Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 230
230. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 20. nóvember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
1.Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 39. fundur 10.nóvember 2003.
Bæjarráð ítrekar nauðsyn þess að náttúruverndaráætlun verði kynnt fyrir sveitarstjórn og hagsmunaaðilum heima í héraði. Bæjarráð kallar eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um heildaráætlun um skilgreindar grjótnámur í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs fór yfir drög að fjárhagsáætlun 2004. Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu að álagningareglum. Bæjarráð samþykkir fyrstu drög að rekstrarrömmum.
3. Heimsókn fulltrúa frá Skaftárhreppi
Rætt var um fyrirhugaða heimsókn fulltrúa frá Skaftárhreppi 28. nóv. nk. og helstu umræðuefni fundarins.
4. Gjaldskrá og fjárhagsáætlun Haust 2004
Bæjarráð samþykkir fram lagða gjaldskrá HAUST og gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlun.
5. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga
• Bréf allsherjarnefndar Alþingis dags. 13. nóvember 2003 um frumvarp til laga um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf. 191. mál
Bæjarráð nýtir sér ekki umsagnarrétt um frumvarpið.
6. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá ábúendum Skálafells I dags. 8. nóvember 2003.
Til kynningar.
• Bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga dags. 11. nóv v/Málþings um húsaleigubætur.
Til kynningar.
• Bréf frá Félagsmálaráðuneyti dags. 13. nóvember 2003 v/tekjujöfnunarframlög.
Til kynningar.
Önnur mál
Norðurís hefur boðað hluthafafund 26. nóvember nk.
Bæjarstjóra er falið að tilnefna fulltrúa á fundinn.
Fundi slitið kl. 12:05


