Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 528
528. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 10. janúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Stefán Ólafsson, Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs
Dagskrá:
1. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn - gögn verða send
í tölvupósti
Árni Kjartansson og Svavar M. Sigurjónsson sátu fundinn undir þessum lið (í síma) og kynntu teikningar og útboðsgögn er varða breytingar á Ráðhúsi og uppbyggingu Svavarssafns. Bæjarráð fór í vettvangsskoðun undir þessum lið. Ræddar ýmsar hugmyndir um minni háttar breytingar á fyrirliggjandi teikningum svo sem um fyrirkomulag og stærð á anddyri á kostnað hugsanlegrar skrifstofu, gólfefni á sal og móttöku o.fl. Bæjarráð samþykkir að breyta ekki núverandi inngangi til vinstri úr anddyri í skrifstofurými á neðri hæð. Samþykkt að "terrósteypa" verði á sýningarsal og Ástustofu en hornfirskt gólfefni (steinteppi) á anddyri og afgreiðslu. Þá voru samþykktar breytingar á loftræstikerfi í þá veru að setja upp vatnskælda kæliskápa í tæknirými. Einnig samþykkt að stækka (breikka) innganga úr móttöku inn í sýningarsal.
2. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011
Haukur Ingi gerði grein fyrir helstu breytingum milli umræðna. Tekjur hækka um 2,8 m.kr. vegna þess að áætlun Jöfnunarsjóðs er hærri en gert var ráð fyrir við fyrri áætlun. Gjöld hækka um 1,2 m.kr. vegna vinnusmiðju sem sveitarfélagið ætlar að taka þátt í að koma á fót ásamt ÞNA, Vinnumiðlun, RKÍ og fleirum aðilum. Einnig breytast vaxtatekjur um tæpar 300 þúsund vegna kaupa á IP neti. Samtals batnar afkoma A hluta um 1,9 mkr. Í B hluta verði ekki breytingar fyrir utan að fjárfestingar hækka um 8 m.kr. vegna kaupa á IP neti. Árni spurði um tómstundakortin og hvort breytingar verði á þeim. Því svarað til að engar breytingar verði á milli ára.
Fjárhagsáætlun 2011 vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum.
3. 201012043 - Þriggja ára áætlun 2012-2014
Haukur Ingi gerði grein fyrir helstu breytingum.
3ja ára áætlun vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
4. 201012072 - Umsókn um rannsóknastyrk v.ræktunar olíufræja í Hornafirði - tillaga starfsmanna um stuðning við verkefnið - drög að samningi milli aðila
Lagt fram minnisblað frá Hjalta Þór Vignissyni dags. 4. janúar og drög að samningi við Kornræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu. Bæjarráð sammála um að nýta afgang af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar, alls kr. 2.437.134 á grunndvelli samnings. Árni sagði það sína skoðun að umsóknir sem þessi, þ.e. styrkumsókn Kornræktarfélagsins eigi að fara í gegnum atvinnu- og rannsóknarsjóð sveitarfélagsins. Árni styður framlagða tillögu á þeirri forsendu að hér er um að ræða fjármuni sem ætlaðir voru til atvinnutengdra verkefna en veltir jafnframt upp þeirri spurningu í hvaða verkefni þessir fjármunir áttu upphaflega að fara. Björn Ingi ítrekar ósk um að skýrt sé hvaða þættir og tiheyrandi upphæðir sveitarfélaið er að styrkja með þessum samningi. Samningurinn verður til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. Einnig spurði Björn Ingi hvert afrakstrinum verði varið ef tilraunin verði jákvæð.
5. 201101009 - Endurskoðun leigusamninga vegna Hafnarbrautar 30
Ræddar hugmyndir um Vöruhús og hugsanlega leigu á því eftir að núvrandi leigusamningar renna út. Björn Ingi óskaði eftir upplýsingum um núverandi samninga. Veltir einnig upp þeirri hugmynd um hvort frekar ætti að kaupa húsið fremur en að leigja til langs tíma. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
6. 201003048 - Samningur um sambýli fatlaðra í Hólabrekku
Liðnum frestað þar sem gögn eru ekki tilbúin.
7. 201101013 - Sorpbrennslustöðvar
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu Brennu Flosa í Öræfum, kom fram í máli Hauks að unnið er að sýnatöku í samvinnu við Umhverfisstofnun. Ásgerður benti á að hér falli til ákveðið magn sorps sem verður að brenna. Velti upp spurningum um hvað gera ætti ef brennsluofninum yrði lokað.
8. 201101012 - Varmadælur íþróttahúsi
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeirri hagræðingu sem fólgin er í uppsetningu á varmadælum í Íþróttahúsi. Bæjarráð samykkir að fara í uppsetningu á varmadælum í íþróttahúsinu. Björn Ingi óskaði eftir upplýsingum um kostnað við úttektina sem gerð var vegna varmadælanna. Haukur Ingi gerði grein fyrir að heildarframkvæmd rúmist innan fjárhagsáætlunar 2011.
9. 201010050 - Innsend erindi:
10. 201101005 - Athugasemdir við svörun tilboða í prentun á Skaftfellingi í febrúar 2010
Bæjarstjóra falið að afla allra gagna um málið.
11. 201101006 - Fyrirspurn foreldris um þáttöku sveitarfélagsins í aksturs/bensínkostnaði vegna tómstundaiðkana barna í dreifbýli
Vísað til framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að kanna möguleg úrræði.
12. 201010037 - Refaveiðar uppgjörstímab. 2010-2011 - tilmæli umhverfis- og skipulagsnefndar vegna greiðslna til refaveiðimanna 2010-2011
Bæjarráð sammála um að tillaga á fjárhagsáætlun 2011 um að verja til þessa verks 2 milljónum standi óbreytt. Samþykkt að fylgjast með framvindu refaveiða á þessu ári og þær kynntar um mitt ár.
13. 200809015 - Skipting á jörðinni Uppsalir 1 - afrit af bréfi Vegagerðarinnar til SJ vegna skiltis við Sunnuhlíð og bréf Sigurgeirs Jónssonar vegna samskipta hans og starfsmanna sveitarfélagsins
Upplýst að málið er til meðferðar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
14. 201101010 - Tilkynning um að Innanríkisráðuneyti taki til starfa 1. janúar 2011
Til kynningar.
15. 201005046 - Skipulag við Jökulsárlón
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
16. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Engar fyrirspurnir bárust.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45


