Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 544
544. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 9. maí 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
2. Fundargerð Almannavarnarnefndar, 40, fundur 4. maí 2011
Fjallað var um flugslysaæfinguna sem fram fór um síðustu helgi.
Fundargerð samþykkt.
3. Fundargerð Hafnarstjórnar, 134. fundur 5. maí 2011.
Umræður sköpuðust um dýpkun Hornafjarðarhafnar. Hjalti gerði grein fyrir fyrirhuguðum fundi með Siglingastofnun á morgun þriðjudag, enn er verið að vinna að samningagerð við lægstbjóðanda. Ásgerður spurðist fyrir um ráðningu hafnarvarðar. Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála. Björn Ingi spurðist fyrir um fundartíma hafnarstjórnar. Reynir gerði grein fyrir að fundartími hafnarstjórnar er í endurskoðun. Björn Ingi spurðist fyrir um breytingar á gjaldsskrá hafnarinnar. Hjalti gerði grein fyrir breytingum á gjaldsskránni. Guðrún Ingimundardóttir spurðist fyrir um Melabryggju. Umræður sköpuðust um enduruppbyggingu Melabryggju.
Fundargerð samþykkt.
4. Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar, 13. fundur 4. maí 2011
Umræður sköpuðust um grenndarkynningu á Hofi. Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmynd að stýringu umferðar á hafnarsvæði við Bátstanga og fyrirhuguðum kostnaði við endurnýjun slitlags á Ófeigstanga, gerði hann grein fyrir að áætlaður kostnaður við endurnýjun slitlags er 1.5 – 2 m.kr. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og vísar því til endurskoðunar fjárhagsáætlunar. Haukur Ingi gerði grein fyrir vinnu við gerð deiliskipulags við Hafnarvík – Heppu. Haukur Ingi gerði grein fyrir uppbyggingu hraðatakmarkandi aðgerða við Víkurbraut. Umræður sköpuðust um sölu á Pakkhúsinu. Haukur Ingi gerði grein fyrir umræðum um úthlutun lóða á Ægissíðu fyrir frístundabúskap. Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir málið og kynna aftur á næsta fundi.
Fundargerð samþykkt.
5. Rýnihópur um leikskólamál, 3. fundur 28. apríl 2011.
Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála. Verið er að taka saman skýrslu rýnihópsins og fara yfir útfærslur á mismunandi leiðum á uppbyggingu sjöttu leikskóladeildarinnar. Guðrún Ingimundardóttir vakti máls á því hvort þörf er á annarri könnun meðal foreldra til að kalla fram skýrari niðurstöður. Umræður sköpuðust um könnunina og upplýsingagildi hennar. Björn Ingi taldi mikilvægt að þátttakendahópur verði víkkaður út þegar næsta könnun verður framkvæmd.
Fundargerð samþykkt.
6. Fundargerð stjórnar sambands ísl. Sveitarfélaga 786. fundur.
Til kynningar.
7. Staða sveitarsjóðs 31. mars 2011
Ásta fylgdi málinu úr hlaði, fór hún yfir stöðuna og svaraði fyrirspurnum.
8. Starfsmannamál
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir þeim kostnaði sem fylgir því að ráða tímabundið í starf starfsmannastjóra, kostnaður er áætlaður 2 m.kr. Umræður sköpuðust um málið. Bæjarráð samþykkir að ráða tímabundið í starfið, vísar kostnaði til endurskoðunar á fjárhagsáætlun. Björn Ingi sagðist styðja ráðninguna en lagði áherslu á að komi til þess að staða starfsmannastjóra verði varanleg verði hún auglýst. Bæjarráð tók undir skoðun Björns Inga.
9. Sveitarstjórnarlög
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Fjallaði hann um drög að lögunum, fór yfir umsagnarferli o.fl þætti. Bæjarráð hefur kynnt sér drögin og umsögn Sambands ísl. Sveitarfélaga og gerir ekki athugasemdir.
10. Samningur við Sporthöllina
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir fundi sínum við rekstraraðila Sporthallarinnar, fram kom að rekstraraðilar óska eftir tveggja ára samningi. Gerði hann grein fyrir ósk húseigenda um hækkun leigu á húsnæðinu. Umræður sköpuðust um upphaflega samninga milli aðila. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
11. Útboð á skólaakstri
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir útboðsgögnunum. Umræður sköpuðust um gögnin, gerðar voru smávægilegar breytingar á þeim. Bæjarráð samþykkir að auglýsa útboð á skólaakstri í samræmi við þær breytingar sem komu fram á fundinum.
12. Æfingasvæði fyrir Skotveiðifélagi Hornafjarðar
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði, fór yfir drög að samningi og staðsetningu. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
13. Nýtt kirkjugarðsstæði - deiliskipulag
Haukur Ingi fylgdi málinu úr hlaði. Bæjarráð vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
14. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir veitingarstaðinn Trölla að Víkurbraut 6
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfisins.
15. Umsókn um lóð 1-3 við Ægisíðu
Bæjarráð hafnar umsókninni að svo komnu máli og vísar í umræður undir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar.
16. Hljómsveitin Monroe, ósk um styrk til kaupa á hljóðkerfi
Bæjarráð hafnar umsókninni en vísar í árlegar styrkveitingar sveitarfélagsins.
17. Innsend erindi
18. Talnakönnun, áfallnar lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins.
Málinu vísað til fjármálastjóra.
19. Ferðamálafélag Austur – Skaft., samþykkt frá aðalfundi 2011.
Málinu vísaði til atvinnu- og menningarmálanefndar.
20. Fyrirspurnir.


