Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 543
543. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjaðar haldinn í ráðhúsi mánudaginn 2. maí og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristján Sigurður Guðnason,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201104008F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 11
Hjalti greindi frá undirbúningsvinnu við flutning Gömlubúðar. Árni ræddi stofnskrá Listasafns og tók undir orð Maríönnu. Hjalti fór yfir vinnu við eflingu list- og verkgreina, fjallaði hann um tillögur starfshóps þar um. Hjalti greindi einnig frá vinnu sem á sér stað um orkumál á köldum svæðum. Björn Ingi spurðist fyrir um hvort hugmyndir væru uppi um að færa umsjón með vinnumarkaðsúrræðum. Bæjarráð bendir á að nauðsynlegt er að hafa þjónustu við atvinnuleitendur í sem mestri nálægð við þá. Rætt var um uppgjör vegna vörslusviptingar. Kristján vakti máls á list- og verkgreinum, hvort tímabært er að ráða verkefnastjóra til að leiða vinnu við uppbyggingu. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um kostnað við ráðningu verkefnisstjóra og gera drög að erindisbréfi þar sem verkefni og tímarammi verða skilgreind. Björn Ingi velti því upp hvort verkefni sem þetta eigi heima hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
3. 201104070 - Fundargerð skóla,-íþrótta og tómstundanefndar 10. fundur
Árni Rúnar fjallaði um 3. lið og taldi óheppilegt að framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs hefði ekki fengið vitneskju um erindi skólastjórnenda fyrifram. Hjalti fjallaði um leikskólamál, gerði hann grein fyrir störfum rýnihóps um leikskólamál. Björn Ingi ræddi störf rýnihópsins, fjallaði hann um barngildisviðmið o.fl þætti, spurðist hann fyrir um hvort rýnihópurinn skili af sér lokaskýrslu. Hjalti sagðist gera ráð fyrir að skýrsla verði lögð fram eftir að stýrihópurinn líkur störfum. Árni spurðist fyrir um hvort æskilegt sé að boða skólastjórnendur á fund til að fara yfir þau mál sem koma fram í erindi þeirra. Starfsmönnum falið að fara yfir skýrslu sem unnin var um faglega ráðgjöf frá því í maí í fyrra. Björn Ingi spurðist fyrir um störf forvarnarhópsins. Kristján gerði grein fyrir hvers er að vænta frá hópnum, í undirbúningi eru skrif í miðlum á næstu vikum. Björn Ingi minnti á skyldur sveitarfélagsins í forvarnarstarfi. Umræður sköpuðust um forvarnarmál í kjölfarið.
4. 201104073 - Göngubrú yfir Hólmsá
Bæjarráð telur verkefnið mikilvægt en hafnar umsókninni að svo komnu máli.
5. 201104072 - Staða sveitarfélagsins í sóknaráætlun
Hjalti fór yfir stöðu sveitarfélagsins í sóknaráætlun 2020. Rætt var um stöðu sveitarfélagsins í byggðaáætlun stjórnvalda og hvernig tryggja megi samfélaginu sem sterkasta stöðu í þeirri vinnu sem i gangi er. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu á grundvelli bókunar bæjarstjórnar frá því febrúar og bókunar bæjarráðs frá 11. apríl sl.
6. 201101066 - Vinnustaðagreining 2011 - kynning á niðurstöðum
Jón Kristján Rögnvaldsson mætti á fundinn undir þessum lið kynnti helstu niðurstöður vinnustaðagreiningarinnar. Hjalti gerði tillögu um hvernig fylgja beri niðurstöðum eftir. Bæjarráð tekur málið fyrir á næsta fundi.
7. 201104036 - Fjarskiptamál - tetrafjarskipti
Björn Ingi kynnti málið og taldi að það þyrfti að kaupa sex stöðvar hingað á svæðið. Bæjarráð samþykkir allt að 1,8 m.kr. til kaupa og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2011.
8. 201104038 - Endurbætur á fráveitu frá tjaldsvæði
Haukur Ingi kynnti málið. Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunar 2012.
9. 201104082 - Skólaakstur - undirbúningur útboðs
Stefán gerði grein fyrir undirbúningi að útboðsgögnum.
10. 201103084 - Ársreikningur HSSA 2010
Ásta H. Guðmundsdóttir mætti á fundinn kl. 15.30. Ásta kynnti ársreikninginn. Bæjarráð vísar ársreikningi Heilbrigðisstofnunar Suðaustulands til bæjarstjórnar.
11. 201010050 - Innsend erindi:
12. 201104048 - Ósk um umsögn á frumvarpi til sveitarstjórnarlaga, 726. mál.
Bæjarstjóra falið að taka saman greinagerð um málið og leggja fyrir bæjarráð.
13. 201104071 - Ósk um ums. á frumvarpi til laga um grunnskóla 747. mál
Til kynningar
14. 201104074 - Kynnisferð sveitarstjórnarmanna til Brussel 5.-9.júkí n.k.
Bæjarráð samþykkir að ekki verið farið í kynnisferð til Brussel að þessu sinni.
15. 201104076 - Söfnun raftækjaúrgangs
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
16. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Björn Ingi gerði rusl á brennustæði að umtalsefni.


