Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 534
533. fundur
534 . fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 21. febrúar 2011 og hófst hann kl. 15:45
Fundinn sátu: Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
2. Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 7. fundur
Hjalti ræddi breytingu á samþykkt um búfjárhaldi í sveitarfélaginu s.br. 1 liður fundargerðarinnar. Bæjarráð tekur undir breytingatillöguna og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarstjórn.
Árni spurðist fyrir um afdrif bréfs þar sem gerðar voru athugasemdir vegna útboðs á umbroti á Skaftellingi.
Björn Ingi vakti máls á minnisblaði Bjargar Erlingsdóttur um úthlutun styrkja til menningarmála. Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um framtíð rekstrar Jöklasýningarinnar og aðra styrki til menningarmála.
Fundargerð samþykkt.
3. Fundargerð stjórnar HSSA 6. fundur
Björn Ingi spurðist fyrir um læknamál í sveitarfélaginu. Hjalti gerði grein fyrir málinu.
Fundargerð samþykkt.
4. Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 8. fundur
Björn Ingi fjallaði um 2. lið fundargerðarinnar og spurðist fyrir um rekstur sundlaugarinnar.
Stefán gerði grein fyrir rekstri sundlaugarinnar. Björn Ingi spurðist fyrir um kostnað vegna reglna við akstursstuðnings vegna tómstundaiðkunar barna í dreifbýli. Stefán fór yfir útreikninga. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili.
Björn Ingi lagði fram hugmynd að kaupum á húsinu fyrir félagasamtök.
Árni spurðist fyrir um hugmyndir að færanlegu húsnæði við Krakkakot. Gerð var grein fyrir því að málið væri enn á hugmyndastigi og til þess fallið að sýna fram á möguleika að lausn til að eyða biðlistum leikskóla. Ásgerður gerði grein fyrir því að leiksólamál verði tekin fyrir á næsta fundi nefndarinnar. Spurðist hann einnig fyrir um hvort ástæða væri til að fjölga fundartímum nefndarinnar. Stefán gerði grein fyrir því að nefndin hafi rætt um fjölgun funda og benti á að hægt væri að kalla til aukafundar ef ástæða þykir til.
Fundargerð samþykkt.
5. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarf.á köldum svæðum 15.feb. 2011
Bæjarráð tekur undir athugasemdir Stjórnar SSKS sem fram koma undir 1. lið fundargerðarinnar um Orkustefnu.
Fundargerð til kynningar.
6. Fundargerð umhverfis og skipulagsnefndar 9. fundur
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
7. Áætluð staða 31. desember 2010
Ásta gerði grein fyrir áætlaðri stöðu bæjarstjóð fyrir síðasta ár. Farið var yfir stöðu málaflokka, sjóðsstreymi, framkvæmdaryfirlit og skýringarblað.
8. Umsókn um stækkun lóðar Júllatúni 15
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar
9. Umsókn um stækkun lóðarinnar að Dalbraut 4
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar
10. Ferlalýsingar fyrir sveitarfélagið
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Ferlarnir kynntir og starfmönnum falið að gera þær breytingar á ferlunum sem fram komu á fundinum.
11. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Kynntar voru hugmyndir að samningi milli HH og sveitarfélagsins. Umræður sköpuðust um málefni HH. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
12. Fundargerð aðalfundar félags kornræktarfélags A-Skaft
Fundargerð til kynningar.
13. Verkfallslistar 2011
Bæjarráð samþykkir að auglýsa framlagða verkfallslista.
14. Framkvæmdir í Óslandi grjótvörn
Haukur Ingi lagði fram drög að ósk um framkvæmdaleyfi vegna málsins til Umhverfisstofnunar, óskaði hann einnig eftir framkvæmdaleyfi í samræmi við útsend gögn. Bæjarráð mælir með því að framkvæmdir verði kláraðar í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
15. Dansgólf - val á efni
Haukur Ingi kynnti hugmynd að 80 - 100 m²færanlegu dansgólfi fyrir íþróttahúsið. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarráð síðar.
16. Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn - gólfefni
Haukur Ingi kynnti ósk verktaka um að skipta út gólfefni í sýningarsal í Svavarssafni og samskiptum við arkitekt og forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Geir Þorsteinsson mætti á fundinn undir þessum lið og gerð grein fyrir ósk um skipti á gólfefni. Bæjarráð samþykkir framlagða ósk.
17. Sorpmál í Öræfum
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við íbúa í Öræfum. Umræður sköpuðust um málefnið. Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning að breytingum á sorpmálum í Öræfum þar sem brennslu á sorpi verði hætt.
18. Úttektir á leik- og grunnskólum
Stefán fór yfir og kynnti innihald skýrslunnar. Björn Ingi spurðist fyrir um hvernig ætti að nota sér niðurstöðu skýrslunnar, taldi hann mikilvægt að nýta skýrsluna til að bæta skólastarfið. Hjalti tók undir orð Björns Inga, ræddi hann um að mikilvægt sé að skýrslan verði nýtt til að bæta annars gott skólastarf. Ásgerður benti á að þegar væri byrjað að vinna að úrbótum á skólastarfi í samræmi við ábendingar úr skýrslunni. Óskaði hún einnig eftir að tekin yrði saman greinargerð sem verði birt. Árni lagði til að starfsmenn tækju saman greinargerð um hvernig hægt er að nýta skýrsluna til að bæta skólastarfið. Óskaði hann einnig eftir því að bæjarráð vísi skýrslunni sem sérlið á dagsskrá bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til bæjarstjórnar.
19. Staðsetning 7. bekkjar
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um staðsetningu 7. bekkjar, rætt var um ólík sjónarmið um hvort skólastjórnendur eða skólanefnd ættu að taka ákvörðun um staðsetningu 7. bekkjar hverju sinni. Bæjarráð lítur svo á að staðsetning bekkjadeilda verði að taka mið af rými skólahúsnæðis hverju sinni og að þegar teknar eru ákvarðanir um staðsetningu bekkjadeilda verði það gert í samráði skólastjórnenda, skólanefndar og skólaráðs. Árni taldi mikilvægt að bæjarstjórn kveði á um hvar 7. bekkur skuli vera staðsettur til framtíðar litið.
20. Stjórnfyrirkomulag Grunnskóla Hornafjarðar
Árni lagið fram eftirfarandi bókun: Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar telur ekki tímabært að ráðast í breytingar á stjórnfyrirkomulagi grunnskólans. Eðlilegra væri að taka út núverandi fyrirkomulag með heildstæðum hætti þegar nægjanleg reynsla af því liggur fyrir.
Árni vék af fundi undir þessum lið eftir að hann bar upp bókunina. Björn Ingi minnist þess ekki að rætt hafi verið um stöðuheitið ,,verkefnsstjóri II" í umræðu um stjórnfyrirkomulag Grunnskóla Hornafjarðar. Stefán gerði grein fyrir mismunandi kostnaði við ráðningu deildar- og verkefnisstjórnenda. Hjalti fjallaði um aðdraganda að sameingingu skólanna fyrir tveim árum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
21. Stefnumótun HSSA
Árni bar upp eftirfarandi spurningar. Svör við fyrirspurn eru lögð fram fyrir aftan hverja spurningu.
1. Liggur fyrir kostnaðaráætlun vegna stefnumótunarvinnunnar í heild?
Ekki liggur fyrir kostnaðaráætlun fyrir verkefnið. Kostnaðar-, tíma- og verkáætlun verða mótuð þegar ráðgjafi hefur verið valinn, í samvinnu ráðgjafa og stjórnar HSSA. Samningur um verkefnið verður ekki undirritaður fyrr en þá.
2. Liggur fyrir hver stór hluti af kostnaði við stefnumótunarvinnuna er tilkominn vegna ráðningar ráðgjafa við verkefnið?
Það liggur fyrir þegar kostnaðar-, tíma og verkáætlun hefur verið mótuð.
3. Liggur fyrir starfslýsing vegna umrædds starfs? Verður það verkefni ráðgjafans að undirbúa sveitarfélagið fyrir samningaviðræður við ríkið um nýjan þjónustusamning um rekstur HSSA? Ef svo er, þá spyr undirritaður hvort eðlilegt sé að ríkið borgi fyrir þá vinnu, hvort ekki væri eðlilegra að ráðgjafinn yrði kostaður af sveitarfélaginu, a.m.k. að hluta
Á fundi stjórnar HSSA var rætt um að ráðgjafi sinni gagnaöflun, kortleggi stöðu í heilbrigðis- og öldrunarmálum í dag bæði er varðar húsnæði og rekstur, taki þátt í samráði starfsmanna, nefndarfólks, bæjarráðs, eldri borgara og íbúa, undirbúi heimsóknir til annarra staða til að kynna sér rekstur og húsnæðismál í málaflokkinum og skrifi niðurstöðuskýrslu og undirbúi kynningu hennar. Þetta þarf að útfæra betur í samvinnu stjórnar HSSA og ráðgjafans.
4. Í hvaða miðlum var auglýst eftir ráðgjafanum?
Í Eystrahorni.
5. Af hvaða ástæðum er ekki gerð krafa um háskólamenntun og reynslu af ráðgjafastörfum í auglýsingu vegna starfsins?
Í auglýsingunni segir að háskólamenntun sé æskileg sem og reynsla af ráðgjafarstörfum. Ekki þótti ástæða til að skilyrða starfið háskólamenntun og reynslu í ráðgjafarstörfum ef ske kynni að aðili sæki um sem er talin hæfur til starfsins sem uppfylli ekki skilyrði um háskólamenntun eða reynslu.
6. Hefur verið rætt við Velferðarráðuneytið um það hvort ráðuneytið hafi yfir höfuð vilja til þess að gera nýjan þjónustusamning við sveitarfélagið?
Já, á sama tíma og viðræður fóru fram um fjárlög ársins 2011.
Árni spurðist fyrir um hvort ekki hafið komið til greina að auglýsa á landsvísu og hvort ekki hafi verið til umræðu að leita beint til ráðgjafafyrirtækis um verkefnið. Hjalti gerði grein fyrir því að hugmynd um auglýsingu hafi verið rædd í aðdraganda málsins en niðurstaðan hafi verið sú að auglýsa eingöngu í heimabyggð, benti hann á að eitt ráðgjafafyrirtæki hafi sótt um að fá að sinna verkefninu.
22. Ósk um greiðslu mótframlags v. leikskólagjalda utan lögheimilissveitarfélags
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
23. Innsend erindi:
24. Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn
Til kynningar.
25. 2Auglýsing eftir umsóknum til að halda Unglingalandsmót UMFÍ 2013
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
26. Hafnarframkvæmdir 2011 tilkynning um úthlutun fjármuna til viðhaldsdýpkunar
Málinu vísað til Hafnarstjórnar.
27. Fyrirspurnir - bæjarráð:
Árni Rúnar las upp eftirfarandi fyrirspurn:
Í máli nýjasta talsmanns bæjarstjórnar Hornafjarðar í sjávarútvegsmálum, Elliða Vignissonar bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, kom fram að sumir þeirra sautján bæjarstjóra, sem í sameiningu skoruðu á stjórnvöld að fara svokallaða samningaleið í sjávarútvegi, hafi verið tilbúnir til að gefa eftir sínar ítrustu kröfur um ótímabundnar aflaheimildir til núverandi kvótahafa.
Í ljósi þessara ummæla forystumanns og leiðtoga bæjarstjóranna sautján leggur undirritaður fram þrjár eftirfarandi spurningar:
1. Var bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar einn þeirra bæjarstjóra sem slakaði á ítrustu kröfum sínum um ótímabundnar aflaheimildir núverandi kvótahafa?
Svar: Hægt er að kynna sér afstöðu bæjarstjóra til fiskveiðistjórnunarkerfisins á hjaltithor.blog.is undir fyrirsögninni „Fiskveiðistjórnun“ frá 28. september 2010 og undir fyrirsögninni „Sáttaleið“ frá 15. janúar 2011. Einnig er hægt að kynna sér afstöðu bæjarstjóra um málið á vef sveitarfélagsins undir fundargerð bæjarstjórnar frá 13. janúar 2011 þar sem hægt er að hlusta á ræður hans og annarra um málið. Yfirlýsing bæjarstjóranna 17 sem bæjarstjóri Hornafjarðar tók þátt í að semja er í samræmi við það sem hann hefur áður látið frá sér fara um málið.
2. Hvenær var sú stefna mótuð í bæjarstjórn Hornafjarðar að krefjast þess að veiðiheimildum verði úthlutað í óákveðinn tíma til núverandi kvótahafa?
Svar: Bæjarstjóri kannast ekki við að þessi stefna hafi verið mótuð. Bent skal á í þessu samhengi bókun sem um fiskveiðistjórnunarkerfið sem samþykkt var af sex bæjarfulltrúum af sjö þann 13. janúar 2011. Í þeirri bókun er skýrt kveðið á um að fara eigi svokallaða samningaleið. Er yfirlýsing bæjarstjóranna 17 sem bæjarstjóri Hornafjarðar tók þátt í að semja í samræmi við þessa bókun.
3. Ef þessi stefna var á annað borð mótuð í bæjarstjórn Hornafjarðar án þess að undirritaður yrði þess var, er spurt hvenær henni hafi breytt, sbr. ummæli talsmanns bæjarstjóranna sautján?
Svar: Vísað í svör við spurningum 1 og 2.


