Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 529
529. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 17. janúar 2011 og hófst hann kl. 13.30
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201101032 - Fundargerð hafarstjórnar 129. fundur
Umræður sköpuðust um viðhaldsdýpkun úr höfninni.
Fundargerð samþykkt.
3. 201101040 - Gjaldskrá sorpgjalda 2011
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og kynna á næsta fundi bæjarráðs.
4. 201101039 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2011
Umræður sköpuðust um framlagðar reglur, rætt var um vísitölubindingu og á hverra forræði reglurnar eigi að vera. Samþykkt að starfsmenn geri tillögur að nýjum reglum í samræmi við umræður á fundinum, málinu vísað til bæjarstjórnar.
5. 200810081 - Drög að reglum og gjaldskrá fyrir leigu á húsnæði sveitarfélagsins
Umræður sköpuðust um reglurnar, samkeppnissjónarmið, ýmis leyfi o.fl þætti. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Starfsmönnum falið að vinna tillögur að umsjón með útleigu á húsnæði sveitarfélagsins.
6. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á útboðsgögnunum. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út.
7. 201101038 - Endurskoðun leigusamnings við HM þjálfun sf.
Haukur Ingi gerði grein fyrir samningnum, umræður sköpuðust um virðisaukaskatt og leigutíma. Starfsmönnum falið að undirrita framlagðan samning með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
8. 201012072 - Umsókn um rannsóknastyrk vegna tilrauna um ræktun olíufræja í Hornafirði - drög að samningi
Hjalti gerði grein fyrir samningnum. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
9. 201101033 - Handverk og hönnun á Hornafirði
Hjalti lagði fram minnispunkta dagsett í janúar 2011 um handverk og hönnun á Hornafirði. Samþykkt að setja á fót hóp til að kanna þörf og áhuga um uppbyggingu aðstöðu og húsnæðis fyrir list- og verkgreinar. Bæjarstjóra falið að koma hópnum saman.
10. 201101013 - Sorpbrennslustöðvar
Haukur Ingi greindi frá tilboði NMI í mengunarmælingar frá sorpbrennslunni Brennu Flosa. Starfsmanni falið að láta fara fram sýnatöku í janúar. Þegar niðurstöður liggja fyrir verði þær birtar.
11. 200805074 - Hafnarvík Heppa verkefni
Rætt um ákvörðun bæjarstjórnar frá 13. janúar sl. Umræður sköpuðust um framtíðar starfsemi á svæðinu. Samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa sölu á Pakkhúsi en málið komi aftur til bæjarráðs á næstu fundum.
12. 201101016 - Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis f. þorrablót Nesja- og Lónmanna
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
13. 201101042 - Fundaplan jan/jún 2011
Lagt fram til upplýsingar.
14. 201003048 - Samningur um sambýli fatlaðra í Hólabrekku
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Stefán Ólafsson lagði fram fyrstu drög að samningi við Hólabrekku ehf. Umræður sköpuðust um framlögð drög. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leita samráðs við Jöfnunarsjóð Sveitarfélaga og Velferðarráðuneyti.
15. 201010050 - Innsend erindi:
16. 201101037 - Viðmiðunarreglur vegna lánveitinga til leiguíbúða
Vísað til félagsmálaráðs.
17. 201101034 - Félagsþjónusta sveitarfélaga
Vísað til félagsmálaráð.
18. 201101035 - Undanþága frá lámarksíbúafjölda þjónustusvæðis
Vísað til félagsmálaráð.
19. 201101036 - Viðmiðunarfjárhæð vegna húsaleigubóta
Til kynningar.
20. 201010037 - Refaveiðar - ályktun frá stjórn Búnaðarsamb. A-Skaft.
Kom fram að sveitarfélagið leggi fjármuni til refa- og minkaveiðar eins og fyrri ár.


