Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 538
538. fundur
538 . fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 21. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201103059 - Líkamsrækt fyrir atvinnuleitendur
Jón Kristján kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að veita styrk að upphæð 2.000 krónum til þeirra sem ekki hafa rétt á niðurgreiðslu frá stéttarfélögum. Félagsmálastjóra falið að halda utan um málið.
2. 200811043 - Fundargerðir
3. 201103003F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 10
Björn Ingi spurðist fyrir um þriðja lið fundargerðarinnar er varðar álit sérfróðra aðila um úthlutun úr A hluta atvinnu- og rannsóknarsjóðsins. Fram kom að starfsmönnum nefndarinnar hafi verið falið að gera þeim umsækjendum sem sóttu um í A hluta stjóðsins grein fyrir úthlutun úr sjóðnum, komi ekki athugasemdir frá umsækjendum eftir kynningu þá stendur úthlutun óbreytt.
Rætt var um fund sem bæjarstjóri átti með mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Fundað var 8. mars sl. með fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytisins um málið. Ráðuneytið virðist ekki tilbúið til breytinga á tillögu sinni að samningi. Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir mikilli óánægju með afstöðu ráðuneytisins. Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir þó að samið verði til eins árs samkvæmt tillögu ráðuneytisins í stað þriggja með því fororði að skipting framlaga til menningarsvæðanna verði endurskoðuð og byggi á gegnsæjum reglum.
Fundargerð samþykkt.
4. 201103005F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 132
Haukur Ingi gerði grein fyrir því að tilboð í dýpkun verði opnuð 29. mars n.k.
Fundargerð samþykkt.
5. 200901080 - Svæðisráð Suðursvæðis - fundargerð 25. fundar
Fundargerð til kynningar.
6. 201101033 - List og verkgreinar á Hornafirði 5. fundur
Fundargerð til kynningar.
7. 201103034 - Ákvörðun um útveggjaklæðningu á Heppuskóla - framhald umræðna á 537. fundi
Gunnar Borgarsson kom á fundinn ( í síma ) undir þessum lið og kynnti nýjustu hugmyndir að útveggjaklæðningu. Bæjarráð er sammála um að nota límt flísakerfi sem útveggjaklæðningu. Tekið verður ákvörðun um litasamsetningu síðar, nefndarmenn eru sammála um að notast verði við tvö litaafbrigði af flísum, bæjarráð óskar eftir tillögum að litasamsetningu, einnig er lagt til að skot sem snýr að Víkurbraut verði timburklætt í samræmi við timburklæðningu sundlaugar. Til viðbótar við inngang útbyggingar verði komið fyrir hurðum á hliðum útbyggingar. Ekki verðu klætt þar sem fyrirhuguð millibygging tengist húsinu.
8. 201103037 - Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna páskadansleiks á Víkinni
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu tækifærisleyfisins.
9. 201103052 - Ósk um umsögn á endurútgáfu rekstarleyfis f. gilstistað Flatatún ehf. Svínafelli
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurútgáfu rekstrarleyfis.
10. 201103050 - Ósk um stækkun lóðar að Júllatúni 13
Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar og beinir því til nefdarinnar að ræða við aðra lóðareigendur um hugsanlegar breytingar á lóðamörkum til samræmi við þessa ósk.
11. 201101013 - Mengunarmæling í útblæstri - Brennu-Flosi
Haukur Ingi gerði grein fyrir niðurstöðunum. Fram kom að mælingar sýni að mengun frá sorpbrennslustöðinni hafi verið yfir leyfilegum viðmiðunarmörkum. Bæjarráð telur niðurstöður mælinganna styðja fyrri ákvörðun um lokun sorpbrennslustöðvarinnar. Haukur gerði grein fyrir íbúafundi sem haldinn verður í Hofgarði á morgun þriðjudag þar sem nýtt fyrirkomulag verður kynnt.
12. 201102023 - Sjóvörn í Óslandi-umsagnarbeiðni Skpulagsstofnunar v. mats á umhverfisáhrifum
Bæjarráð telur framkvæmdina ekki háða mati á umhverfrisáhrifum. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
13. 201103056 - Styrkbeiðni v. myndlistasýningar
Bæjarráð hafnar styrkumsókninni þar sem umsóknarfrestur um styrki er útrunninn á þessu ári. Bæjarstjóra falið að ræða við umsækjanda.
14. 201010050 - Innsend erindi:
15. 201011014 - Varðar framlag Jöfnunarsjóðs v. hækkunar á tryggingagjaldi 2010
Til kynningar
16. 201103043 - Þjóðaratkvæðagreiðsla - viðmiðunardagsetning lögheimilisskráningar
Til kynningar
17. 201103053 - Þakkarbréf vegna styrks til Hafnarsóknar
Til kynningar
18. 201103055 - Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfseminnar
Málinu vísað til bæjarstjóra.
19. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna málefnf 7. bekkjar Grunnskóla
Hornafjarðar
Þrátt fyrir að meirihluta Framsóknarmanna hafi á síðasta bæjarstjórnarfundi þótt fréttnæmt að 7. bekkur yrði í Grunnskóla Hornafjarðar á næsta skólaári þá er staða málsins enn nokkuð óljós í huga áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar. Af þeim sökum eru lagðar fram eftirfarandi spurningar:
1. Hefur verið tekin ákvörðun um staðsetningu 7. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar fyrir næsta vetur, þ.e. hvort staðsetja eigi hann með öðrum bekkjum á miðstigi í húsnæði Hafnarskóla eða hvort halda skuli áfram að greina bekkinn að frá öðrum bekkjum á miðstigi? 2. Ef slík ákvörðun hefur verið er hér með farið fram á það að upplýst verði með hvaða hætti var staðið að samráði við hagsmunaaðila varðandi ákvörðunina. 3. Ef slík ákvörðun hefur ekki verið tekin þá er hér með farið fram á að upplýst verði hvenær ákvörðun komi til með liggja fyrir og með hvaða hætti staðið verður að samráði foreldra og starfsfólk.
Árni Rúnar Þorvalddsson
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar
Fyrirspurninni svarað á næsta fundi bæjarráðs.
Stefán Ólafsson afhenti skýrslu um leikskólamál, VIÐHORF OG ÞRÓUN.


