Fundargerð bæjarráðs 548
548. fundur
548. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinní ráðhúsi, 6. júní 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Kristján Sigurður Guðnason varamaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1105009F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 14 |
|
|
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis- og skipulagsstjóri mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði hann meðal annars grein fyrir skipulagi við Ægissíðu og reglum um úthlutun lóða. Bæjarráð samþykkir að taka reglur og úthlutun lóða fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
201106004 - Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga 787 |
|
|
Árni spurðist fyrir um þriðja lið á dagskrá er varðar tónlistarnám í framhaldsskóla og hvort máið varði hagsmuni íbúa á svæðinu. Stefán upplýsti að nokkur tilvik hafi komið upp fyrir nokkrum misserum sem málið varðar.
Reynir ræddi um uppgjör hjá sveitarfélögum. Óskaði eftir upplýsingum ef þær lægju fyrir.
Fundargerð til kynningar.
|
| |
|
|
| 3. |
201106003 - Tillaga að skiptingu stofnbúnaðar 2011 |
|
|
Farið yfir tillögu að skiptingu stofnbúnaðar. Rætt um heildarfjárhæð til stofnbúnaðar og þörf fyrir að endurskoða upphæðina fyrir fjárhagsárið 2012. Einnig farið yfir tölvumál og kortlagningu á aldri og ástandi þeirra.
Framlögð tillaga samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
201102063 - Íbúaþing |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir skýrslu sem ráðgjafar hafa sent frá sér. Lagði til að henni yrði vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar í tengslum við fyrirhugaða stefnumótun í atvinnu- og menningarmálum og til umhverfis- og skipulagsnefndar vegna aðalskipulagsvinnu. Greindi frá því að næsta skref í vinnu við gerð aðalskipulags væri að fullklára skipulagsgreinargerð sem væri kominn í vinnslu og kortavinnslu sem yrði ráðist í á haustmánuðum. |
| |
|
|
| 5. |
201105037 - Leikskólamál |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fundum með starfsfólki Lönguhóla annars vegar og starfsfólki Krakkakots hins vegar þriðjudaginn 7. júní sl. Greindi frá umræðum um niðurstöðum rýnihóps. Sagt frá tillögu sem flutt verður formlega á fundi bæjarstjórnar nk. fimmtudag. Tillaga gerir ráð fyrir að byggt verði ein deild við Krakkakot til að nægjanlegt rými sé til þess að tryggja betur en áður að öll börn eldri en ársgömul eigi möguleika á leikskólaplássi.
Árni sagði að þessi leið myndi í sínum huga ekki útiloka einn sameiginlegan leikskóla.
Björn Ingi sagði að hann vildi ekki útiloka byggingu nýs sex deilda leikskóla í framtíðinni.
Stefán sagði frá umræðum um leikskólamál á fundi Grunns.
Kristján spurði um fund með starfsfólki leikskólanna og viðhorf þeirra.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.
|
| |
|
|
| 6. |
201105020 - Breytingar á fiskveiðistjórnun - áhrif á Hornafjörð |
|
|
Lagt fram tilboð frá KPMG. Samþykkt. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun. |
| |
|
|
| 7. |
201105019 - Póstþjónusta í dreifbýli |
|
|
Lagt fram tölvupóstssamskipti bæjarstjóra og starfsmanns Íslandspóst. Vísað til starfsmanna til frekari úrvinnslu. Bæjarráð leggur áherslu á að hagsmunir íbúa verði hafðir að leiðarljósi við skipulag póstþjónustu. Reynir sagði frá samskiptum við íbúa í dreifbýli sem sagði að raddir væri uppi um að frekar vildu þau fá póstinn sjaldnar en þurfa að sækja hann um lengri leið að þjóðvegi. |
| |
|
|
| 8. |
201103034 - Val á lit á flísar á Heppuskóla - útveggjaklæðning |
|
|
Björn Imsland umsjónarmaður fasteigna mætti á fundinn undir þessum lið. Sýndar voru tillögur að flísum á Heppuskóla. Bæjarráð samþykkir diamante bianco og diamante rosso. |
| |
|
|
| 9. |
201106006 - Minnisblað vegna samnings við Listasafn Íslands sýningar Tolla og sýningaaætlun f. Svavarssafns |
|
|
Vísað til forstöðumanns Menningarmiðstöðvar að ljúka við gerð samninga en leggja samninginn fyrir áður en skrifað er undir hann. Bæjarráð vekur athygli á leiguverði fyrir Kartöfluhús og skyldum Listasafns Íslands vegna fræðslusýningar.
Reynir spurði um merkingar á ráðhúsi fyrir Svavarssafn.
|
| |
|
|
| 10. |
201105058 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis f. gististað II að Dynjanda |
|
|
Engar athugasemdir. |
| |
|
|
| 11. |
201106007 - Ósk um umsögn á útg. rekstrarleyfis fyrir Farfuglaheimilið að Vagnstöðum |
|
|
Engar athugasemdir. |
| |
|
|
| 12. |
201106008 - Ósk um umsögn á drögum að nýrri byggingarreglugerð |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og umhverfis- og skipulagsstjóra. |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Árni spurðist fyrir um reglur um öryggi sundstaða og framfylgd þeirra. Stefán upplýsti um reglugerð sem gildir um slík mál og hvernig skipulagi er háttað í sundlaug Hafnar. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.55