Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 536
536. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 7. mars 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201102012F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 10
Björn Ingi spurðist fyrir um verkefni er tengjast orkusparandi aðgerðum, spurði hann hvort uppsetning á varmadælum í íþróttahúsinu falli undir fyrirhugaðar reglur um endurgreiðslu á virðisaukaskatti tengt orkusparandi aðgerðum. Hjalti taldi að reglurnar verði ekki samþykktar fyrr en framkvæmdum við uppsetningu á varmadælum í íþróttahúsi verði lokið.
Bæjarráð fjallaði um annan lið fundargerðarinnar er varðar matslýsingu fyrir endurskoðun aðalskipulags. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar. Bæjarráð fellst á afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar er varða umsókn um stækkun lóðar að Júllatúni 15. Bæjarráð fellst á afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar er varðar umsókn um stækkun lóðar að Dalbraut 4. Bæjarráð fellst á afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar er varðar umsókn um minnkun lóðar að Fiskhól 1. Umræður sköpuðust um 13. lið. Umræður sköpuðust um Hafnarvík Heppu, lagðar voru fram hugmyndir að tillögu að deiliskipulagssvæði, bæjarráð samþykkir framlagða tillögu með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Starfsmönnum falið að vinna tillögu að ráðningu ráðgjafa.
3. 201103005 - Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 784. fundur
Björn Ingi fjallaði um landsskipulagsstefnu og auknar kröfur sérsambanda um uppbyggingu íþróttamannvirkja vegna leyfisveitinga.
4. 200804118 - Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Hjalti gerði gerin fyrir málinu. Umræður sköpuðust um reglurnar. Reglunum vísað til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
5. 201012038 - Reglur um úthlutun leiguíbúða
Jón Kristján kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir reglum um úthlutun leiguíbúða. Umræður sköpuðust um reglurnar, rætt var um hvort eigi að skilgreina ákveðnar íbúðir sem félagslegar íbúðir og aðrar sem íbúðir á opnum markaði, rætt var um uppsagnarákvæði, ótímabundinna samninga o.fl þætti. Bæjarráð óskar eftir því að lögfræðingur sveitarfélagsins taki 12., og 19. grein aftur til skoðunar áður en málinu verði vísað til meðferðar bæjarstjórnar.
6. 201103003 - Gamlabúð - flutningur
Reynir fylgdi málinu úr hlaði. Árni fagnaði því að málið væri komið af hugmyndastigi. Árni spurði hvort deiliskipulagið verði klárað áður en Gamlabúð verði flutt. Hjalti gerði grein fyrir því að deiliskipulagið verði að vera tilbúið áður en til flutnings kemur.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar.
7. 201002063 - Ósk um endurnýjun leigusamnings vegna tjaldsvæðis
Hjalti gerði grein fyrir málinu, sagði frá lögfræðiáliti sem heimilaði samninga án auglýsingar eða útboðs. Árni benti á að innkaupareglur sveitarfélagsins leggi línur varðandi vinnubrögð í málum af þessum toga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við núverandi leigjendur á tjaldsvæði.
8. 201103011 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2011
Ásta kynnti endurskoðaða fjárhagsáætlunar HSSA 2011. Árni spurði um fjárveitingar til vinnu ráðgjafa við stefnumótun HSSA. Hjalti svaraði að kostnaður verði tekin af rekstrarárinu 2010. Björn Ingi spurðist fyrir um það sem kallað er "frestað er til 2012". Ásta svaraði að um væri að ræða áfangaskiptingu í hagræðingaraðgerðum sem ríkið hafi fyrirhugað. Bæjarráð vísar áætluninni til bæjarstjórnar.
9. 200901079 - Samningur um veghald þjóðvega í þéttbýli á Höfn
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ganga til samninga.
10. 201103012 - Umsókn um breytingu á lóðamörkum lóðar nr. 41 í Stafafellsfjöllum
Bæjarráð samþykkir framlagða umsókn.
11. 201101005 - Athugasemdir við svörun tilboða í prentun á Skaftfellingi í febrúar 2010
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að farið sé eftir innkaupareglum sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara.
12. 201103013 - Tæknimál
Rætt um tæknimál og hvort bjóða eigi út þjónustuna eða ráða starfsmann. Starfsmönnum falið að taka saman frekari gögn um málið.
13. 200904061 - Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
14. 200804084 - Samningur við Sindra
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
15. 200904040 - Samningur við Golfklúbb Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
16. 201103022 - Hillur í þjónustumiðstöð
Bæjarráð felur að starfsmönnum að bjóða verkefnið út.
17. 201010050 - Innsend erindi:
18. 201103008 - Ósk um umsögn á þingsálykunartillögu um mikilvægi fræðslu um kristni og önnur trúarbrögð og lífsviðhorf 273. mál
Til kynningar
19. 201103007 - Fundarherferð Orkustofnunar og Orkuseturs í rafhituðum sveitarfélögum
Til kynningar.
20. 201103009 - Niðurskurður sem bitnar á börnum
Til kynningar.
21. 201103010 - Hvatning til þáttöku í „Grænum apríl“
Til kynningar.
22. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:


