Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 539
539. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 28. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Hjalti Þór Vignisson, Stefán Ólafsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir,
Fundargerð ritaði: Stefán Ólafsson, Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs
Dagskrá:
1. 201103066 - Fundargerð stjórnar HSSA 8. fundur
Bæjarráð tekur undir með stjórn HSSA að R3 ráðgjöf taki að sér vinnu við stefnumótun fyrir Heilbrigðistofnun Suðausturlands
Fundargerð samþykkt.
2. 201103070 - Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar - 9
Í fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar segir: "Þá leggur nefndin til að farið verði eftir tillögu 2 að skipaður verði rýnihópur sem í sitji tveir fulltrúar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, þ.e. einn frá minnihluta og einn frá meirihluta, einn leikskólastjóri, einn starfsmaður frá hvorum leikskóla og tveir fulltrúar foreldra, einn frá hvorum skóla. Leikskólastjórar, fulltrúi starfsmanna og fulltrúi foreldra á fundinum halda utan um val á fulltrúum á sínum í rýnihópinn. Starfsmaður nefndarinnar verði framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs." Bæjarráð samþykkir skipan rýnihópsins með þeirri breytingu að einn fulltrúi komi frá hverju framboði sem fulltrúa á í bæjarstjórn.
Rætt um þau verkefni sem rýnihópurinn á fyrir höndum. Einnig var rætt um biðlista í leikskóla, dagmæður o.fl. þætti. Guðrún velti upp þeirri hugmynd að kostnaður foreldra sem eiga börn í leikskóla og þeirra sem eiga börn hjá dagmæðrum verði sá sami miðað við sama dvalartíma. Fólk er hvatt til að kynna sér skýrsluna sem fer á heimasíðu sveitarfélagsins eftir þennan fund. Þá er einnig stefnt að opnum fundi skólanefndar um skólamál, þar á meðal málefni leikskólanna. Hjalti benti á það jákvæða viðhorf sem birtist í skýrslunni hjá foreldrum í garð leikskólanna.
Rætt um fyrirhugað námskeið í dansi, sbr. fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundnefndar.
Bæjarráð tekur undir að sótt verði um Unglingalandsmót 2013 og 2014.
Stefán ræddi kostnað sem fylgdi viðbrögðum við umbótaáætlun fyrir Grunnskóla Hornafjarðar sem er í vinnslu eftir úttekt á skólastarfinu.
Einnig var rætt undir þessum lið um gæðamál hjá sveitarfélaginu í heild. Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði verkefnastjóri 2 í 50% starf sem sinni þá kennslu að öðru leyti til að fylla heila stöðu. Einnig samþykkt að bæta í "pott" til að kaupa vinnu af kennurum vegna þátta sem fylgja þeirri sameiningu sem átt hefur sér stað í grunnskólanum. Einnig skal bæta 500 þús. kr til vettvangsferða nemenda. Kostnaði að upphæð kr. 4,5 millj. vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun. Ákvörðun þessi miðast við skólaárið 2011 - 2012.
Guðrún ræddi 5. lið, málörvun leikskólabarna. Ásgerður og Stefán gerðu grein fyrir umræðum á fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar um málið.
Undir þessum lið var rætt um hin miklu og tímafreku verkefni sem eru á höndum skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
Fundargerð samþykkt.
3. 201103011F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 215
Ásgerður spurðist fyrir um útgáfu á fjölskyldustefnu. Hjalti greindi frá stöðu mála. Bent á að stefnuna er ekki að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Guðrún spurðist fyrir um flutningsstyrki og húsaleigustyrki. Upplýst að þeir styrkir eru ekki lengur til staðar.
Fundargerð samþykkt.
4. 201103071 - Viðhorf og þróun, skýrsla um leikskólamál
Vísað til umræðu sem var um fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
Bæjarráð sammála um að birta skýrsluna í heild sinni á heimasíðu sveitarfélagsins og að starfsmenn skrifi fréttatilkynningu sem send verður á fjölmiðla staðarins.
5. 201103072 - Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Bæjarráð samþykkir fram lagðar reglur um leikskóla.
6. 201002063 - Ósk um endurnýjun leigusamnings vegna tjaldsvæðis
Um er að ræða samning með fimm ára gildistíma.
Bæjarráð samþykkir fram lagðan samning og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
7. 201012038 - Reglur um úthlutun leiguíbúða
Bæjarráð samþykkir fram lagðar reglur og vísar þeim til bæjarstjórnar.
8. 201102054 - Staðsetning 7. bekkjar
Fram kom í máli bæjarstjóra að svör við fyrirspurninni liggi ekki fyrir og greindi hann frá ástæðu þess. Svar berist á næsta fundi bæjarráðs.
9. 201010050 - Innsend erindi:
10. 201103067 - Dagur umhverfisins 2011
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
11. 201103068 - Niðurskurður í skólum
Vísað til skóla-, íþrótta- og tómsundanefndar.
12. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Engar bárust.
13. 201102011 - Önnur mál
Stefán gerði grein fyrir samningaviðræðum við Hólabrekku ehf. Greindi hann einnig frá samtölum við starfsmanna Sambands ísenskra sveitarfélaga um málið. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið fundargerðarinnar.)
Guðrún ræddi fundargerð umhverfis- og skipulagsnenfdar sem tekin var á dagskrá að beiðni formanns. Fundargerðin hafi ekki verið formlega samþykkt. Reynir lagði til að fundargerðin verði sett á dagskrá næsta fundar.
Reynir gerði grein fyrir tillögu að breytingu á framkvæmd við ráðhús sem felur í sér að anddyri verði stækkað frá fyrri ákvörðun. Aukinn kostnaður vegna breytinganna er áætlaður innan við 1 m.kr. Þá leggur hann til að gler með merki Hornafjarðarbæjar verði sett á safn. Bæjarráð samþykkir tillögu að breyttu anddyri.


