Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 541
541. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 11. apríl 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201104001F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 133
Rætt um samning um dýpkun. Árni spurði um hvort Hafnarstjórn hafi samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda þrátt fyrir efasemdir um að hann ráði við verkið. Reynir gerði grein fyrir umræðum í Hafnarstjórn og sagði að niðurstaðan hafi verið sú að á þessum tímapunkti hafi ekki verið forsendur til að hafna tilboði lægstbjóðanda.
Björn Ingi spurði um gjaldskrá hafnarinnar er varðar sölu rafmagns og hvort menn vilji fremur rukka jafnframt fyrir tengigjöld eða láta krónur á hverja notaða kwst duga. Hjalti gerði grein fyrir umræðum á fundinum.
Árni spurðist fyrir um heimavigtunarleyfi og vigtun með uppsjávarafurðir. Reynir gerði grein fyrir málinu.
Reynir lagði áherslu á að Hafnarstjórn fái fulltrúa í viðræðunefnd um samninga um dýpkun.
Fundargerð samþykkt.
3. 201103010F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 12
Árni spurðist fyrir um útboð á Heppuskóla og hönnun á breytingum innanhúss. Stefán upplýsti að um væri að ræða um viðhald utanhúss í sumar og væri hönnun innanhúss ekki að fullu lokið. Horft væri til þess að hefja endurbætur innanhúss á næstu tveimur árum. Árni taldi mikilvægt að við lokahönnun innanhúss að horft yrði til þess hversu margir árgangar yrðu í Heppuskóla til lengri tíma litið.
Björn Ingi ræddi um kirkjugarðsstæði. Sagði frá framlagi kirkjugarðssjóðs og fór yfir umræðu um bílastæði við kirkjuna og hvernig mætti fjölga þeim, t.d. uppmeð vegi að kirkjunni. Þá ræddi Björn Ingi um umræður um íbúaþing á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar og m.a. hugmyndir um að leggja göngustíg frá Höfn í Nes meðfram strandlengjunni í stað þess að gera það meðfram þjóðveginum. Þá rifjaði hann upp verkefni sem var í burðarliðnum um mitt ár 2008 um að koma á fót vistvænum orkugjöfum fyrir farartæki. Lagði hann til að sveitarfélagið markaði sér skýra stefnu og tæki forystu í þessum málum á landsvísu. Hjalti benti á umræðu á síðasta fundi atvinnu- og menningarmálnefndar um að sveitarfélagið setti sér orkustefnu og fannst rétt að vista hugmynd Björns Inga innan hennar.
Ásgerður lagði til að fræðsla um sorpflokkun yrði yfirfarin og haldið að íbúum. Hjalti ræddi um hugmynd sem hefur verið rædd meðal starfsmanna að taka upp tveggja tunnu kerfi.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um lóðarstækkun á Júllatúni 9, 11 og 13. Áður var búið að samþykkja stækkun á Júllatúni nr. 7.
Björn Ingi ræddi um kynningu Gunnlaugs Rúnars á stöðu fjölda gáma víða um bæinn og að mikilvægt væri að taka þau mál fastari tökum, m.a. vegna eldhættu.
Fundargerð samþykkt.
4. 201104010 - Rýnihópur um leikskólamál fundargerðir
Árni spurði um erindisbréf, tíma- og verkáætlun hópsins. Upplýst að hópnum hafi ekki verið sett erindisbréf en hlutverk hans væri að ræða um efni skýrslu sem starfsmenn unnu um leikskólamál og stefnt væri að ljúka vinnu fyrir sumarið.
Rætt um þá hugmynd að hafa fimm ára börn í húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar. Stefán upplýsti að kannað hafi hvort sú lausn væri möguleg en komið í ljós að svo er ekki næsta vetur. Þá sagði hann frá vinnu sinni í að safna upplýsingum um hvernig sveitarfélög almennt taka ákvarðanir varðandi fjölda leikskólabarna í húsnæði leikskólanna.
Björn Ingi spurði um umræður um tímann frá 13-17 og upplýsti Stefán að annar af fulltrúum foreldra hafi vakið þá umræðu. Þá fagnaði Björn Ingi hugmynd að sex deilda leikskóla en sæi hann frekar fyrir sér við Lönguhóla en Krakkakot. Einnig ræddi hann um hugmynd að leigu á húsnæði til að taka á biðlistum.
Árni spurði um af hverju gangi ekki að hafa 5 ára börn í húsnæði grunnskólans.
Björn Ingi rifjaði upp umræðu á sínum tíma um fjölda deilda á hverjum leikskóla.
Stefán svaraði spurningu Árna um að það sem ráði því að 5 ára börn komist ekki að, er lóð skólans, mötuneyti, tímaskortur og skólinn væri nýkominn úr miklum breytingum.
Fundargerð samþykkt.
5. 201104011 - Stjórn Hafnasambands sveitarfélaga fundargerðir
Til kynningar.
6. 201102062 - Tilboð í Pakkhúsið
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri geri gagntilboð.
7. 201104009 - Ósk um umsögn á útg. vínveitingaleyfis f. gistiheimili Breiðabólstað 2 Gerði
Engar athugasemdir.
8. 201104008 - Ósk um umsögn á útg. á rekstrarleyfi f. veitingastað að Hafnarbraut 2
Engar athugasemdir.
9. 201104007 - Ósk um ums. á útgáfu rekstrarleyfis v. Breiðabólstaða 3 Lund
Engar athugasemdir.
10. 201103034 - Útveggjaklæðning Heppuskóla - útboðsgögn- verður sentí tölvupósti
Bæjarráð samþykkir framlögð gögn og felur starfsmönnum að ljúka við frágang á þeim í samvinnu við arkitekta og auglýsa sem fyrst.
11. 201101033 - List og verkgreinar á Hornafirði - skýrsla send í tölvupósti
Hjalti gerði grein fyrir skýrslunni og umsókn í það sem ríkisstjórnin kýs að kalla "skötuselssjóðinn." Bæjarráð sammála um að leita allra leiða til að fjármagna verkefnisstjóra til að koma verkefninu lengra áleiðis.
12. 201104018 - Málefni ÞNA - kynnt á fundinum
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við forystumenn ÞNA. Einnig sagði hann frá fundum um sóknaráætlun, eflingu sveitarstjórnarstigsins og með forystumönnum í Nýheimum. Bæjarstjóra falið að setja saman greinargerð um ofangreind mál og leggja fyrir bæjarráð. Bæjarráð er samála um að koma til móts við óskir ÞNA um stuðning út þetta fjárhagsár.
13. 201010050 - Innsend erindi:
14. 201102023 - Sjóvörn í Óslandi - ákvörðun um matsskyldu
Til kynningar.
15. 201102025 - Ályktun frá aðalfundi Búnaðarfél. Lónmanna um sauðfé frá Stórhóli í Lónsveit
Hjalti gerði grein fyrir atburðarrás í málinu. Bæjarstjóra falin umsjón með málinu.
16. 201104012 - Ósk um tilnefningur 3ja fulltrúa í svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Reynir fór yfir málið. Tekið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
17. 201104017 - Ályktun skólastjórnenda í sveitarfélaginu um faglega ráðgjöf
Stefán greindi frá erindinu og aðdraganda þess. Mikil umræða skapaðist um skipan sérfræðiþjónustu við skóla, úttekt Hins og þessa ehf. og fleiri atriði er koma frá í ályktun skólastjórnenda. Vísað til skólanefndar.
18. 201104015 - Aðalfundur Jöklaseturs ses. 2011
Hjalti gerði grein stöðu Jöklaseturs. Bæjarráð er sammála um að rekstur Jöklasýningar verði endurskoðanir í heild.
19. 201104013 - Aðalfundarboð Sláturfél. Búa svf. 2011
Upplýst að formaður atvinnu- og menningarmálanefndar muni sitja fundinn.
20. 201104014 - Fyrirspurn um leigu á húsnæði fyrir Kiwanisþing
Vísað til bæjarstjóra.
21. 201104016 - Ósk um styrk v. Austfjarðatröllsins 2011
Vísað til bæjarstjóra.
22. 201104019 - Ályktun Sambandsþings íþróttasambands fatlaðra v. hugmynda um breytingu á lögum um Lottó
Bæjarráð tekur undir með bréfriturum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.55


