Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 537
537. fundur
537 . fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 14. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Kristján Sigurður Guðnason, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Haukur Ingi Einarsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasvið
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
Ásgerður lagði til að fundargerð 11. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar verði tekin fyrir undir fundargerðum.
Samþykkt.
2. 201103038 - Fundargerð hafnarstjórnar 131. fundur
Guðrún spurðist fyrir um hver bæri ábyrgð á Melabryggju. Málinu vísað til starfsmanna. Björn Ingi spurðist fyrir um gildistíma fyrri samnings um viðhaldsdýpkun. Rætt var um bifreiðamál á Höfninni.
Fundargerð samþykkt.
3. 201103033 - Verksamningur um skólaakstur í dreifbýli
Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Fram kom að samningur um skólaakstur renni út um mánaðarmótin maí/júní 2011. Umræður sköpuðust um mismunandi leiðir er varða skilgreiningu akstursleiða og hámarkstíma sem fer í að keyra nemendum milli skóla og heimilis. Bæjarráð samþykkir að bjóða skólaakstur út, starfsmönnum falið að vinna útboðsgögn í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð.
4. 201103034 - Endurbætur Heppuskóla - útveggjaklæðning
Björn Imsland og Gunnlaugur Rúnar komu inn á fundin undir þessum lið, Gunnar Borgarsson arkitekt var í síma. Stefán fylgdi málinu úr hlaði. Gunnar Borgarsson gerði grein fyrir umræðum og hugmyndum að klæðningu, annars vegar hefur verið skoðað að setja upp klæðningu úr steinflísum og hins vegar úr áli. Einnig rætt um að setja samskonar timburklæðningu og er á sundlauginni á valda staði. Umræður sköpuðust um tillögu að klæðningarefni á skólanum einnig rætt um stálklæðningu. Rætt var um stækkanir á gluggum og byggingu anddyris. Tillaga að klæðningu tekin fyrir á næsta fund bæjarráðs.
5. 201103024 - Ársreikningur Sandbakka ehf. 2010
Ásta gerði grein fyrir ársreikningnum. Umræður sköpuðust um rekstur félagsins. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um samninga sem Sandbakki ehf er hlutaðeigandi að.
6. 201103036 - Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hof 1
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hof 1.
7. 201103035 - Styrktarumsókn
Málinu vísað til umsagnar í félagsmálaráði.
8. 201102063 - Íbúaþing
Hjalti kom inn á fundinn undir þessum lið ( í síma ) Hjalti fjallaði um afrakstur vinnu sem fram hefur farið eftir íbúafundinn, ræddi hann um aðgerðaráætlun og starfsmarkmið sem komu fram á fundinum. Bæjarráð samþykkir að vísa framlögðum gögnum til umfjöllunar nefnda.
9. 201010050 - Innsend erindi:
10. 201103016 - Mannvirkjalög - gildistaka
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
11. 201103027 - Ályktun mótmælafundar - Samstaða um framhald tónlistarskólanna
Málinu vísað til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
12. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:20


