Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 530
530 . fundur í bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 24. janúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
2. 201101059 - Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 7. fundur
Umræður sköpuðust um 2. lið fundargerðarinnar um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Hofi I Austurhúsum, starfsmönnum falið að fara yfir málið og kynna á næsta fundi bæjarráðs. Umræður sköpuðust um bókun Björns Inga um boðun funda. Haukur gerði grein fyrir 7. lið um fyrirhugaða stækkun á kirkjugarði.
3. 201101061 - Fundargerð skóla,íþrótta og tómstundanefndar 7. fundur
Hjalti gerði grein fyrir 5. Lið. Stefán gerði grein fyrir samskiptum sínum við Samband Íslenskra Sveitarfélaga. Árni Rúnar telur að öllu óbreyttu séu ekki forsendur fyrir að fara út í þessar breytingar. Umræður sköpuðust um þær breytingar sem átt hafa sér stað frá því skólastarf var sameinað í Grunnskóla Hornafjarðar. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Árni spurðist fyrir um 4. lið. Ásgerður og Stefán gerðu grein fyrir málinu. Björn Ingi fjallaði sambærilegt verkefni sem átt hefur sér stað á vettvangi SASS. Stefán gerði grein fyrir ART námskeiðum fyrir kennara, kostnaði þeirra og uppbyggingu.
Umræður sköpuðust um biðlista leikskólabarna, Ásgerður gerði grein fyrir að 18 börn eru á biðlistum. Umræður sköpuðust um úrræði til að bregðast við biðlistum á leikskólum. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Stefán gerði grein fyrir stöðu mála við Grunnskólann í Hofgarði. Gerð var grein fyrir fyrirhuguðum fundi í Öræfum.
4. 201101040 - Gjaldskrá sorpgjalda 2011
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á gjaldsskránni. Málinu vísað til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
5. 201011051 - Styrkir 2011 - umsóknir
Umsóknir um styrki fyrir árið 2011 kynnt á fundinum, bæjarráð sammála um að taka málið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
6. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - endurskoðun á samþykktum
Bæjarráð samþykkir að breyta samþykktinni í samræmi við framlögð drög á fundinum.
7. 201101060 - Verðmat á Krosseyjarvegi 3 - pakkhús
Verðmat á Krosseyjarvegi 3 kynnt á fundinum, bæjarráð samþykkir að undirbúa gögn fyrir söluferli á Krosseyjarvegi 3 - Pakkhúsinu.
8. 201101058 - Hátíðir á Hornafirði
Málinu vísað til Atvinnu- og menningarmálanefndar.
9. 201003104 - Ósk um umsögn á breytingu á frumvarpi til sveitarstj. laga nr. 45/1998
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlögð drög að frumvarpi.
10. 201010050 - Innsend erindi:
11. 201101057 - Hugmynd um nýtingu jarðarinnar Rauðaberg á Mýrum
Málinu vísað til bæjarstjóra.
12. 201101055 - Beiðni um umsögn á landskiptum og stofnun lögbýlisins Seljavellir I
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð landskipti.
13. 201101051 - Ósk um að íbúðarhúsið að Uppsölum 2 verði tekið af fasteignaskrá
Bæjarráð felur starfsmönnum að útvega skýrari gögnum um málið.
14. 201101049 - Ungt fólk utan skóla 2009 - niðurstöður rannsóknar
Til kynningar
15. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Hjalti gerði grein fyrir nýjum drögum að samningi Kornræktarfélags Austur- Skaftafellinga, samningurinn samþykktur með áorðnum breytingum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50


