn. |
| |
|
|
| 16. |
201106060 - Þekkingaruppbygging á byggðastefnu ESB - með aðstoð TAIEX |
|
Til kynningar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:21