Fundargerð bæjarráðs 546
546 . fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 23. maí 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Reynir Arnarson formaður, Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður, Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
| 1. |
201105022 - Stjórn HSSA 11. fundur |
|
|
Árni Rúnar spurði um starfsmannamál og hvort búið sé að ráða í stöður lækna hjá HSSA fyrir sumarið. Einnig spurði hann um samskipti HSSA og heilbrigðisráðuneytisins í tengslum við liðinn önnur mál. Ásgerður gerði grein fyrir að erfiðlega gangi að ráða lækna hjá HSSA einnig kom fram að efiðlega hafi gengið að ráða í sumarstörf hjá HSSA. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum milli HSSA og ráðuneytisins, búið er að óska eftir fundi með ráðuneytinu. Umræður sköpuðust um stefnumótun fyrir HSSA.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
201105013 - Samantekt á tillögum, samþykktum og ályktunum bæjarstjórnar frá 15. júní 2010 |
|
|
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Árni Rúnar benti á að ekki hafi farið fram umræða um tillögu sem samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn í janúar 2011 um viðræður bæjarráðs við Skinney - Þinganes um nýtingu gjafar til byggingar á knattspyrnuhúsi. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við Skinney - Þinganes um málið. |
| |
|
|
| 3. |
201007035 - Styrkumsókn v. Skólahreysti |
|
|
Vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar. Kom fram að kostnaður sveitarfélagsins vegna Skólahreysti er talsverður, vegna fjarlægða á keppnisstað. |
| |
|
|
| 4. |
201105018 - Gassöfnun á urðunarstað |
|
|
Haukur kynnti verkefni sem meðal annars tók á metangas myndun á urðunarstað í Lóni. Málinu vísað til starfsmanna. |
| |
|
|
| 5. |
201105019 - Póstþjónusta í dreifbýli |
|
|
Frestað. |
| |
|
|
| 6. |
201105020 - Breytingar á fiskveiðistjórnun |
|
|
Hjalti kynnti hugmynd að úttekt á áhrifum kvótafrumvarpa á samfélagið á Hornafirði. Taldi mikilvægt að slík úttekt yrði gerð sérstaklega vegna hversu mikilvægur sjávarútvegur er fyrir staðinn. Jafnframt greindi hann frá samtali sínum við þingmann kjördæmisins. Árni Rúnar fagnar því og þakkar fyrir að bæjarráð fái tækifæri til að ræða þessa tillögu áður en hún fer lengra. Árni Rúnar lagði áherslu á að vandað yrði til verka svo að trúverðugleiki úttektarinnar verði ekki dregin í efa. Einnig spurðist hann fyrir um hvort viðskiptin standist innkaupareglur sveitarfélagsins. Hjalti fjallaði um markmið með úttektinni og hæfi KPMG til að vinna hana. Umræður sköpuðust um úttektina og not hennar fyrir önnur byggðarlög.
Bæjarráð óskar eftir að fulltrúi frá KPMG komi inn á næsta fund bæjarráðs.
|
| |
|
|
| 7. |
201103034 - Endurbætur Heppuskóla - útveggjaklæðning |
|
|
Björn Imsland og Stefán Ólafsson komu inn á fundinn undir þessum lið. Björn Imsland gerði grein fyrir yfirferð tilboða. Einnig ósk verktaka um að fá aðstöðu til gistingar fyrir starfsmenn í Heppuskóla á meðan verkið stendur yfir verði af samningum. Ósk um gistiaðstöðu hafnað. Verið er að fara yfir efnisskröfur. Málið tekið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
| 8. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Eftirfarandi fyrirspurn lögð fram af áheyrnarfulltrúa samfylkingarinnar:
1. Af hverju var bæjarráð ekki upplýst um það fyrir síðasta bæjarráðsfund að til stæði að taka ráðningu starfsmanns í stöðu forstöðumanns íþróttamannvirkja fyrir á fundinum?
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs hafði ekki tekið ákvörðun um val á umsækjanda fyrr en mánudaginn 16. maí, þann sama dag og bæjarráði var kynnt niðurstaðan.
2. Telja bæjarstjóri og framkvæmdastjóri fræðslu ? og félagssviðs ekki að bæjarfulltrúar eigi rétt á því að vita með hæfilegum fyrirvara hvaða mál verða tekin á dagskrá svo þeir geti undirbúið sig með viðeigandi hætti?
Forstöðumaður íþróttamannvirkja er ekki einn af helstu stjórnendum sveitarfélagsins og heyrir því undir næsta yfirmann að ráða í þá stöðu. Framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs þótti hins vegar rétt að kynna niðurstöðuna fyrir bæjarráði og þótti eðlilegra að nota tækifærið þegar bæjarráð kom saman þennan dag en að senda út tilkynningu með tölvupósti.
Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Hefði áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar haft vitneskju um að greint yrði frá ákvörðun framkvæmdastjóra fræðslu ? og félagssviðs um ráðningu í starf forstöðumanns íþróttamannvirkja á síðasta fundi bæjarráðs þá hefði varamaður verið boðaður á fundinn þar sem um vanhæfi var að ræða hjá aðalmanni í þessu máli og væntir efnislegs svars við 2. lið fyrirspurnarinnar á næsta fundi bæjarráðs.
Reynir gerði grein fyrir ferð bæjarráðsmanna og bæjarstjóra á íbúafund í Öræfum vegna áhrifa eldgoss í Grímsvötnum.
|
| |
|
|
| 9. |
1105002F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 134 |
|
|
Hjalti sagði frá samskiptum sínum við Siglingastofnun um málið. Bæjarráð leggur áherslu á að verkið hefjist sem allra fyrst. Einnig að samkvæmt útboðsgögnum hafi verklok átt að vera 15. maí 2011. Ásgerður spurðist fyrir um starfsmannamál hafnarinnar. Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 10. |
201103003F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 10 |
|
|
Ásgerður spurði um opnunartíma upplýsingarmiðstöðvar. Hjalti gerði grein fyrir fyrirhuguðum opnunartíma upplýsingarmiðstöðvarinnar í sumar.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
1.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.