Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 533
533. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 14. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201101033 - List - og verkgreinar á Hornafirði fundargerðir
Hjalti gerði grein fyrir vinnu hópsins fram að þessu. Björn Ingi spurðist fyrir um hvort komin væri stefna í uppbyggingu á húsi fyrir list- og verkgreinar. Reynir svaraði að svo væri ekki. Bæjarráð leggur áherslu á að stuðningur og aðstaða fyrir list- og verkgreinar geta falist í öðru en uppbyggingu á húsnæði.
3. 201101055 - Beiðni um umsögn á landskiptum og stofnun lögbýlisins Seljavellir I
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Haukur Ingi gerði grein fyrir fyrri afgreiðslu bæjarráðs um landsskipti, einnig er óskað eftir stofnun lögbýlis í umsókninni. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis á umræddri jörð.
4. 201102014 - Samingur um styrk milli Mennta og menningarmálaráðun. og Mennningarmiðst. vegna Álaleiru 1
Lagt fram. Umræður sköpuðust um samninginn og frekari uppbyggingu á Álaleiru 1 sem þjónustuhúsnæði fyrir Byggðasafn A-Skaft. Starfsmönnum falið að vinna útboðsgögn fyrir uppbyggingu hillurekka í þjónustuhúsnæði.
5. 201102009 - Ósk um minnkun lóðarinnar að Fiskhól 1
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
6. 201101074 - Umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings Víkurbraut 9
Samþykkt að endurnýja samninginn í samræmi við fyrri samning.
7. 201102021 - Hugmynd að lausn á biðlistum leikskóla
Kom fram að leitað hafi verið eftir verði í færanlegt hús þar sem rúmast geta 18-20 börn. Kostnaður við kaup, flutning og stofnbúnað er áætlaður um 10 m.kr. Umræður sköpuðust um fyrri vistunarviðmið barna er snúa að barngildum. Árni óskaði eftir því að þau gögn liggi fyrir áður en málið fái umfjöllun í skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd. Björn Ingi benti á mikilvægi þess að klára úttekt á leikskólamálum til að átta sig á framtíðar þörf fyrir leikskólaplássum í sveitarfélaginu, ræddi hann einnig um að uppbygging gámahýsa er ekki góður kostur. Hjalti gerði grein fyrir breyttri viðveru leikskólabarna síðustu tíu ár. Bæjarráð vísar málinu til umræðu í skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd.
8. 201102019 - Listastafn Svavars Guðnasonar - umsókn um styrk
Bæjarstjóra falið að sækja um styrk til safnsins.
9. 201102023 - Grjótvörn í Óslandi
Haukur Ingi greindi frá framkvæmd við sjóvarnagarð í Óslandi. Lagt fram bréf dags. 9. febrúar frá Umhverfisstofnun þar sem farið er fram á tafarlausa stöðvun framkvæmda. Lagt fram drög að svarbréfi dags. 14. febrúar þar sem gerð er grein fyrir málsatvikum. Stafsmönnum falið að senda svarbréf til Umhverfisstofnunar. Bæjarráð lýtur málið alvarlegum augum og felur starfsmönnum að setja upp ferla um undirbúning framkvæmda í sveitarfélaginu sem lagðir verða fyrir bæjarráð sem allra fyrst, til umfjöllunar og síðan formlegrar afgreiðslu.
10. 201010050 - Innsend erindi:
11. 200912021 - Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi- athugasemdir Umhverfisstofnunar.
Samþykkt.
12. 201101013 - Sorpbrennslustöðvar - bréf umhverfisráðherra og bréf Ólafs Sigurðssonar v. Brennu-Flosa
Lagt fram bréf frá forsvarsmönnum Brennu Flosa. Jafnframt lagðar fram niðurstöður mælinga á mjólk úr Svínafelli þar sem kemur fram að mælingar á mjólk sem framleidd er í Svínafelli sýna að mjólkin er fullkomlega sambærileg að gæðum og önnur mjólk sem framleidd er á Íslandi. Niðurstöður um díoxín í reyk frá sorpbrennslustöðinni á Svínafelli hafa enn ekki borist sveitarfélaginu. Hjalti gerði grein fyrir samtölum við ábúendur í Svínafelli, íbúa í Öræfum og fyrirhugðum fundi um málefni sorpbrennslustöðva í umhverfisráðuneytinu á morgun.
Starfsmönnum falið að kanna kosti þess að flokka sorp, endurvinna og aka óflokkuðu sorpi í urðunarstaðinn í Lóni.
13. 201102013 - Málefni Horns
Hjalti gerði grein fyrir samtali við landeiganda. Málefni bryggju á Austurfjörum vísað til hafnarstjórnar. Málinu að öðru leyti vísað til umræðu í atvinnu- og menningarmálanefnd.
14. 201101050 - Umsókn um leyfi til niðurrifs íbúðarhúss að Uppsölum 2 og að það verði tekið af fasteignaskrá
Bæjarráði er kunnugt um að fyrirliggi ágreiningur um eignarhald á fasteignum á Uppsölum í Suðursveit og að málið sé nú rekið fyrir dómstólum. Sveitarfélagið hafnar því erindinu.
15. 201102017 - Ósk um styrk til forvarnastarfs Saman hópsins 2011
Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
16. 201102016 - Ungt fólk - æskulýðsrannsóknir
Vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
17. 201102018 - Þingsályktunartillaga um lækkun húshitunarkostnaðar
Bæjarráð fagnar framkominni þingsályktunartillögu í þessum mikilvægu málum. Það er mikið réttlætismál að unnið verði að jöfnun húshitunarkostnaði í samræmi við markmið tillögunnar. Bæjarráð Hornafjarðar styður því framkomna þngsályktunartillögu heilshugsar.
18. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Árni Rúnar spurðist fyrir um þá ákvörðun um að auglýsa eftir ráðgjafa fyrir stefnumótunarvinnu HSSA, benti hann á að fundargerð HSSA hafi ekki komið til afgreiðslu bæjarráðs.
Spurst var fyrir um snjómokstur. Gerð var grein fyrir verkferlum við snjómokstur. Spurst var fyrir um reglur er snúa að lausagöngu hunda. Haukur gerði grein fyrir samþykkt um hundahald í sveitarfélaginu, óskaði hann eftir því að ábendingar um lausagöngu hunda berist til tæknisviðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40


