Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 535
535. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 28. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Kristján Sigurður Guðnason, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201102008F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 130
Björn Ingi spurðist fyrir hvort breytingar á dælukerfi Hólmslinda hefðu áhrif á samning við landeigendur. Reynir gerði grein fyrir málinu. Haukur Ingi gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum á veitum vegna dælingar inn á Leirusvæðið í vor. Björn Ingi ræddi um bókun nefndarinnar um björgunarlaun til björgunarfélagsins Ingibjargar, taldi hann málið óskylt styrkumsókn Björgunarbátasjóðsins.
Fundargerð samþykkt.
2. 201102009F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 8
Fundargerð samþykkt.
3. 201102011F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 9
Björn Ingi gerði athugasemd við það að ekki var gerður greinarmunur á því hvaða styrkir voru veittir sem A úthlutun úr sjóðnum og hverjir fengu B úthlutun úr sjóðnum, spurðist hann einnig fyrir um hvernig ráðgjöf við úthlutun styrkja úr A hluta fóru fram skv. reglum sjóðsins. Björn Ingi ræddi um upplýsingargildi bókana á ritun fundargerða nefnda, taldi hann að þær eigi að vera ítarlegri þar sem nákvæmari upplýsingar komi fram. Reynir benti á að fundarmenn beri ábyrgð á að bókanir skili sér inn í fundargerðir.
Fundargerð samþykkt.
4. 201102007F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 214
Umræður sköpuðust um bókanir á útleigu íbúða. Rætt var um hvort eigi að skrá nöfn þeirra sem leigja húsnæði hjá sveitarfélaginu í bókun nefndarinnar. Björn Ingi ræddi reglur um úthlutun leiguíbúða í Sveitarfélaginu Hornafjarðar. Umræður sköpuðust um reglurnar. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
Fundargerð samþykkt.
5. 201102002F - Almannavarnanefnd - 38
Björn Ingi kynnti tillögu að skipan í almannavarnarnefnd. Bæjarráð tekur undir og samþykkir tillögu almannavarnarnefndar um skipan í nefndina. Bæjarráð felur starfsmönnum að óska eftir tilnefningum aðal- og varamanna í nefndina hjá viðeigandi aðilum.
Fundargerð samþykkt.
6. 201102065 - Stjórn HSSA 8. fundur
Árni spurði hver muni halda utan um samningagerð er snýr að ráðningu ráðgjafa fyrir stefnumótun HSSA. Hjalti gerði grein fyrir því að bæjarstjóri, formaður stjórnar og annar af hjúkrunarstjórum HSSA taki það að sér. Bæjarráð óskar eftir að endurskoðuð fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2011 verði tekin fyrir sem sérliður á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
7. 201102064 - List- og verkgreinar 3. fundur
Til kynningar.
8. 201102071 - List og verkgreinar 4. fundur
Til kynningar.
9. 201102063 - Íbúaþing
Hjalti gerði grein fyrir næstu skrefum að úrvinnslu niðurstöðu íbúaþingsins. Hjalti greindi frá því að fundargerðin verði send til allra þátttakenda íbúaþingsins. Tekin verður saman greinargerð í samræmi við niðurstöðu fundarins sem vísað verði til nefnda sveitarfélagsins og kynnt á almennum íbúafundum í sveitarfélaginu. Bæjarráð vísar fundargerðinni til atvinnu- og menningarmálanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.
10. 201102062 - Sala á Pakkhúsi
Starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar mættu á fundinn undir þessum lið og gerðu þau grein fyrir bréfi þeirra er varðar undirbúning sölu Pakkhússins dagsettu 25.02.2011. Þar kom meðal annars fram að þau telji mikilvægt að koma inn í kaupsamning ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélagsins og huga að flutningi sjóminjasýningarinnar.
Árni vék af fundi þegar tekin var afstaða til tilboðanna.
Samþykkt að ganga til samninga við hæstbjóðanda á grunni kauptilboðs og greinargerðar. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að forkaupsréttarákvæði verði hluti af sölusamningi. Greinargerð með kauptilboðinu undirstrikar að fullur skilningur er á merkri sögu Pakkhússins í atvinnu- og byggðasögu Hafnar. Stefna tilbjóðenda er að hafa margvíslega starfsemi í húsinu, s.s. veitingar, verslun og menningartengda starfsemi. Bæjarráð vill ennfremur þakka öðrum tilbjóðendum áhuga á verkefninu.
11. 201102061 - Bréf þátttakenda í Evrópu unga fólksins
Bæjarráð hefur móttekið bréfin og vísar þeim til umfjöllunar innan viðkomandi nefnda sveitarfélagsins. Bæjarráð lýsir ánægju með verkefnið og þá vinnu sem þau kynntu í Nýheimum þann 20. febrúar.
12. 201102060 - Skólavog
Stefán kynnti málið og gerði grein fyrir kostnaði við verkefnið o.fl sambærilega þætti. Umræður sköpuðust um skólavogina sem tæki til að fá yfirsýn og samanburð milli skóla og/eða sveitarfélaga. Bæjarráð tekur jákvætt í mögulegt samstarf og óskar eftir því að fá að fylgjast nánar með framvindu verkefnisins.
13. 200804118 - Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Umræður sköpuðust um tillögurnar að breytingum og aðrar greinar innkaupareglnanna. Stafsmönnum falið að vinna samanburð við önnur sveitarfélög.
14. 201001002 - Reglur um niðurfellingu fasteignaskatts
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15. 200905015 - Eldhús í Mánagarði
Bæjarráð er sammála um að lagfæra eldhús í Mánagarði í samræmi við áætlun 2 og að framkvæmdin verði í samráði við Kvenfélagið Vöku.
16. 201102068 - Ósk um rif á strompi á félagsheimilinu Holti á Mýrum.
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð heimilar að strompurinn verði rifinn.
17. 201102070 - Dýralæknaþjónusta í dreifbýli
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð vísar því til atvinnu- og menningarmálanefndar.
18. 201002029 - Breyting á deiliskipulagi miðbæjarsvæði - reitur A
Til kynningar.
19. 201102072 - Framtíð Starfsendurhæfingar Austurlands
Málinu vísað til félagsmálaráðs.
20. 201102075 - XXV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Til kynningar.
21. 201102074 - Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara vegna niðurskurðar hjá sveitarfélögum landsins
Til kynningar.
22. 201102073 - Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Til kynningar
23. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:


